Háskóli Íslands biðst afsökunar á málþingi um plastbarkamálið

Af hálfu Háskóla Íslands er beðist vel­virð­ingar á ágöllum við mál­þing um plast­barka­málið árið 2012.

Háskóli Íslands
Háskóli Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Af hálfu Háskóla Íslands er beðist vel­virð­ingar á ágöllum við mál­þing um plast­barka­málið árið 2012 sem hefur gefið til­efni til end­ur­skoð­aðs verk­lags við und­ir­bún­ing og kynn­ingu við­burða sem haldnir eru í nafni Háskóla Íslands.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands, um lyktir könn­unar á þætti pró­fess­ors í plast­barka­mál­inu.

Í nið­ur­stöð­um íslensku rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem Land­spít­ali og Háskóli Íslands settu á stofn og kynntar voru þann 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að lífi þriggja ein­stak­linga hafi verið kerf­is­bundið stofnað í hættu vegna plast­barka­ígræðslu á Karol­inska-­sjúkra­hús­inu og að allir hafi þeir átt undir högg að sækja í sam­fé­lag­inu.

[links]Fram kom einnig að ekki verði annað séð en að Tómasi Guð­bjarts­syni, lækni Andemariam Beyene, sem fyrstur gekkst undir plast­barka­ígræðslu í júní 2011, hafi gengið gott til með plast­barka­ígræðsl­unni en að hann hafi látið blekkj­ast af Macchar­ini og breytt til­vísun en það varði lög um lækna, 11. gr., sem þá voru í gildi um vönduð vinnu­brögð og jafn­framt að ákvarð­ana­taka í aðdrag­anda aðgerð­ar­innar hafi verið ómark­vis­s.

Í skýrsl­unni var nefnt að það hefði verið óæski­legt að Andemariam skyldi sjálfur tala á mál­þingi HÍ því staða hans hafi verið erfið og hann hafi átt mikið undir læknum sín­um. Þess má þó geta að Andemariam var þá þegar kom­inn með stoð­net til að halda bark­anum opnum og hefur mál­þingið verið gagn­rýnt, m.a. af Kjell Asplund, for­manni siða­ráðs lækn­inga í Sví­þjóð og fyrr­ver­andi land­lækni Sví­þjóðar en hann var gestur á mál­þingi í H.Í. síð­ast­lið­inn vet­ur.

Vinnubrögð Tómasar aðfinnsluverð

Segir í yfir­lýs­ingu rekt­ors að í kjöl­far skýrsl­unnar um plast­barka­málið hafi Háskóli Íslands leit­ast við að greina ábyrgð stofn­un­ar­innar og starfs­manna, skoða hvað fór úrskeiðis í mál­inu, læra af því og ákveða við­brögð.

„Það er afstaða rekt­ors að fall­ast beri á þá nið­ur­stöðu í skýrslu óháðu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar að vinnu­brögð pró­fess­ors­ins sem tengj­ast birt­ingu nefndrar vís­inda­greinar hafi verið aðfinnslu­verð,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Pró­fess­or­inn sem um ræðir er Tómas Guð­bjarts­son. Sé þá einkum litið til þess að hann skyldi ekki hafna þátt­töku í frek­ari skrifum grein­ar­innar og draga nafn sitt til baka af lista með­höf­unda um leið og honum urðu ljósir ann­markar á efni hennar.

Það sé jafn­framt afstaða rekt­ors á grund­velli skýrslu óháðu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar að aðkoma pró­fess­ors­ins við und­ir­bún­ing mál­þings­ins sem haldið var við Háskóla Íslands árið 2012 sé aðfinnslu­verð. „Upp­lýs­ingar um aðgerð­ina og ástand sjúk­lings­ins, er Háskóla Íslands voru látnar í té fyrir mál­þingið, komu frá pró­fess­ornum. Á móti koma ýmsir þættir sem eru pró­fess­ornum til máls­bóta. Hann reyndi árang­urs­laust að koma lýs­ingum í vís­inda­grein­inni á bata sjúk­lings í ásætt­an­legt horf, hann hefur óskað eftir því að fá nafn sitt dregið til baka af lista höf­unda umræddrar vís­inda­greinar og hann átti umtals­verðan þátt í því að varpa ljósi á plast­barka­málið með fram­lagn­ingu umfangs­mik­illa gagna og útskýr­inga.

Þrátt fyrir að það sé nið­ur­staða rekt­ors að hátt­semi pró­fess­ors­ins, eins og greint er að framan, telj­ist aðfinnslu­verð verður með hlið­sjón af heild­ar­mati á mála­vöxtum og í ljósi fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­inga ekki talið að laga­skil­yrði séu fyrir hendi til að beita form­legum við­ur­lögum vegna brota í starfi á grund­velli laga nr. 70/1996, um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Til þess er þá einnig litið, þegar horft er fram á veg­inn, að þær aðfinnslur og athuga­semdir sem gerðar eru við störf pró­fess­ors­ins í rann­sókn­ar­skýrsl­unni hafa verið birtar opin­ber­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár