Þótt Shoigu sé eng­inn her­maður er sjálfs­mynd ætt­bálkanna í Síber­íu­hér­uðum Rúss­lands gjarnan tengd hern­aði og/eða veiði­skap, allt síðan á dögum Genghis Khan. Myndin hér að ofan sýnir glæsta styttu í Túva sem lista­maður úr nágranna­hér­að­inu Búrjatíu skóp.

Síberíumaður Pútíns

Mjög hefur borið á Sergei Shoigu, varn­ar­mála­ráð­herra Rúss­lands, eftir að Vladimír Pútín sendi skrið­dreka hans af stað til að leggja undir sig Úkraínu. Shoigu er upp­runn­inn í Síberíu en Síber­íu­búar, bæði af rúss­neskum ættum og ætt­þjóðum frum­byggja, hafa verið mjög áber­andi í hernum

Mjög hefur borið á varn­ar­mála­ráð­herra Rúss­lands eftir að inn­rásin í Úkraínu hófst. Það er hinn lit­ríki en afar umdeildi Sergei Shoigu. Og hann á sér nokkuð óvenju­lega for­tíð af rúss­neskum vald­höfum að ræða. Svo vill nefni­lega til að hann er fæddur og upp­al­inn í Túva og að hálfu af ættum inn­fæddra í hér­að­inu. Túva er sér­stakt sjálf­stjórn­ar­lýð­veldi, sem svo er kallað, innan Rúss­lands en hér­uðin í Síber­íu­hluta Rúss­lands telj­ast til nokk­urra mis­mun­andi stjórn­sýslu­stiga.

Túva á sér nokkuð sér­stæða sögu en frum­byggjar þar telj­ast vera af tyrk­nesku bergi brotnir en í Síberíu bjó lengst af (áður en Rússar fóru að setj­ast að á svæð­inu) fólk af ættum Túngúsa, Tyrkja og Mongóla. Eitt sinn var uppi sú kenn­ing að allir þjóða­flokk­arnir þrír – eða alt­ént tungu­mál þeirra – ættu sam­eig­in­legan upp­runa í Altai-fjöllum, sem eru á mótum nútíma­ríkj­anna Kína, Mongólíu og Rúss­lands eða Síberíu.

Shoigu hefur gaman …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tjörvi Schiöth skrifaði
    Getið þið ímyndað ykkur ef varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og/eða yfirmaður hersins, gæti nokkurn tímann verið eistaklingur sem er af frumbyggjaættum? Eins og Sergei Shoigu, sem er kominn frá Túvan-fólkinu í Síberíu? Þetta segir ýmislegt um þessi tvö ríki, Bandaríkin og Rússland...
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár