Glampandi þak

Leir er ekki alltaf á borði dóm­stóla. Hæsti­réttur Dan­merkur fjall­aði um álita­mál sem varðar þetta algenga bygg­ing­ar­efni á dög­unum.

Endurkast af gljásteinsþökum hefur virkað sem ljóskastari á nágranna þeirra sem komið hafa komið sér upp slíkum þökum.
End­ur­kast af gljá­steins­þökum hefur virkað sem ljós­kast­ari á nágranna þeirra sem komið hafa komið sér upp slíkum þökum. Mynd: Monier.dk

Það er sann­ar­lega ekki á hverjum degi sem Hæsti­réttur Dan­merkur kveður upp dóm varð­andi áferð á þak­klæðn­ingum. Einn slíkur dómur var kveð­inn upp fyrir nokkrum dögum, málið kom fyrst til kasta dóm­stóla árið 2012.

Í Danmörku, eins og víða í Evrópu, er leir algengt bygg­ing­ar­efni. Sem hleðslu­steinn í veggi, bæði útveggi og inn­veggi og ekki síður sem þak­klæðn­ing. Ísland er eitt örfárra landa í Evrópu, og þótt víðar væri leitað, þar sem leir hefur lítt verið nýttur sem bygg­inga­efni og fyrir því eru ýmsar ástæður.

Leirinn sem bygg­inga­efni á sér langa sögu. Talið er að íbúar Mesópótamíu hafi fyrstir manna upp­götvað nyt­semi leirs í kringum árið 5000 f.Kr. Þeir mót­uðu leir­inn, létu hann þorna í sól­inni og not­uðu svo til að byggja hús og ýmis mann­virki.

[adspot]Meðal þeirra sem kynnt­ust bygg­inga­list Mesópótam­íu­manna voru Danir. Þeim var þó ljóst að leir­inn, sól­þurrk­aður, væri ekki nægi­lega sterkur og þéttur í sér til að þola rak­ann og slag­viðrið á norð­læg­ari slóðum. Í Suður-Evrópu komust menn að því að væri leir­inn brenndur við hátt hita­stig, yfir 1000 gráður, varð hann marg­falt sterk­ari og þoldi raka og frost, án þess að molna. Leirinn hefur allar götur síðan verið mikið not­aður til hús­bygg­inga í mörgum Evr­ópu­löndum. Rauðleir algengastur.

Ekki einungis hleðslusteinn

Þótt leir­inn væri í upp­hafi einkum not­aður í vegg­hleðslur létu evr­ópskir hús­byggj­endur ekki þar við sitja. Leirinn varð fljótt vin­sæll sem þak­klæðn­ing­ar­efni, meðal ann­ars í Danmörku. Hefð­bundið þak er rauð­leitt á lit, með stórum bárum, marg­falt stærri en á hefð­bundnu báru­járni. Það er vanda­verk að leggja þak­stein og krefst mik­illar kunn­áttu. Ef vandað er til verka getur leir­steins­þak enst í ára­tugi, svo til við­halds­frítt. Þaklagn­ing er sér­stök iðn­grein, námið tekur að jafn­aði þrjú og hálft ár og skipt­ist í bók­legt nám og verk­legt. Tag­dækker kall­ast sá sem lokið hefur slíku námi í Danmörku og námið ein­skorð­ast að sjálf­sögðu ekki við lagn­ingu leir­steins­þaka. Á síð­ari árum hafa ýmis önnur efni, fyrst og fremst dúkar af ýmsu tagi, rutt sér til rúms, einkum á stærri bygg­ingum.

Mosinn er víðar en í görðunum

Danskir hús­eig­endur þurfa að takast á við a.m.k eitt vand­mál sem er nán­ast óþekkt á hinum íslensku báru­járns­klæddu þökum: mosa. Hinar hefð­bundu múr­steins­báru­plötur eru fremur hrjúfar og halda í sér rak­anum (þótt hann nái ekki niður í gegn), eru sem­sagt kjörað­stæður mosa­gróð­urs.

Mosinn hefur gert mörgum dönskum hús­eig­and­anum lífið leitt og þótt margt hafi verið reynt til að hindra mosa­gróð­ur­inn dugir það lítt. Þvottur með háþrýstisprautu, alls kyns undra­efni með aðstoð strá­kústs, allt kemur fyrir ekki. Mosinn kemur alltaf aftur og ekki nóg með að hann vaxi á þak­inu, hann sest líka að í renn­unum og stíflar þær, það kallar fram önnur vanda­mál. Semsé, mos­inn er óvinur hús­eig­and­ans. Auk mos­ans er múr­steins­klædda þakið líka kjör­lendi ýmis konar gróð­urs, kallar fram græna slikju á rauð­leitu þak­inu.

Gljáleirinn

Margir þak­steins­fram­leið­endur höfðu árum saman glímt við að finna lausnir til að fyr­ir­byggja að mosi og annar gróður gæti tekið sér ból­festu á þak­inu. Um síð­ustu alda­mót kom á mark­að­inn í Danmörku nýr þak­steinn, svartur á lit­inn, háglans­andi.

Fram­leið­and­inn sagði að með þessum nýja háglans­steini væri búið að kveða mosa­draug­inn í kút­inn, þótt ein­hver mosa­flygsa sett­ist á glans­andi þakið fyki hún burt við minnsta and­vara. Þetta reynd­ist rétt og margir aðrir þak­steins­fram­leið­endur fylgdu í kjöl­farið. Hús­eig­endur tóku þessu fagn­andi og á næstu árum mátti æ víðar sjá gljá­steins­klædd þök. En eins og svo oft fylgdi þarna bögg­ull skamm­rifi.

Nýja þakklæðningin og nágranninn

Árið 2005, þegar gljá­steinn­inn hafði verið á mark­aðnum í nokkur ár ákváðu hjón, í smábæ skammt frá Árósum að end­ur­nýja þak­stein­inn á ein­býl­is­hús­inu, sem er með bröttu þaki. Hjónin ákváðu að kaupa háglans­stein, sögðu síðar að það hefðu þau fyrst og fremst gert til að losna við mosa­gróður á þak­inu. Það gekk eftir.

Önnur lang­hlið húss­ins snýr að eld­hús- og stofu­glugga nágrann­ans. Sá nágranni sem er eldri kona, sá sér til skelf­ingar að þegar sólin skein var engu lík­ara en risa­stórum ljós­kast­ara væri beint að húsi hennar og glamp­inn stóran hluta dags­ins svo skær að eng­inn leið var að haf­ast við í eld­húsi og stofu nema hafa dregið fyrir, og dugði varla til. Hvað þá á sól­palli utandyra.

Nóg boðið

Árið 2012, sjö árum eftir að gljá­steinn­inn var lagður á þakið, kvart­aði konan, fyrst við nágrann­ann og svo við sveit­ar­fé­lagið. Nágrann­inn yppti öxlum og hjá sveit­ar­fé­lag­inu feng­ust þau svör að þar giltu engar reglur um þakefni, svo fremi þau upp­fylltu bygg­inga­reglu­gerðir og þar var ekki kveðið á um gljá­stig slíkra efna. Þessi svör vildi nágranna­konan ekki sætta sig við og ákvað að kæra. Krafa hennar fyrir bæj­ar­rétti (lægsta dóm­stigi af þremur) var sú að eig­endum húss­ins með gljá­stein­inum yrði gert skylt að sjá til þess að þakið end­ur­ka­staði ekki sól­ar­ljós­inu á hús nágrann­ans.

Bæjarréttur og Landsréttur á einu máli

Fyrir bæj­ar­rétt­inum sögðu gljá­steins­eig­endur að þeir hefðu ekki séð fyrir að nýja þakefnið gæti valdið nágrann­anum óþæg­indum. Bentu líka á að gljá­steinn væri full­kom­lega lög­legt þakefni og þar að auki væru liðin sjö ár frá því gljá­steinn­inn var lagður á þakið. Enn­fremur fylgdi því ærinn kostn­aður ef skipta þyrfti um þak­stein eða grípa til ann­arra aðgerða til að afmá gljá­ann.

Bæj­ar­rétt­ur­inn gaf lítið fyrir þessi rök og úrskurð­aði nágrann­anum í vil. Gljá­steins­eig­endur vildu ekki sætta sig við þessa nið­ur­stöðu og málið fór fyrir Lands­rétt, þar var nið­ur­staðan hin sama: gljá­steins­eig­endum gert skylt að sjá til þess að end­ur­kast frá þak­inu yrði innan þeirra marka að ekki trufl­aði nágrann­ann.

Endaði í Hæstarétti

Í Danmörku gilda ákveðnar reglur um hvaða mál telj­ist eiga erindi fyrir Hæsta­rétt. Gljá­steins­málið hefði undir venju­legum kring­um­stæðum ekki talist af þeirri „stærð­argráðu“ að það ætti þangað erindi. En í ljósi þess að málið átti sér ekki for­dæmi, og vegna þess að í land­inu eru mörg þús­und gljá­steins­þök, fór það fyrir Hæsta­rétt. Dómur Hæsta­réttar féll fyrir nokkrum dögum og hann stað­festi dóm Lands­réttar. Gljá­steins­eig­endur skulu fjar­lægja gljá­ann.

[adspot]Kær­and­inn sem, einsog áður sagði vann málið, kvaðst hlakka til að geta nú bæði horft út um glugg­ana og setið á sól­pall­inum án þess að fá ofbirtu í augun.

Þaksteinsframleiðendur hafa fundið aðrar lausnir

Eftir að fyrsti dómur í gljá­steins­mál­inu féll, fyrir Bæj­ar­rétti, hófu fram­leið­endur þak­steins að leita leiða til að fram­leiða þak­stein sem hefði eig­in­leika gljá­steins­ins, semsé að vera „mosa­frír“ án þess að gljá. Nú er slíkur steinn löngu kom­inn á mark­að­inn. Arki­tektar, og margir aðrir töldu það líka gljá­stein­inum til lasts að hann var ein­ungis fáan­legur í svörtum, eða mjög dökkum lit, sem ekki var í neinu sam­ræmi við upp­haf­legu klæðn­ing­una en nýi gljá- og mosa­fríi steinn­inn er til í fleiri litum.

Hvað geta gljásteinseigendur gert?

Í tengslum við nýaf­staðin mála­ferli fyrir Hæsta­rétti Dan­merkur kom það fram að fyrir nokkru kom á mark­að­inn efni (eins­konar máln­ing) sem hægt er að bera á gljá­steins­þök og með þeim hætti fjar­lægja gljá­ann. Kostn­aður við þessa aðferð er aðeins brot af þeim kostn­aði sem myndi fylgja því að skipta um þak­klæðn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár