Farfuglaheimilið í Laugardal opnar kaffihús

Sú hug­mynd að opna kaffi­hús í Far­fugla­heim­il­inu í Laug­ar­dal hefur lengi blundað með starfs­fólki en nú gafst tæki­færi til þess að koma því á kopp­inn. Fram­kvæmda­stjóri gerir ekki ráð fyrir mörgum Íslend­ingum í gist­ingu í sumar.

Rúmt er um gesti Dals á útisvæði kaffihússins.
Rúmt er um gesti Dals á úti­svæði kaffi­húss­ins. Mynd: Petur Thor Ragnarsson

Í dag opnar kaffi­húsið Dalur í Far­fugla­heim­il­inu í Laug­ar­dal. Far­fugla­heim­ilið opn­aði dyr sínar árið 1986 og frá upp­hafi hafa erlendir ferða­menn verið í miklum meiri­hluta þeirra sem gist hafa stað­inn. Hug­myndin um opnun kaffi­húss í hús­inu er ekki nýtil­komin en nú gafst tæki­færi til þess að ráð­ast í fram­kvæmd­ina.

„Hérna hefur verið rekið far­fugla­heim­ili eða hostel í ára­tugi af Far­fuglum ses. Við höfum verið með ein­hverja þjón­ustu við þá gesti sem hérna eru, sem sagt kaffi og morg­un­mat og eitt­hvað slíkt. Svo bara eins og margir aðrir neydd­umst við til að loka í vor þegar ferða­menn hættu að koma til lands­ins og þessi draumur hefur lengi blundað í okkur, að gera eitt­hvað meira fyrir fólkið í hverf­inu og að kynna þennan stað. Þarna kom bara tæki­færi og við ákváðum að láta vaða á þetta,“ segir Þor­steinn Jóhann­es­son fram­kvæmda­stjóri Farfugla í sam­tali við blaða­mann Kjarnans.

Vilja kynnast íbúum hverfisins

Þor­steinn telur að Íslend­ingar hafi ekki fengið að kynn­ast því hvað húsið hafi upp á að bjóða, enda við­skipta­vin­irnir að langstærstum hluta erlendir ferða­menn. Aðspurður um það hvort að rekstur kaffi­hús létti undir rekstr­inum í sumar segir Þor­steinn: „Klárlega. Það skiptir svo miklu máli að hafa líf í hús­inu og hafa atvinnu fyrir eitt­hvað af starfs­fólki. Og að fá að kynn­ast fólk­inu í hverf­inu.“

Þá segir Þor­steinn að opnun kaffi­húss­ins skipti ekki síst máli móralskt séð í rekstr­inum. Það sé ekki hugsað sem ein­hvers konar björg­un­ar­hringur, rekst­ur­inn standi ekki og falli með kaffi­hús­inu.

Engir nýgræðingar í kaffihúsarekstri

Félagið hefur ágæta reynslu af sam­bæri­legum rekstri en það rekur Loft í sam­nefndu far­fugla­heim­ili við Banka­stræti. „Dalurinn má segja að verði syst­ur­kaffi­hús Lofts í Banka­stræti. Loft er gríð­ar­lega vin­sælt meðal ungra íbúa Reykja­víkur og þar erum við með við­burði sem að tengj­ast lífi og menn­ingu þessa mark­hóps. En hérna í dalnum verður fók­us­inn meira á þá sem að hverfið hérna ein­kenn­ist af, fjöl­skyldu­fólki,“ segir Þor­steinn.

En hvernig eru horf­urnar í gist­ingu í sumar þegar lítið verður um erlenda ferða­menn og hót­elin farin að bjóða upp á góð til­boð? „Það eru mjög lág verð sem er verið að bjóða á gist­ingu núna og gisti­að­ilar eru að kepp­ast við að setja fram til­boð og við höfum tekið þátt í því. Það er erfitt að keppa við vissa þjón­ustu hót­ela en við teljum okkur standa betur þegar kemur að gist­ingu og aðstöðu fyrir fjöl­skyldur. Svo sem fjöl­skyldu­her­bergi, eld­un­ar­að­stöðu og fleira“.

Býst ekki við mörgum Íslendingum í gistingu í Reykjavík

„Upp á það að gera þá höfum við ýmis­legt að bjóða sem hót­elin hafa síður. Við viljum nýta tæki­færið og bjóða góð verð í sumar til að kynna okkur og keðju Farfugla í heild og von­andi verður mikil traffík á okkar ein­stöku far­fugla­heim­ilum úti á landi. En hérna í Reykja­vík erum við að búast við hóf­legri traffík Íslend­inga,“ segir Þor­steinn sem bendir á að rúm­lega 30 far­fugla­heim­ili eru rekin víða um land.

En er Þor­steinn bjart­sýnn fyrir kom­andi sumri? „Ég er bjart­sýnn fyrir hönd kaffi­húss­ins. Þær við­tökur sem við höfum þegar fengið við þess­ari hug­mynd eru alveg frá­bærar. Við höfum fengið að heyra það að fjöl­skyldur hérna í hverf­inu hafi dreymt um opnun á svona stað. Þannig að við erum mjög bjart­sýn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár