Sjálfsagt að þingmenn segi af sér ef þeir gefa út tilhæfulausa reikninga

Það að kom­ast í gegnum kosn­ingar á ekki að veita þing­mönnum synda­af­lausn, segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Hann var á meðal gesta nýjasta sjón­varps­þáttar Kjarnans á Hring­braut.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir að ef sýnt verði fram á að þing­maður hafi gefið út til­hæfu­lausan reikn­ing til Alþingis, t.d. vegna akst­urs vegna próf­kjörs­þátt­töku, þá eigi við­kom­andi að þurfa að axla ábyrgð. „Mér fynd­ist það vera sjálf­sagt að fólk þyrfti að segja af sér í því til­viki. Það er ekki hægt að þvinga þing­menn til þess að gera að.“

Hann gagn­rýnir orð­ræðu um að í kosn­ingum felist ein­hvers­konar synda­af­lausn fyrir þing­menn. „Tækni­lega séð gæti þing­maður farið á Kanarí í fjögur ár og ekki látið sjá sig á þingi. Að sjálf­sögðu gerir það eng­inn og von­andi gerir það eng­inn í fram­tíð­inni. En fólk getur sleppt því að mæta í vinn­una og tekið þessu í næstu kosn­ingum. Mér finnst ofurá­hersla á það að allar syndir verða afléttar í næstu kosn­ingum ef þú kemst inn, ellegar ekki. Að við eigum að geyma allan dóm þangað til í næstu kosn­ingum, og svo þurfum við ekk­ert að hugsa um það meira.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjasta þætti Kjarnans á Hring­braut þar sem fríð­inda­greiðslur til þing­manna eru til umfjöll­unar. Hægt að sjá þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, var hinn gestur þátt­ar­ins. Hann sagði að þing­menn væru komnir „djúpt inn á grátt svæði“ þegar þeir væru að láta Alþingi greiða fyrir akst­urs­kostnað sinn í próf­kjörum eða í aðdrag­anda kosn­inga. Eðlilegt væri að þeir sem yrðu upp­vísir að slíku end­ur­greiddu þann kostnað og byð­ust sjálfir til að gera það.

[adspot]Stein­grímur sagði það löngu tíma­bært að upp­lýs­ingar um greiðslur til þing­manna væru gegn­særri. Nú þegar væri búið að birta fastar greiðslur til þeirra á þessu ári og í næstu viku muni birt­ast upp­lýs­ingar um breyti­legan kostnað sem hafi verið greiddur fyrstu tvo mán­uði árs­ins. Næsta skref yrði að birta upp­lýs­ingar allt að tíu ár aftur í tím­ann.

Þá sé á leið­inni grein­ar­gerð frá skrif­stofu Alþingis, sem fer með fram­kvæmd og eft­ir­lit með greiðslum til þing­manna. Stein­grímur segir að skrif­stofan hafi stundum hafnað því að greiða reikn­inga og að þing­menn hafi þá unað því. „Það er mis­skiln­ingur að þetta hafi verið sjálf­virkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár