Aðstoðarmaður innanríkisráðherra ætlar á þing

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, ætlar að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Magnús Lyngdal hefur verið sterk­lega orð­aður við fram­boð fyrir flokk­inn. Elliði Vign­is­son íhugar einnig fram­boð.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Magnús Lyngdal Magnússon og Elliði Vignisson hafa verið sterklega orðuð við framboð.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ætlar að bjóða sig fram í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Magnús Lyngdal Magn­ús­son og Elliði Vign­is­son hafa verið sterk­lega orðuð við fram­boð.

Senn líður að kosn­ingum og eru línur innan flokk­anna óðum að taka á sig mynd. Á sama tíma og þing­menn til­kynna að þeir ætli ekki að halda áfram á kom­andi kjör­tíma­bili, stíga aðrir fram og gefa kost á sér. Aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að hún ætli að bjóða sig fram í annað sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Haraldur Bene­dikts­son býður sig fram í fyrsta sætið, þar sem Einar K. Guð­finns­son var áður.

Ritari og aðstoðarmaður rektors orðuð við framboð

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru allar líkur á að Magnús Lyngdal Magn­ús­son, sagn­fræð­ingur og aðstoð­ar­maður rekt­ors Háskóla Íslands, bjóði sig fram fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, annað hvort í kom­andi þing­kosn­ingum eða í næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum fyrir annað hvort Reykja­vík­ur­kjör­dæmið. Einnig er búist við því að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, bjóði sig fram, en hún hefur þó enga ákvörðun tekið.

Bæjarstjórinn í Vestmanneyjum hugsar málið

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur líka verið sterk­lega orð­aður við fram­boð. Hann seg­ist hafa fengið mörg sím­töl þess efnis, bæði frá fjöl­miðlum og stuðn­ings­mönnum. „Ég tók þá ákvörðun að vera sultu­slakur fram yfir for­seta­kosn­ingar. Hef ekki verið að stefna að þessu, ég er í mjög krefj­andi og góðri vinnu sem bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum,“ segir hann við Kjarnann. „En það væri hroka­fullt að íhuga ekki þegar maður fær svona mik­inn stuðn­ing. En lengra er ég ekki kom­inn í þessu.“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til­kynnti í gær að hún ætl­aði ekki að gefa kost á sér áfram fyrir flokk­inn. Í kjöl­farið til­kynnti Elín Hirst að hún hugð­ist bjóða sig fram í sæti Ragn­heiðar, 2. sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár