ASÍ í við­ræðum við stjórn­völd sem lofa samráði um útfærslu aðgerða

ASÍ telur nauð­syn­legt að verka­lýðs­hreyf­ingin eigi aðkomu að þeim aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar sem gripið er til vegna COVID-19 far­ald­urs­ins enda varði þær fram­tíð vinn­andi fólks og almenn­ings til næstu ára.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Landsbankinn

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) fagnar áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina til að standa vörð um afkomu og verja störf, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá sam­band­inu í dag.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti þriðja aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar í morgun á blaða­manna­fundi. Þar kom fram að hluta­bóta­leiðin yrði fram­lengd með óbreyttu sniði út júní, en hún átti að gilda til 1. júní. Eftir það verður hún í boði með breyttu sniði – hámarks­greiðslur úr opin­berum sjóðum verða þá 50 pró­sent af greiddum launum í stað 75 pró­sent – og nán­ari skil­yrðum út ágúst.

Þá verður fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti til að tryggja rétt­indi launa­fólks og koma í veg fyrir fjölda­gjald­þrot fyr­ir­tækja. Auk þess verða settar verða ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja sem miða að því þau geti kom­ist í skjól með ein­földum hætti.

Í til­kynn­ingu ASÍ segir að sam­bandið hafi átt við­ræður við stjórn­völd um þær aðgerðir sem kynntar voru í dag og lofað hafi verið sam­ráði um útfærslu þeirra. Það sé nauð­syn­legt að verka­lýðs­hreyf­ingin eigi aðkomu að þeim aðgerðum sem gripið er til enda varði þær fram­tíð vinn­andi fólks og almenn­ings til næstu ára.

Mikilvægast að tryggja afkomu launafólks

[links]Samkvæmt ASÍ er mik­il­væg­asta verk­efnið nú að tryggja afkomu launa­fólks sem missir vinnu að hluta eða alveg til að sporna gegn lang­vinnum áhrifum krepp­unnar á efna­hags­lífið og hag heim­il­anna. ASÍ leggur áherslu á skýr skila­boð um skil­yrði fyrir stuðn­ingi til fyr­ir­tækja og mun, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, taka þátt í sam­ráði um fram­kvæmd þess­ara úrræða. Fram kemur hjá sam­band­inu að leik­regl­urnar þurfi að vera ótví­ræðar til að rík­is­stuðn­ingur skili sér í atvinnu­ör­yggi og traustri afkomu fólks.

ASÍ styður jafn­framt aðgerðir til að tryggja rétt­indi starfs­fólks á upp­sagn­ar­fresti. Sam­bandið telur jákvætt að kveða á um for­gangs­rétt starfs­manna sem missa vinn­una til end­ur­ráðn­ingar og að í slíkum til­vikum eigi starfs­menn að halda áður áunnum rétt­indum. ASÍ áréttar að hækka verði atvinnu­leys­is­bætur þegar í stað en fram kemur hjá sam­band­inu að grunn­bætur séu umtals­vert lægri en lág­marks­laun og þak tekju­teng­ingar sé oft lágt og mán­uðir þar sem þeirra rétt­inda nýtur við of fáir.

Setja þurfi skýr skilyrði fyrir opinberum stuðningi til fyrirtækja

ASÍ ítrekar fyrri varn­að­ar­orð um að sett skuli skýr skil­yrði fyrir opin­berum stuðn­ingi til fyr­ir­tækja sem lúti að því að þeim beri að við­halda störfum eftir fremsta megni, fara eftir kjara­samn­ingum og standa skil á fram­lagi sínu til sam­fé­lags­ins. Þar sem ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa bent á að stuðn­ingur þessi muni nýt­ast Icelandair áréttar ASÍ að flug­freyjur hafa verið samn­ings­lausar frá árs­byrjun 2019 og að núver­andi kreppu eigi ekki að nýta til að þrýsta kjörum þeirra niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár