Háskólaráð tilnefnir Jón Atla í embætti rektors HÍ

Sitjandi rektor Háskóla Íslands var sá eini sem sótti um emb­ættið þegar það var aug­lýst í byrjun síð­asta mán­aðar.

Háskóla­ráð sam­þykkti á fundi sínum í dag að til­nefna Jón Atla Bene­dikts­son, pró­fessor í raf­magns- og tölvu­verk­fræði, í emb­ætti rekt­ors Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Jón Atli hefur gegnt emb­ætt­inu frá árinu 2015.

Jón Atli var sá eini sem sótti um emb­ættið eftir að það var aug­lýst til umsóknar í byrjun des­em­ber í fyrra.

[adspot]Meðal hlut­verka rekt­ors er að hann er for­seti háskóla­ráðs. Hann er yfir­maður stjórn­sýslu háskól­ans og æðsti full­trúi hans og tals­maður gagn­vart mönnum og stofn­unum innan háskól­ans og utan hans. Hann stýrir starf­semi háskól­ans og hefur frum­kvæði að því að háskóla­ráð marki sér heild­ar­stefnu í mál­efnum háskól­ans.

Hann ber ábyrgð á fram­kvæmd stefnu háskól­ans og tengslum háskól­ans við inn­lenda og erlenda sam­starfs­að­ila. Rektor ber ábyrgð á og hefur eft­ir­lit með allri starf­semi háskól­ans, þar með talið ráðn­ing­ar- og fjár­málum ein­stakra fræða­sviða og stofn­ana. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstr­ar­á­ætl­ana og að þær séu sam­þykktar af háskóla­ráði. Á milli funda háskóla­ráðs fer rektor með ákvörð­un­ar­vald í öllum málum háskól­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár