Stjórnarmyndunarviðræður hafnar

Fundur for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar með for­mönnum Við­reisnar og Flokks fólks­ins hófst á Alþingi klukkan þrjú. Forseti Íslands fól í morgun Kristrúnu Frosta­dóttur umboð til stjórn­ar­mynd­unar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland hittust í fundarsal forsætisnefndar Alþingis.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Kristrún Frosta­dóttir og Inga Sæland hitt­ust í fund­ar­sal for­sætis­nefndar Alþingis. Mynd: Golli

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hlaut stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á Bessa­stöð­um í morg­un. Hún sagð­ist þá ætla að við­ræð­ur við Við­reisn og Flokk fólks­ins strax síð­ar í dag. 

Kristrún boð­aði þær Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­mann Við­reisnar, og Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, á fund sinn í dag vegna við­ræðn­anna og hófst hann klukkan þrjú í fund­ar­her­bergi for­sætis­nefndar Alþingis. Þær gáfu ekki kost á við­tali áður en fund­ur­inn hófst en munu ræða við blaða­menn að honum loknum. 

„Kristrún hefur tjáð mér að hún hafi nú þegar átt sam­töl við for­menn ann­arra flokka sem einnig hafa upp­lýst mig um að þeir séu reiðu­búnir til form­legra við­ræðna um myndun nýrrar rík­is­stjórnar með Sam­fylk­ing­unni,“ sagði Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, við blaða­menn eftir fund sem hún átti með Kristrúnu á Bessa­stöðum í morgun þar sem hún fól henni stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið.

Kristrún ræddi við blaða­menn á eftir for­set­anum og sagði að hennar mati og flestra ann­arra væru þrír flokkar sem hefðu náð hvað mestum árangri í kosn­ing­unum. „Það er Sam­fylk­ingin, Viðreisn og Flokkur fólks­ins. Ég ætla núna í kjöl­far þessa fundar að setja mig í sam­band við for­mann Við­reisnar og for­mann Flokks fólks­ins og boða þær á fund og í sam­tal núna, strax eftir hádegi til að ræða næstu skref. Ég held að það sé brýnt að við förum strax af stað í þessa vinnu.“

Kristrún bætti við að hún teldi lyk­il­at­riði hjá næstu rík­is­stjórn að halda efna­hags­mál­unum í festu. Tryggja þyrfti áfram­hald­andi lækkun vaxta og verð­bólgu. „Við þurfum að fara strax af stað og skapa festu.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Þó maður sé ekki sammála þessum ágætu konum í öllu þá vona ég að þær nái saman um myndun ríkisstjórnar. Það er von mín að þær vegi hver aðra upp og þannig myndi jafnvægi í ákvarðanatöku en þó án þeirrar ofur íhaldsemi sem hefur plagað íslensk stjórnmál allt of lengi. Þeir stjórnmálaflokkar sem voru í síðustu stjórn eru allt ofur íhaldsflokkar í raun þó tveir þeirra þykist vera framsæknir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár