Víðir: Glatað að þykjast sýna ábyrgð með því að kvarta

„En þetta mun auð­vitað ekki virka ef við sýnum ekki ábyrgð,“ segir Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn um fram­kvæmd hólfa­skipt­ingar á sam­komum fleiri en 500 manna sem margar kvart­anir hafa borist vegna.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, lagði gríð­ar­lega áherslu á það á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að skipu­leggj­endur sam­koma útfæri hólfa­skipt­ingu rétt, standi til að bjóða fleiri en 500 manns á svæðið. Enginn sam­gangur eigi að vera á milli hólfa – hvorki hjá gestum eða starfs­fólki.

Víðir sagði að lög­reglan hefðu á síð­ustu dögum og vikum fengið margar ábend­ingar um sam­komur þar sem hólfa­skipt­ing átti að vera til staðar en var ábóta­vant. Hann fór því ræki­lega í saumana á þeim reglum sem eru í gildi. Í fyrsta lagi, minnti Víðir á, þá er sam­komu­bann í gildi sem mið­ast við að ekki fleiri en 500 manns mega koma saman. Hins vegar er hólfa­skipt­ing leyfi­leg en þó aðeins að því gefnu að engin blöndun sé á milli fólks sem er í hólf­unum eða þjón­ustar með ein­hverjum hætti þá sem þar eru.

Ýmsar leið­bein­ingar hafa verið gefnar út um þetta en í ljósi ábend­inga um að fram­kvæmd hólfa­skipt­ingar sé oft ekki rétt skrif­uðu hann og sótt­varna­læknir minn­is­blað í morgun um málið sem sent var öllum lög­reglu­stjórum og fleirum.

[adspot]

„Enginn sam­gangur eða blöndun milli hólfanna á að vera,“ ítrek­aði Víðir. „Þetta er sett í sótt­varna­skyni og það gengur þvert á til­gang fjölda­tak­mark­ana að hafa 500 manna hólf ef þau geta svo bland­ast fram og til baka eins og hverjum sýn­ist.“

Hann benti svo á að fólk sem væri með ein­hver sjúk­dóms­ein­kenni, fólk sem væri í sótt­kví og fólk sem hefði verið í ein­angrun og ekki liðnar tvær vikur frá henni, ætti ekki að koma á sam­komur. Það sama gilti um þá sem hefðu verið erlendis síð­ustu fjórtán daga. Þá eru gestir á sam­komum beðnir að virða tveggja metra regl­una eins og unnt er.

[links]Hvað varðar hólfin sjálf sagði Víðir að skil­grein­ing þeirra og aðskiln­aður þyrfti að vera greini­legur. Góður aðgangur að hand­þvotti og hand­spritti eigi að vera til staðar. Hvert hólf þarf að hafa sinn inn­gang og sinn útgang og að minnsta kosti fjögur sal­erni séu fyrir hvert hólf. Miðasala og öll önnur þjón­usta þarf að vera aðskilin milli hólfa. Enginn sam­gangur er heim­il­aður á milli hólfanna, ekki hjá gestum og ekki hjá starfs­fólki.

Víðir minnti einnig á að veit­inga­staðir þar sem seldar eru vín­veit­ingar mega ekki hafa opið lengur en til 23 á kvöldin. „Og við viljum líka hvetja til þess að opin­berar skemmt­anir sem ekki eru leyf­is­skyldar standi ekki lengur heldur en til 23.“

Verðum að sýna ábyrgð

Víðir sagði að þetta væru leið­bein­ingar sem byggðar eru á sam­komu­bann­inu. „En þetta mun auð­vitað ekki virka ef við sýnum ekki ábyrgð. Skipu­leggj­endur við­burða þurfa að sýna ábyrgð með því að bjóða upp á skipu­lag sem sam­ræm­ist þessum leið­bein­ingum. En við öll, sem mætum á svona staði, við þurfum líka að sýna ábyrgð.“

Sagðist hann síð­ustu daga hafa átt nokkur sam­töl við fólk sem sé að kvarta yfir að við­burður sem það sótti hafi ekki verið í lagi hvað þetta varðar. Hann spurði alla hvað þeir hefðu gert – hvort að þeir hefðu farið. Svörin hafi verið sú að það hafi fólk ekki gert heldur „þvælst á milli allra hólfanna“.

„Það er nátt­úr­lega alveg glatað að þykj­ast vera að sýna ábyrgð með því að kvarta yfir þessu og hafa svo ekki sýnt neina ábyrgð á staðnum. Það getur eng­inn gert þetta fyrir okkur. Við verðum að gera þetta saman og það þurfa allir að taka þátt í þessu.“

Hann benti þeim sem vildu kvarta á að ganga fyrir með góðu for­dæmi og kvarta til skipu­leggj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár