Klúðrið mikla, Kossabrúin í Kaupmannahöfn

Stundum er talað um að þetta eða hitt gangi á aft­ur­fót­unum og allt fari úrskeiðis. Þessi lýs­ing á sann­ar­lega við smíði nýju brú­ar­innar í Kaup­manna­höfn, yfir kanal­inn frá Nýhöfn­inni yfir á Krist­jáns­höfn. Þar hefur flest sem hugs­ast getur farið úrskeiðis en nú hillir undir að hún verði tekin í notkun, meira en þremur árum seinna en til stóð.

Fyrir tíu árum kom fyrst fram, að minnsta kosti opin­ber­lega, hug­myndin um að byggja brú frá Nýhöfn­inni yfir á Krist­jáns­höfn. Skömmu áður hafði Óperan (eins og húsið heitir) verið tekin í notkun. Flestum þótti, og þykir, húsið sóma sér vel á bakk­anum gegnt Amal­íu­borg, en hins­vegar nokkuð úr leið og ein­angrað frá mið­borg­inni. Brú úr Nýhöfn­inni, ásamt teng­brúm, var ætlað að bæta úr þessu. Þegar hug­myndin um fyr­ir­hug­aða brú barst skipa­kóng­inum Mærsk MC-Kinney Møller til eyrna brást hann illa við. Hann hafði gefið dönsku þjóð­inni Óperuna og við hönnun húss­ins hafði hann skipt sér af öllu, stóru og smáu. Fyr­ir­huguð brú myndi setja sterkan svip á nágrenni Óper­unnar og hreint ekki sama hvernig hún liti út, var mat skipa­kóngs­ins. Hann bauðst því til að leggja stórfé í smíði brú­ar­innar og einnig ann­arra minni brúa á Krist­jáns­höfn. Borgin þáði boðið. Formleg ákvörðun um að brú­ar­smíð­ina var tekin í árs­byrjun 2008. Hún skyldi vera göngu-og hjól­reiða­brú, ekki ætluð bílum.

Þekktur arkitekt teiknaði brúna

Breski arki­tekt­inn Cezary Bedn­arski teikn­aði brúna. Bedn­arski, sem er af pólskum ættum, hefur teiknað fjöl­margar þekktar bygg­ingar og mann­virki víða um heim. Hann hefur í við­tölum sagt að það sé mik­ill ábyrgð­ar­hluti að teikna mann­virki sem verði jafn áber­andi í umhverf­inu og þessi nýja brú í Kaup­manna­höfn. Hann og Ian Firth hjá bresku verk­fræði­stof­unni Flint & Neill unnu saman að hönn­un­inni.

Brúin er 180 metra löng og 8 metra breið, frá upp­hafi lá fyrir að hún yrði opn­an­leg fyrir skip. Þeir Bedn­arski og Firth ákváðu að fara ekki hefð­bundna leið. Í stað þess að brúin yrði svo­nefnd vindu­brú þar sem hluti brú­ar­innar lyft­ist þegar skip fara um, skyldi mið­hluti brú­ar­innar sem væri tví­skiptur (sam­tals 50 metrar) drag­ast inn undir brú­ar­sporð­ana. Þegar brúin lok­ast mæt­ast svo þessir tveir fær­an­legu hlutar og brúin lok­ast. Kyssast segja Danir og þaðan kemur við­ur­nefnið „Kossa­brúin”. Arki­tekt­inn sagði í við­tali við Berl­ingske að sér hafi frá upp­hafi verið ljóst að verk­efnið væri mjög flókið. Það reynd­ust orð að sönnu.

Phil & Søn bauð lægsta verðið

Í árs­lok 2009 var til­kynnt að verk­taka­fyr­ir­tækið Phil & Søn hefði átt lang hag­stæð­asta til­boðið og gengið var til samn­inga. Gert var ráð fyrir að kostn­að­ur­inn næmi um það bil 200 millj­ónum króna (3,8 millj­örðum íslenskum) og brúin skyldi tekin í notkun í febr­úar 2013.

Tækni­deild Kaup­manna­hafn­ar­borgar skyldi hafa yfir­um­sjón með verk­inu og sam­vinnu við fjölda und­ir­verk­taka Phil & Søn. Þetta fyr­ir­komu­lag reynd­ist þegar til kom afar taf­samt og olli margs konar árekstrum. Phil & Søn varð að bera alla skap­aða hluti undir starfs­fólk tækni­deildar borg­ar­innar, sem iðu­lega varð svo að leita til kjör­inna full­trúa áður en hægt væri að taka end­an­legar ákvarð­anir.

Fram­kvæmdir hófust í októ­ber 2011, byrjað var á und­ir­stöðum beggja vegna kanals­ins, allt leit vel út.

Stólparnir of háir

Í maí 2012 þegar vinnu­flokkur var að setja upp vinnu­palla (still­ansa) við stólpana öðru megin kanals­ins tóku menn eftir því að vinnu­pall­arnir virt­ust ekki vera nógu háir. Þegar farið var að rýna í teikn­ing­arnar kom í ljós að stólp­arnir, sem eru steyptir, reynd­ust meira en hálfum metra of háir. Þeir sem byggðu stólpana höfðu fengið rangar teikn­ingar til að vinna eftir, Phil & Søn sagði emb­ætt­is­menn borg­ar­innar ábyrga fyrir því. Það tók fjóra mán­uði að stytta stólpana. Þá var ljóst að brúin yrði ekki tekin í notkun á til­settum tíma, í febr­úar 2013.

Í mars 2013 komu í ljós alvar­legir gallar á miðju­hlut­unum tveimur (þeim opn­an­legu) sem gerðir eru úr stáli. Þessir miðju­hlutar eru engin smá­smíði, hvor um sig vegur 250 tonn. Í apríl og maí sama ár komu enn­fremur í ljós gallar í steyp­unni í brú­ar­gólf­inu.

Phil & Søn verður gjaldþrota

Í ágúst 2013 varð verk­taka­fyr­ir­tækið Phil & Søn gjald­þrota, ástæðan var þó ekki brú­ar­smíðin. Kaup­manna­hafn­ar­borg varð þá að fara á stúf­ana og finna nýjan verk­taka. Á meðan sú leit stóð yfir gerð­ist það, í des­em­ber 2013, að storm­ur­inn Bodil gekk yfir Danmörku og olli víða miklum skemmdum. Þar á meðal á öðru vél­ar­rúmi nýju brú­ar­innar, þar eyðilögð­ust tvær vélar ásamt öðrum bún­aði.

Nýr verktaki kemur til sögunnar: Valmont SM

Í árs­byrjun 2014 til­kynnti borgin að fyr­ir­tækið Valmont SM væri nýr yfir­verk­taki brú­ar­innar. Jafn­framt var til­kynnt að A.P. Møller sjóð­ur­inn ætl­aði að leggja fram aukna fjár­muni til verks­ins, sem þá var komið um það bil 100 millj­ónum (dönskum) fram úr áætlun. Hvenær hægt yrði að opna brúna vissi eng­inn á þessum tíma. Í sept­em­ber þetta sama ár, 2014, til­kynnti Valmont SM að hluti burð­ar­virk­is­ins í opn­an­legu hlut­unum, sem reynd­ust gall­aðir 2013 og þurfti að skipta út, yrðu ekki til­búnir á til­settum tíma. Þetta vakti ekki sér­staka athygli, flestir voru orðnir vanir slíkum fréttum.

Í ágúst 2015 voru miðju­hlut­arnir tveir komnir á sinn stað og brúnni var lokað, ef svo má að orði kom­ast, í fyrsta sinn. Í ljós kom að bún­að­ur­inn til að draga miðju­hlut­ana inn undir brú­ar­sporð­ana reynd­ust ekki nægi­lega sterk­byggðir. Í mars á þessu ári var nýr bún­aður kom­inn á sinn stað og er sagður virka eins og til er ætl­ast.

Í til­kynn­ingu frá tækni­deild borg­ar­innar fyrir nokkrum dögum kom fram að verk­tak­inn myndi afhenda brúna full­gerða og til­búna til notk­unar um miðjan júní, meira en þremur árum seinna en til stóð í upp­hafi.

Mikil samgöngubót

Nýja brúin verður án efa mikil sam­göngu­bót. Tækni­deild borg­ar­innar telur að sjö til átta þús­und hjól­reiða­menn muni dag­lega fara um brúna og mik­ill fjöldi gang­andi fólks. Fyrir Íslend­inga sem erindi eiga í íslenska sendi­ráðið kemur brúin sér vel, Krist­jáns­hafn­ar­endi hennar er nán­ast við dyr sendi­ráðs­ins við Strand­götu.

Margra ára málaferli framundan

Í ítar­legri umfjöllun dag­blaðs­ins Berl­ingske um þessa miklu fram­kvæmd kemur fram að þótt brúin kom­ist í gagnið sé ekki öll sagan sögð. Nú hefj­ist mörg og flókin mála­ferli sem taki mörg ár. Setn­ingin „ekki benda á mig” úr þekktu lagi Bubba Morthens á þarna sann­ar­lega við. Hönn­un­ar­fyr­ir­tækið og arki­tekt­inn telja tækni­deild borg­ar­innar bera höf­uð­á­byrgð á klúðr­inu, borgin telur sig hafa staðið rétt að öllum málum. Fjöl­margir und­ir­verk­takar telja sig hafa orðið fyrir miklu tjóni sem þeir vilja fá bætt. En hvað sem því líður er óhætt að full­yrða að íbúar Kaup­manna­hafnar og þeir sem sækja borg­ina heim munu njóta þess að fara um brúna, gang­andi og hjólandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár