Hlutfallslega flest sjálfsvíg á Vestfjörðum á síðasta ári

Hlut­falls­lega tóku flestir eigið líf á Vest­fjörðum árið 2017 en flest sjálfs­víg miðað við íbúa­fjölda síð­ustu tíu ár hafa verið framin á Suð­ur­nesjum. Óttar Guð­munds­son segir erfitt að segja til um hvað valdi sveiflum í tíðni sjálfs­víga milli ára.

Nokkur vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið á hinum ýmsu geð­sjúk­dómum í íslensku sam­fé­lagi á síð­ustu árum og ára­tugum en enn ger­ist það að fólk sér ekki aðra leið út úr van­líð­an­inni en að taka eigið líf. Þegar tölur er skoð­aðar má sjá sveiflur milli ára eftir aldri, búsetu og kyni. Óttar Guð­munds­son geð­læknir segir ýmsar skýr­ingar geta legið að baki þessum sveiflum á Íslandi og sé engin skýr­ing endi­lega betri en önnur.

Tenging milli áfengisneyslu og sjálfsvíga

Samkvæmt tölum, sem Embætti land­læknis hefur tekið saman, er mik­ill munur á milli hversu margir karl­menn og konur fremja sjálfs­víg. Í fyrra frömdu til að mynda 32 karl­menn sjálfs­víg en 2 konur. Þess má geta að sam­kvæmt tölum lög­reglu voru framin 40 sjálfs­víg árið 2017 en 6 af þeim voru útlend­ingar sem unnu í mjög skamman tíma á land­inu og/eða voru ferða­menn. Þeir telj­ast ekki í dán­ar­meina­skrá þar sem þeir telj­ast hjá heima­landi sínu.

En hvaða ástæður gætu legið að baki þessum gríð­ar­lega mun milli kynj­anna? „Það virð­ist vera að karl­mönnum líði verr með sjálfa sig,“ segir Óttar og bætir því við að þeir geti verið hvat­vís­ari og beiti agressí­vari aðferðum en konur. Hann segir að þeir drekki sömu­leiðis meira og verði fyllri. Hann bendir á að teng­ing sé á milli sjálfs­víga og áfeng­is­neyslu og að karl­menn séu lík­legri til að drekka ofan í mikið þung­lyndi.

[adspot]

Ungir karlmenn í áhættuhópi

Óttar hefur áhyggjur af ungum mönn­unum og þrátt fyrir að öfl­ugt for­varn­ar­starf hafi verið unnið á síð­ast­liðnum árum þá séu þeir í áhættu­hópi. Óttar bendir á að ungar konur séu mun ólík­legri til að taka eigið líf og séu það hugs­an­leg merki þess að þeim líði ekki eins illa og drengj­unum. Þeir hafi nei­kvæðar til­finn­ingar gagn­vart sjálfum sér sem teng­ist oft neyslu og von­leysi. „Svo virð­ist sem strákum líði verr. Stelpum gengur betur í skóla og virð­ist ganga betur í líf­inu í dag,“ segir hann. Enn fremur eigi strákar erf­ið­ara með að tala um til­finn­ingar sínar.

[quote font="0" align="right“]Stelpum gengur betur í skóla og virð­ist ganga betur í líf­inu í dag.[/quote]

Óttar segir að stúlkur eða konur eigi það aftur á móti frekar til að gera sjálfs­vígstil­raunir sem séu hróp á hjálp og að það sama eigi við um sjálfs­skaða.

Öll for­vörn er af hinu góða, að mati Óttars, þar sem strákar eru hvattir til að segja hug sinn. Hann bendir á að sjálfs­vígs­tíðni hafi minnkað eilítið síð­ustu ár þrátt fyrir að auð­vitað sé erfitt að segja til um beint orsaka­sam­hengi þar á milli.

Sveiflur tilviljunarkenndar

Nokkrar sveiflur eru milli síð­ustu tveggja ára hvað varðar sjálfs­víg en þær hafa þó aldrei farið yfir 50 eða niður fyrir 26. Svipað hefur verið uppi á ten­ingnum síð­ustu tíu ár. Óttar segir að hann myndi vilja sjá töl­urnar lækka enn frekar.

Þegar hann er spurður út í ástæður fyrir þessum sveiflum segir hann þær vera til­vilj­un­ar­kenndar og að ekki sé hægt að draga neinar álykt­anir varð­andi þær. Þó sé hægt að sjá ákveðin mynstur og vonar hann að for­varnir beri árangur.

Söfnun upplýsinga mikilvæg fyrir forvarnir

Mesta aukn­ingin hefur verið á Vest­fjörðum en eins og áður segir voru flest sjálfs­víg þar á síð­asta ári. Þetta er þó heldur óvenju­legt þar sem sjálfs­vígs­tíðnin hefur ekki verið há þar hingað til. Óttari bendir á að lítið þurfi að aukast til að sveiflur fari að sjást. „Það eru engar skýr­ingar á þessu,“ segir hann og erfitt sé að segja til um hvað þessar tölur þýði. Hvort þetta sé var­an­legt eða ein­ungis tíma­bundið og til­vilj­unum háð.

[quote font="0" align="right“]Það skiptir öllu máli að vita hvað við höfum milli hand­anna. Við getum ekki beitt for­vörnum nema vita hvert við eigum að beina þeim.[/quote]

Óttar segir að miklu máli skipti að halda vel utan um tölur af þessu tagi því þá sé hægt að gera sér betur grein fyrir vanda­mál­inu. „Það skiptir öllu máli að vita hvað við höfum milli hand­anna. Við getum ekki beitt for­vörnum nema vita hvert við eigum að beina þeim,“ segir hann. Með því að reyna að átta sig á hvaða hóp verið er að tala um og hvernig eigi að ná til hans þá sé hægt að gera ráð­staf­anir til þess að koma í veg fyrir sjálfs­víg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár