Vilja auka frelsi í dreifingu jarðneskra leifa

Hlutfall bálfara af útförum hefur auk­ist hér á landi á síð­ustu árum. Í nýju frum­varpi er lagt til að fólki verði gert frjálst að ákveða hvar og hvernig ösku þeirra er dreift, hvort sem það sé á hafi, yfir öræfum eða á fleiri en einum stað.

Bálfarir verða sífellt stærra hlut­fall af útförum hér á landi og æ fleiri vilja dreifa ösku hins látna ann­ars staðar en í kirkju­görðum. Tólf þing­menn úr öllum þing­flokkum nema Mið­flokknum hafa því lagt fram frum­varp um að að dreif­ing jarð­neskra leifa verði gefin frjáls.

Tvöfalt fleiri óskir um dreifingu ösku

Hlutur bálfara í útförum hér á landi hefur auk­ist jafnt og þétt á síð­ustu árum. Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi í fyrra kom fram að á árinu 2013 voru bálfarir 28,6 pró­sent af útförum en fjórum árum síðar voru bálfarir 35 pró­sent af öllum útförum.

Samhliða auknum bálförum hefur færst í vöxt að fólk óski eftir að dreifa ösku utan kirkju­garða. Umsóknum um slíka dreif­ingu tvö­fald­að­ist á tíma­bil­inu 2013 til 2018. En sam­kvæmt núgild­andi lögum um kirkju­garða eru ströng skil­yrði fyrir dreif­ingu ösku en sýslu­maður getur heim­ilað að ösku verði dreift yfir öræfi eða sjó ef ótví­ræð ósk hins látna um slíkt liggi fyrir.

Enn fremur er óheim­ilt að dreifa ösku á fleiri en einn stað, sem og að merkja dreif­ing­ar­stað.

Minni takmörkun á Norðurlöndunum

Þing­menn­irnir tólf hafa því lagt til að dreif­ing jarð­neskra leifa verði gefin frjáls. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að með lögum um kirkju­garða, greftrun og lík­brennslu sé óhætt að segja að um tölu­verða opin­bera íhlutun sé að ræða þegar kemur að jarð­neskum leifum fólks.

Þing­menn­irnir telja slíka íhlutun ónauð­syn­lega og engin ástæða sé til ann­ars en að ein­stak­lingar hafi meira frelsi um hvernig og hvort jarð­neskar leifar þeirra séu varð­veittar, grafnar eða þeim dreift.

Enn fremur segir í grein­ar­gerð­inni segir að víð­ast hvar í nálægum löndum sé dreif­ing ösku ekki tak­mörkuð eins mikið og hér, til að mynda er varðar stað­setn­ingu eða auð­kenn­ingu slíkra dreif­ing­ar­staða. Á Norð­ur­lönd­unum þekk­ist að sér­stakir skógar séu fyrir dreif­ingu lík­ams­leifa og þar megi setja upp minn­ing­ar­skjöld sem ætt­ingjar geta svo vitjað og við­haldið. Þó eru þar einnig ákveðin skil­yrði fyrir dreif­ingu ösku en þau séu almennt rýmri en hér tíðkast.

Með frum­varp­inu er lagt til að áfram þurfi að búa um ösk­una í þar til gerðum duft­kerum eftir lík­brennslu en gefið verði frjálst hvað gert verður við kerin. Afnumin verður skyldan um að grafa kerin í graf­ar­stæði en sé hins vegar ákveðið að grafa ker í kirkju­garði skal fylgja ákvæði lag­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár