„Hinn blákaldi veruleiki“ að hluti fyrirtækja í ferðaþjónustu munu ekki lifa af

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra vill að fjár­munir verði frekar not­aðir til að örva eft­ir­spurn eftir ferða­þjón­ustu en að halda á lífi fyr­ir­tækjum sem séu ekki líf­væn­leg. Það sé t.d. hægt að gera með því að skala upp hug­myndir um staf­rænar ávís­anir.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Það liggur fyrir að mörg fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu muni þurfa að hætta starf­semi, segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Það sé ljóst að ekki verður sofið í öllum hót­el­her­bergj­unum, allir bíla­leigu­bíl­arnir verða ekki leigðir og ekki verða nægi­lega margir við­skipta­vinir til þess að öll afþrey­ing­ar­þjón­ustu­fyr­ir­tækin standi undir sér.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali Kjarn­ans við Sigurð Inga sem birt var um liðna helgi. Við­talið er hluti af umfjöll­un­ar­röð Kjarn­ans þar sem sjónum er beint að þeirri fram­tíð sem gæti sprottið upp úr stöð­unni sem nú blasir við Íslandi efna­hags­lega. Fyrsti hluti þeirrar umfjöll­unar voru við­töl við alla þrjá for­menn stjórn­ar­flokk­anna.

„Ég held að það sé hinn blá­kaldi raun­veru­leiki sem að eng­inn vildi horfast í augu við upp­haf­lega, en flestir eru að gera sér grein fyrir. Í starfs­grein sem var nokkuð mikið skuld­sett og stóð frammi fyrir áskor­unum allt síð­ast­liðið ár, og jafn­vel síð­ast­liðin tvö ár, er óum­flýj­an­legt að það verði ein­hverjar breyt­ingar. Ég held að það sé aug­ljóst að nokkur hluti þeirra fyr­ir­tækja mun ekki lifa þetta af.“

Frekar að nota fjármunina til að örva eftirspurn

Sigurður Ingi segir að í stað þess að ríkið haldi þeim fyr­ir­tækjum sem séu ekki líf­væn­leg gang­andi án þess að þau séu í neinni starf­semi sé betra að nota fjár­muni til að ýta undir að þau sem geti bjargað sér eigi meiri mögu­leika með því að örva inn­lenda eft­ir­spurn.

[adspot]„Ég held að þetta sé skyn­sam­ari leið, en hið óhjá­kvæmi­lega er að mörg fyr­ir­tæki þurfa nú að taka þá ákvörðun hvað leið þau ætla að fara. Og síðan eru ein­hver sem geta kom­ist í skjól og verið til­búin til að takast á við það þegar heim­ur­inn verður meira eðli­legur. En hann verður aldrei óbreyttur. Það er það sem að allir þurfa að átta sig á.“

Ein leið sem hann sér til að örva eft­ir­spurn­ina í ferða­þjón­ustu í sumar er að skala upp fyrri hug­myndir um að dreifa 1,5 millj­arði króna til lands­manna í formi staf­rænna ávís­ana til að eyða í ferða­þjón­ustu inn­an­lands. „Tækni­lausnin liggur fyrir, útfærslan er ein­föld. Það væri hægt að skala þetta upp og búa til veru­lega eft­ir­spurn eftir ferða­þjón­ust­unni á Íslandi og flétta það síðan saman við opnun landamæra sem verður þó háð því hvernig öðrum löndum tekst að eiga við plág­una.“

Hægt er að lesa við­talið við Sigurð Inga í heild sinni hér og hlusta á það hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár