Hið glæsta ríki Sassanída rís og fellur

Fyrir tveimur vikum var saga hins fyrsta Persa­veldis rakin á þessum vett­vangi. Hér segir af Persa­veldi númer tvö, hinu mikla veldi Persa frá falli Parþa og fram að upp­gangi múslima.

Parþar höfðu ráðið Persíu, Mesópótamíu og Mið-Asíu í mörg hund­ruð ár en í apríl 224 töp­uðu þeir orr­ustu gegn upp­reisn­ar­mann­inum Ardashír, und­ir­kóngi þeirra í hér­að­inu Pars. Þar með var ríki Parþa snögg­lega úr sög­unni en Ardashír stofn­aði nýtt veldi sem kennt var við Sassan, ætt­föður Ardas­hírs, hvort sem sá var nú til í alvör­unni eður ei. Ardashír og sonur hans Shapúr 1. treystu hið nýja Persa­veldi mjög í sessi uns það var orðið ámóta flæmi og hið forna ríki Kýrosar hins mikla.

Shapúr ríkti í 30 ár og kom styrkum fótum undir veldi sitt, hann reisti borgir, lét höggva lág­myndir í kletta og þótti inn­an­lands bæði mildur og rétt­sýnn. Hann var dyggur fylg­is­maður Zóróaster-trúar en leyfði spá­mann­inum Maní að starfa óhindrað og breiða út kenn­ingar sínar.

Það var til marks um hví­líkur völlur var á Shapúr 1. að hann knúði róm­verskan her til upp­gjafar við borg­ina Edessa árið …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
    Takk fyrir þetta. Í bók minni Bókasafnu stendur eftirfarandi á blaðsíðu 282:

    "Sandi orpnar eru hallir Eranshar,
    musterin rústir einar.
    Engir eldar loga lengur
    Ahúra-Masda til dýrðar…

    Svona mætti hefja tregaljóð um eitt hinna mörgu írönsku stórvelda sem risið hafa og hnigið í aldanna rás. «Eranshar» þýðir «Íransveldi» og var stórveldi stórkonunganna af Sassanídaætt sem stóð frá 226 e.kr. til 651 e.kr."

    Örgrein þessi fjallar um upphaf skáklistarinnar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár