Hannes eyddi Pace-peningunum í sig og nána tengslamenn

Hannes Þór Smárason átti panamska félagið Pace, sem fékk þrjá millj­arða króna frá Fons árið 2007. Hann eyddi pen­ing­unum mest­megnis í eigin þágu og í þágu „náinna tengsla­manna“. Fordæmi úr hæsta­rétt­ar­dómum komu í veg fyrir að ákært yrði í mál­inu.

Hannes Þór Smárason átti Pace Associates og ráðstafaði fjármunum úr félaginu. M.a. fjármunum sem Pálmi Haraldsson lánaði honum úr Fons.
Hannes Þór Smárason átti Pace Associates og ráð­staf­aði fjár­munum úr félag­inu. M.a. fjár­munum sem Pálmi Har­alds­son lán­aði honum úr Fons.

Hannes Þór Smárason ráð­staf­aði þeim þremur millj­örðum króna sem Fons lán­aði til panamska félags­ins Pace Associates þann 24. apríl 2007. 900 millj­ónir króna fóru inn á reikn­ing aflands­fé­lags fjár­fest­is­ins Magnúsar Ármann vegna þátt­töku Hannesar í fast­eigna­verk­efni í Indlandi en að öðru leyti var fjár­mun­unum ráð­stafað „að stærstum hluta til hluta­bréfa­við­skipta erlendis fyrir reikn­ing Pace eða ann­ars með öðrum hætti í eigin þágu, annað hvort þá með greiðslu per­sónu­legra skuld­bind­inga eða beinum greiðslum til hans eða náinna tengsla­manna eða hins vegar með beinum greiðslum til inn­lendra og erlendra félaga á hans vegum.“

Þetta kemur fram í rök­stuðn­ingi emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir því að ákæra ekki þrjá menn sem hafa verið til rann­sóknar hjá því árum saman vegna milli­færsl­unnar á millj­örð­unum þremur. Þyngst vó í ákvörðun sak­sókn­ara um að kæra ekki sú stað­reynd að tveir hæsta­rétt­ar­dómar hafa fallið þar sem fall­ist er á Fons hafi verið gjald­fært og með góða eig­in­fjár­stöðu allt fram að efna­hags­hrun­inu. Þau for­dæmi sem fyrir liggi í hæsta­rétt­ar­dómunum skapi „raun­hæfa varnar­á­stæðu“ fyrir gjörn­ingnum og því meti emb­ættið sem svo að minni líkur sé á því að sak­fell­ing fáist í mál­inu en að menn­irnir yrðu sýkn­aðir.

Óskar Sig­urðs­son, skipta­stjóri Fons, óskaði eftir rök­stuðn­ingnum og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá honum er hann nú með málið til skoð­unar. Unnt er að kæra ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara um að ákæra ekki í mál­inu til rík­is­sak­sókn­ara innan mán­aðar frá því að sú ákvörðun liggur fyrir. Kjarninn hefur rök­stuðn­ing­inn, sem er ítar­legur, undir höndum. Hann er hægt að lesa hér.

Þrír með réttarstöðu sakbornings til enda

Fons varð gjald­þrota snemma árs 2009. Kröfur í búið námu um 40 millj­örðum króna, þótt þær hafi ekki allar verið sam­þykkt­ar. Skiptum á búinu er ekki lokið og því ekki ljóst hvað fæst upp í lýstar kröfur í búið. Fyrir liggur þó að lítið brot af þeim kröfum sem lýst var í búið fást greiddar.

Menn­irnir þrír sem höfðu rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu voru Hannes Þór Smárason, fyrrum for­stjóri FL Group og umsvifa­mik­ill fjár­festir á árum áður, Pálmi Har­alds­son, fyrrum aðal­eig­andi Fons, og Þor­steinn Ólafsson, nú fram­kvæmda­stjóri Arena Wealth Mana­gement í Lúx­em­borg en áður starfs­maður Lands­bank­ans þar í landi. Þor­steinn var grun­aður um hlut­deild í brotum Hannesar og Pálma.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að hér­aðs­sak­sókn­ari hefði ákveðið að ákæra menn­ina ekki. Samkvæmt rök­stuðn­ingnum var sú ákvörðun tekin vegna þess að minni líkur þóttu til þess að fá menn­ina sak­fellda en taldar voru á sýknu þeirra. Tveir aðrir menn, sem sátu í stjórn Fons, voru líka með rétt­ar­stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins á upp­hafs­stigum hennar. Fljót­lega leiddi rann­sókn þó í ljós að þeir höfðu ekki raun­hæfa vit­neskju um fjár­magns­flutn­ing­anna sem um ræðir. Pálmi Har­alds­son tók ákvörðun um þá ein­sam­all sam­kvæmt því sem fram kemur í rök­stuðn­ingnum.

Eitt þekktasta „hrunmálið“

Pace-málið er á meðal þekkt­ustu „hrun­mál­anna“. Alls hafa verið sagðar hátt í hund­rað fréttir þar sem minnst er á málið í íslenskum fjöl­miðlum frá byrjun árs 2010 og fram til dags­ins í dag. Málið komst fyrst upp á yfir­borðið þegar slitabú Fons fór að rann­saka hvað hefði orðið um þrjá millj­arða króna sem milli­færðir höfðu verið af reikn­ingum félags­ins í apríl 2007 og inn á banka­reikn­ing í eigu panamska félags­ins Pace Associates, sem var í umsýslu aflands­fé­laga­veit­unar Mossack Fonseca. Það var ekki síst aflands­hluti máls­ins sem vakti mik­inn áhuga á því. Og sú leynd sem hvíldi yfir því hvaða ein­stak­lingur eða ein­stak­lingar áttu aflands­fé­lagið sem tók við pen­ing­unum.

Panamska lögfræðistofan Mossack Fonseca sérhæfir sig í vörslu aflandsfélaga. Stofan stofnaði og hélt utan um Pace Associates fyrir Hannes Smárason.
Panamska lög­fræði­stofan Mossack Fonseca sér­hæfir sig í vörslu aflands­fé­laga. Stofan stofn­aði og hélt utan um Pace Associates fyrir Hannes Smárason.

Slita­búið hafði nefni­lega engar upp­lýs­ingar um af hverju pen­ing­arnir hefðu verið milli­færðir né hver væri eig­andi Pace, sem tók við pen­ing­unum. Það vakti enn fremur furðu að gjörn­ing­ur­inn var ekki færður end­an­lega í bók­hald Fons fyrr en rúmu ári eftir að hann átti sér stað, eða í júlí 2008. Þá var hann færður inn sem lán og það lán afskrifað sam­hliða án útskýr­inga. Skipta­stóri bús Fons kærði málið til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, sem nú heitir hér­aðs­sak­sókn­ari, í nóv­em­ber 2010. Skömmu síðar hófst form­leg rann­sókn. Að hans mati áttu millj­arð­arnir þrír að fara til kröfu­hafa Fons, sem fá lítið sem ekk­ert upp í him­in­háar kröfur sínar, en ekki til Pace.

Pálmi segist hafa verið blekktur

Í rök­stuðn­ingi sak­sókn­ara fyrir að ákæra ekki í mál­inu er það reifað nokkuð ítar­lega, og mörgum spurn­ingum sem lengi hefur verið ósvarað, er svarað. Þar segir að mikil lausa­tök hafi ein­kennt umræddan fjár­magns­flutn­ing. Lengi vel hafi verið óljóst sam­kvæmt bók­haldi Fons hvort að um hafi verið að ræða fjár­fest­ingu eða lán. Sak­sókn­ar­inn sem skrifar rök­stuðn­ing­inn segir þetta vera óvenju­legt, svo vægt sé til orða tekið, sér­stak­lega þar sem um sé að ræða „ráð­stöfun á gríð­ar­miklum fjár­munum félags­ins“. Þessi lausa­tök virð­ast þó hafa gert sak­sókn­ara erf­ið­ara fyrir en ella að ákæra í mál­inu. Hluti af mál­flutn­ingi hans myndi þá þurfa að fel­ast í því að sanna hvað gjörn­ing­ur­inn væri, þ.e. hvort hann væri fjár­fest­ing eða lán.

Pálmi Har­alds­son stýrði öllu sem hann vildi stýra innan Fons og afar óform­legt skipu­lag var á stjórn félags­ins. Hann var grun­aður um að hafa framið umboðs­svik eða að hafa dregið að sér fé með aðkomu sinni að flutn­ingi á millj­örð­unum þremur til Pace.

Fram­burður Pálma við yfir­heyrslur sak­sókn­ara þótti „óljós“. Í meg­in­at­riðum útskýrði hann málið þannig að pen­ing­arnir hefðu verið lán­aðir til Pace út af fjár­fest­inga­verk­efni á Indlandi, sem tengd­ist kaupum á fast­eignum. Magnús Ármann, þekktur fjár­festir, var for­göngu­maður þess verk­efnis. Í fram­burði Pálma kom hins vegar afdrátt­ar­laust fram að „hann hafi ekki haft vit­neskju um hvernig þeirri fjár­hæð sem barst Pace frá Fons hafi að end­ingu verið ráð­stafað“. Þegar Pálma voru kynnt gögn sem sýndu að fénu hefði ekki verið ráð­stafað nema að hluta til fjár­fest­inga­verk­efn­is­ins á Indlandi bar hann ítrekað fyrir sig að „svo líti út að hann hefði verið blekktur“.

Pálmi gekkst við því við yfir­heyrslur að hafa tekið ákvörðun um að afskrifa lánið í bókum Fons en skýrði for­sendur þeirrar ákvörð­unar ekki að neinu marki. Svo virð­ist sem að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg, þar sem Þor­steinn Ólafsson starf­aði fyrir hrun, hafi veitt Pálma upp­lýs­ingar um að lánið væri tapað og að hann hafi metið allar þær upp­lýs­ingar réttar. Við rann­sókn máls­ins hafi hins vegar ekk­ert komið fram sem studdi þær upp­lýs­ingar, né heldur sem dró úr trú­verð­ug­leika þeirra.

Pálmi sagði þó ítrekað við yfir­heyrslur að lán­veit­ingin til Pace hafi verið við­skipta­legs eðlis. Fons hefði staðið mjög vel á þessum tíma og átt mikið laust fé. Því fé hafi hann viljað koma í ávöxtun með ein­hverjum hætti. Vel mætti efast um að lán­veit­ingin hafi verið rétt ákvörðun og „hann hefði lík­lega betur sleppt því.“ Þetta hafi því verið umdeil­an­leg eða slæm við­skipta­á­kvörðun, en ekki glæpur.

Hæstaréttardómar vógu þyngst gegn saksókn

Eitt þeirra atriða sem vó þyngst í ákvörðun sak­sókn­ara að ákæra ekki menn­ina var sú stað­reynd að fyrir liggja tveir hæsta­rétt­ar­dómar frá árinu 2013 í rift­un­ar­málum gegn Pálma og fleirum þar sem nið­ur­stöður mats­gerða dóm­kvaddra mats­manna um „gjald­færni og góða eig­in­fjár­stöðu Fons hf. allt fram að efna­hags­hrun­inu í byrjun októ­ber 2008“.

Pace málið var kært til embættis sérstaks saksóknara, sem nú heitir héraðssaksóknari, í nóvember 2010.
Pace málið var kært til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, sem nú heitir hér­aðs­sak­sókn­ari, í nóv­em­ber 2010.

Í rök­stuðn­ingi sak­sókn­ara segir: „Meðal ann­ars með hlið­sjón af þeim for­dæmum Hæsta­réttar, og að öðru leyti því sem ráða má af gögnum máls­ins um fjár­hags­stöðu Fons hf. á þessum tíma, telur emb­ættið að hvað sem öllu líður væri hér um að ræða raun­hæfa varnar­á­stæðu af hálfu PH [Pálma Har­alds­sonar] í hugs­an­legu saka­máli út af þessum sak­ar­giftum[...]Að virtum fram­an­greindum atriðum var nið­ur­staða emb­ætt­is­ins um þessi ætl­uðu brot að enda þótt færa mætti rök fyrir að til­tekin hug­taks­skil­yrði umboðs­svika­á­kvæð­is­ins væru upp­fyllt yrði engu að síður að leggja til grund­vallar að á skorti[...]að það sem fram væri komið í mál­inu gæti talist nægi­legt eða lík­legt til sak­fellis að virtum öðrum refsiskil­yrðum“.

Hannes átti Pace

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara rann­sak­aði Hannes Þór Smárason vegna gruns um pen­inga­þvætti, ætluð fjár­svik og ætluð skila­svik. Fljót­lega þótti pen­inga­þvætt­is­sak­ar­efnið ekki raun­hæft til nán­ari íhug­unar og því var ein­blínt á hin sak­ar­efnin við rann­sókn máls­ins. Lengi hafa verið get­gátur um hverjir eig­endur Pace hefðu verið og margir þar nefndir til sög­unnar. Í síð­ustu viku fékkst í fyrsta sinn stað­fest, með stuðn­ingi úr Panama­skjöl­unum sem lekið var frá Mossack Fonseca, að Hannes hafi verið með pró­kúru í félag­inu og því getað ráð­stafað fjár­munum þess. Í rök­stuðn­ingi sak­sókn­ara er end­an­lega stað­fest, með vísun í gögn, að Hannes var end­an­legur eig­andi Pace.

Í rök­stuðn­ingnum kemur fram að við rann­sókn máls­ins hafi emb­ættið kom­ist yfir banka­gögn frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg, meðal ann­ars yfir­lit reikn­inga Pace og þess háttar gögn, sem aflað var með hús­leitum í Lúx­em­borg. Auk þess voru á meðal gagna máls­ins tölvu­póst­sam­skipti milli Hannesar og Þor­steins Ólafs­sonar og fleiri, „sem sýna ákvörð­un­ar­töku um ráð­stöfun fjár af reikn­ingum Pace sem reikn­ings­yf­ir­litin end­ur­spegla“. Í kjöl­farið er skýrt frá því að Hannes hafi sann­ar­lega ráð­stafað þeim þremur millj­örðum króna sem Fons lán­aði til Pace. 900 millj­ónir króna fór inn á reikn­ing aflands­fé­lags í eigu Magnúsar Ármann vegna þátt­töku Hannesar í fast­eigna­verk­efni í Indlandi en að öðru leyti var fjár­mun­unum ráð­stafað „að stærstum hluta til hluta­bréfa­við­skipta erlendis fyrir reikn­ing Pace eða ann­ars með öðrum hætti í eigin þágu, annað hvort þá með greiðslu per­sónu­legra skuld­bind­inga eða beinum greiðslum til hans eða náinna tengsla­manna eða hins vegar með beinum greiðslum til inn­lendra og erlendra félaga á hans vegum.“ Ekki er greint sér­stak­lega frá því hvaða nánu tengsla­menn Hannesar fengu hluta af greiðslum Pace til sín.

Í rök­stuðn­ingi sak­sókn­ara segir að skipta­stjóri Fons geti fengið aðgang að þessum gögnum, sem aflað var með hús­leit í Lúx­em­borg og sýna fram á ráð­stöfun millj­arð­anna þriggja, ef hann vilji, en skipta­stjór­inn gæti reynt að end­ur­heimta féð í einka­máli. Ekki verði þó hægt að ákæra Hannes fyrir að þiggja lán né fyrir að ráð­stafa því með þeim hætti sem gert var, enda voru lausa­tök við lán­veit­ing­una slík að hún var alls ekk­ert form­lega bundin með samn­ingi við það að pen­ing­arnir röt­uðu í eitt frekar en annað.

Hannes fékkst ekki til að skýra hvernig hann ráð­staf­aði fénu né af hverju. Hann fékkst raunar ekki til að tjá sig neitt vegna þess að hann nýtti sér rétt sinn við skýrslu­töku að tjá sig ekki um sak­ar­giftir á hendur sér. Það sama gerði Þor­steinn Ólafsson.

Allar sak­ar­giftir á hendur Þor­steini voru reistar á því að hann hefði átti hlut­deild í meintum brotum Hannesar og Pálma. Þegar fyrir lá ákvörðun um að þeir yrðu ekki ákærðir gat ekki verið um neina hlut­deild­ar­á­byrgð af hálfu Þor­steins að ræða. Því féll sak­sókn á hendur honum eðli­lega niður sam­hliða ákvörðun um að sak­sækja ekki Hannes og Pálma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár