Kári átti hugmyndina um að skima alla ferðamenn

Það var Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sem kom með þá hug­mynd á fundi með stýri­hópi um afnám ferða­tak­mark­ana að skima alla sem komi til lands­ins. Þannig er hægt að opna aftur landa­mæri Íslands.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Íslensk erfðagreining

Í skýrslu stýri­hóps um afnám ferða­tak­mark­ana kemur fram að það hafi verið Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sem kynnti þá hug­mynd að skima alla sem koma til lands­ins, bæði Íslend­inga og útlend­inga. Þessa hug­mynd gerði stýri­hóp­ur­inn að einni af sínum til­lögum sem rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun.

Á blaða­manna­fundi í dag greindi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra frá því að stefnt væri að því að eigi síðar en 15. Júní ættu þeir sem koma til Íslands kost á því að fara í skimun eða fram­vísa vott­orði sem íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd taka gild. Hægt verður að fá nið­ur­stöður úr sýna­töku sam­dæg­urs og ef hún reyn­ist nei­kvæð þarf við­kom­andi ekki að fara í tveggja vikna sótt­kví eins og núver­andi reglur gera ráð fyrir.

[adspot]

Í stýri­hópnum áttu sæti ráðu­neyt­is­stjórar sex ráðu­neyta. Hópurinn kall­aði ýmsa sér­fræð­inga á sinn fund, m.a. Kára Stef­áns­son. Í skýrslu hóps­ins kemur fram að Kári hafi sagt það sitt mat að reynslan und­an­farnar vikur sýndi að fram­kvæm­an­legt væri að skima alla sem kæmu til lands­ins. Íslensk erfða­grein­ing hafi náð að prófa [links]allt að tvö þús­und manns á dag og hægt ætti að vera að marg­falda þá afkasta­getu. Kári teldi einnig að hið opin­bera ætti að ann­ast þetta verk­efni og byggja á reynslu sem feng­ist hefur hér á landi við að ná tökum á COVID-19. Íslensk erfða­grein­ing væri hins vegar reiðu­búin að aðstoða við að koma þessu á lagg­irnar. Einnig gæti hún haft hlut­verki að gegna við flókn­ari grein­ingar.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur í kjöl­far þessa fundar rætt nánar við for­svars­menn í heil­brigð­is­kerf­inu um fram­kvæmda­hlið mála og hefur verið gengið út frá því að veiru­fræði­deild LSH myndi ann­ast skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli en sýnum yrði ekið til Reykja­víkur. Ferða­menn myndu fá nið­ur­stöðu sam­dæg­urs og þyrftu ekki að bíða eftir henni á flug­vell­inum enda væru þeir með smitrakn­ing­ar­for­rit og önnur nauð­syn­leg for­rit í síma.

Verið er að leggja mat á kostnað við verk­efnið og einnig hefur verið til skoð­unar hvort taka eigi gjald af far­þegum fyrir sýna­töku á flug­vell­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár