Ekki ákært í Pace-málinu - Hannes Smárason var með prokúru

Reykja­vík Media hefur birt gögn sem sýna að Hannes Smárason var með pró­kúru í Pace. Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákveðið að ákæra ekki í mál­inu eftir margra ára rann­sókn.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákveðið að ákæra ekki í svoköll­uðu Pace-máli. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá emb­ætt­inu. Rann­sókn á mál­inu, sem snýst um þriggja millj­arða króna lán­veit­ingu frá íslenska fjár­fest­inga­fé­lag­inu Fons, þá í eig­u ­at­hafna­mann­anna Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar, til­ ­panamska fé­lags­ins Pace Associ­ates í apríl 2007 hefur staðið yfir árum sam­an. Sam­kvæmt frétta­flutn­ingi DV og RÚV árið 2010 runnu millj­arð­arnir þrír að end­ingu í vasa Pálma og athafna­mann­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Hann­esar Smára­son­ar. Þeir hafa ætið neitað því.

Upp­lýs­ingar um Pace Associates Corp. er að finna í Panama­skjöl­unum. Reykja­vik Media hefur birt frétt þar sem fram kemur að Hannes hafi verið með pró­kúru í félag­inu þegar það fékk þriggja millj­arða króna lán frá Fons eign­ar­halds­fé­lagi árið 2007. Pace fékk einnig 50 millj­óna evra lán frá Lands­bank­anum gegn veði í hluta­bréfum í félag­inu sjálfu, sam­kvæmt frétt­inni. Í skjöl­unum kemur hins vegar ekki fram hverjir end­an­legir eig­endur Pace voru.

Fjöl­miðlaum­fjöll­un ­fyrir sex árum síðan

Félagið Pace var mikið til umfjöll­unar í íslenskum ­fjöl­miðlum árið 2010. Þá fjall­aði DV um það í tengslum við þriggja millj­arða króna lán­veit­ingu fjár­fest­inga­fé­lags­ins ­Fons, þá í eigu athafna­mann­anna Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar, til Pace Associ­ates í apríl 2007.

RÚV sagði fréttir af því árið 2010 að pen­ing­arnir sem lán­aðir voru til Pace hafi á end­anum runnið í vasa Pálma, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Hann­esar Smára­son­ar. Lána­við­skipt­in ­fóru fram í gegnum Lands­banka Íslands í Lúx­em­borg, en sá banki var í miklu­m við­skiptum við lög­fræði­stof­una Mossack Fon­seca í Panama um stofn­un aflands­fé­laga. Í frétt­inni sagði að lána­samn­ing­ur­inn hafi verið útbú­inn sex ­dögum eftir að milli­færsla fjár­hæð­ar­innar átti sér stað og um hafi verið að ræða svo­kallað kúlu­lán þar sem öll fjár­hæðin var á gjald­daga þremur árum eft­ir ­gerð lána­samn­ings­ins. Í frétt­inni var enn fremur sagt frá því að sama dag og ­gengið var frá lána­samn­ingn­um, þremur árum fyrir gjaldaga, hafi lánið í heild verið afskrifað í bók­haldi Fons.

Höfð­uðu meið­yrða­mál og unnu

Jón Ásgeir og Pálmi höfð­uðu meið­yrða­mál gegn frétta­mann­inum sem sagði frétt­ina og unnu þau á end­anum fyrir Hæsta­rétti. Frétta­mað­ur­inn, Svavar Hall­dórs­son, sagði í Face­book-­stöðu­upp­færslu í kjöl­far dóms í mál­inu sem Jón Ásgeir höfð­aði: „Fréttin er sönn, til eru ­gögn fyrir öllum efn­is­at­riðum umræddrar við­skiptafléttu og málið er til­ ­rann­sóknar á fleiri en einum stað í kerf­inu (eins og stað­fest er í yfir­lýs­ing­u ­Sér­staks sak­sókn­ara). Sá hluti frétt­ar­innar sem fjall­aði um hvernig yfir­völd ­töldu raun­veru­lega í pott­inn búið, byggð­ist hins vegar á trún­að­ar­upp­lýs­ing­um frá heim­ild­ar­mönnum sem ekki geta komið fram. Þeirra trún­aði mun ég ekki bregð­ast! Jóni Ásgeiri tókst engan vegin að sýna fram á að neitt rangt við frétt­ina – enda er þetta allt rétt."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár