Kærir oddvita yfirkjörstjórnar til lögreglu fyrir „mögulegt kosningasvindl“

Fyrr­ver­andi þing­maður Pírata hefur beint kæru til lög­reglu og fer fram á að það verði rann­sakað hvort nægar líkur séu á því að Ingi Tryggva­son for­maður yfir­kjör­stjórnar í NV-kjör­dæmi hafi „vís­vit­andi rang­fært atkvæða­greiðslu.“

Jón Þór Ólafsson fyrrverandi þingmaður Pírata.
Jón Þór Ólafsson fyrr­ver­andi þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson fyrr­ver­andi þing­maður Pírata hefur kært Inga Tryggva­son, odd­vita yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, til lög­reglu fyrir það sem hann kallar „mögu­legt kosn­inga­svindl“. Frá þessu greinir Jón Þór í grein á Vísi.

Í grein sinni segir Jón Þór að gögn und­ir­bún­ings­nefndar fyrir rann­sókn kjör­bréfa og opin­berar upp­lýs­ingar sem lög­reglan sendi nefnd­inni sýni að odd­vit­inn hafi með lög­broti skapað sér „tæki­færi til að svindla“ í alþing­is­kosn­ing­unum.

Hann hafi svo hraðað end­ur­taln­ingu atkvæða þannig að lög­bundið eft­ir­lit hafi verið ómögu­legt og farið rangt með í gerða­bók, í fjöl­miðlum, frammi fyrir þing­nefnd og lög­reglu um „máls­at­vik sem benda á mögu­lega sekt hans.“

[adspot]

Jón Þór fer fram á að lög­regla rann­saki sér­stak­lega hvort gögn máls­ins sýni að „nægar líkur séu á því að odd­viti YNV hafi brotið 128 gr. laga um kosn­ingar til Alþingis með því að hafa vís­vit­andi rang­fært atkvæða­greiðslu.“ [links]

„Séu fyrir hendi næg sönn­un­ar­gögn sé rétt sam­kvæmt lögum að gefa út ákæru þess efnis, en slíkt brot varðar fang­elsi allt að fjórum árum. Kæran beinir því jafn­framt til lög­reglu að rann­saka önnur mögu­leg lög­brot við fram­kvæmd kosn­ing­anna er varða sektum,“ segir í grein Jóns Þórs, sem fer fram á það að málið verði tekið til rann­sóknar lög­reglu án tafar.

Kæru Jóns Þórs til lög­reglu, sem dag­sett er 18. nóv­em­ber, má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár