Þrír sitjandi þingmenn leiða lista hjá Bjartri framtíð

Páll Valur Björnsson og Björt Ólafsdóttir ætla að vera í framboði í haust en Guðmundur Steingrímsson og Róbert Marshall eru báðir að hætta.
Páll Valur Björns­son og Björt Ólafs­dóttir ætla að vera í fram­boði í haust en Guð­mundur Stein­gríms­son og Róbert Marshall eru báðir að hætta. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Björt fram­tíð birti í gær­kvöldi fram­boðs­lista sína fyrir öll kjör­dæmi lands­ins. Þrír núver­andi þing­menn flokks­ins munu leiða lista, for­mað­ur­inn Óttarr Proppé í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Björt Ólafs­dóttir í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og Páll Valur Björns­son í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Þá mun Nichole Leigh Mosty leik­skóla­stjóri leiða lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, G. Valdimar Valde­mars­son fram­kvæmda­stjóri verður í fyrsta sæti á lista Bjartrar fram­tíðar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Preben Pét­urs­son mjólk­ur­tækni­fræð­ingur leiðir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Fjórir karlar sitja því í efstu sætum á lista flokks­ins en tvær konur. Hægt er að sjá fram­boðs­lista flokks­ins í heild hér.

Björt fram­tíð fékk 8,2 pró­sent í þing­kosn­ing­unum 2013 eftir að hafa mælst með mun hærra fylgi í könn­unum í aðdrag­anda þeirra. þremur mán­uðum fyrir kosn­ing­arnar mæld­ist það til að mynda um 19 pró­sent. Flokk­ur­inn fékk því sex þing­menn kjörna í fyrsta sinn sem hann bauð fram. Þrír þing­menn flokks­ins hafa ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram. Þeir eru Guð­mundur Stein­gríms­son, fyrr­ver­andi for­maður og stofn­andi Bjartrar fram­tíðar, Róbert Marshall og Bryn­hildur Pét­urs­dóttir. Þá hefur Heiða Kristín Helga­dóttir, sem stofn­aði flokk­inn með Guðmundi, hætt afskiptum af stjórn­málum á vett­vangi Bjartrar fram­tíðar.

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur mælst mjög lítið síð­ustu miss­erin. Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist fylgi flokks­ins 3,9 pró­sent, sem myndi ekki duga honum til að kom­ast inn á þing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár