Trilljónir, já, trilljónir villuráfandi reikistjarna í Vetrarbrautinni: Gætu þær hýst líf?

Vís­inda­menn sem rann­sök­uðu fjölda reiki­stjarna sem villst hafa frá sól­kerfum sínum eru sjálfir stand­andi hlessa á nið­ur­stöð­unum.

Úti í auðninni, langt frá sólu.
Úti í auðn­inni, langt frá sólu. Myndin er af vef­síð­unni WIONEWS.

Sólkerfi: Sól­stjarna, ein eða tvær, og í einu til­felli sem við vitum um: þrjár.

Og svo reiki­stjörnur sem snú­ast um sól­ina eða sól­irnar.

Það er ekki nema 31 ár síðan við fundum fyrstu reiki­stjörn­una utan okkar eigin sól­kerfis. Síðan höfum við fundið — með fullri vissu — fimm þús­und í við­bót en vitum að þær eru miklu fleiri.

Miklu, miklu fleiri.

Já, það er eig­in­lega orðið alveg ljóst að lang­flestar sólir hafa að minnsta kosti einn fylgi­hnött.

Reiki­stjörnu.

Og margar sólir hafa miklu fleiri reiki­stjörnur en eina.

Nú, sólin okkar hefur jú átta — og svo ýmis­legt smá­dót: Pluto, Eris, Ceres, Sednu, og svo fram­vegis.

Og þar sem sól­irnar í Vetr­ar­braut­inni okkar gætu verið allt að 400 millj­arðar, þá er ljóst að reiki­stjörn­urnar sem snú­ast umhverfis þær gætu verið ansi margar.

En nú eru vís­inda­menn, sem aldrei geta látið sér nægja fróð­leik­inn frá í gær, búnir að upp­götva dálítið nýtt í þessu sam­bandi.

Inn á milli hinna til þess að gera snyrti­legu sól­kerfa, þar sem reiki­stjörnur snú­ast sinn eilífa hring kringum sínar lang­lífu sólir, þar reyn­ast nú vera ... ekki millj­ónir, ekki millj­arðar, heldur, já, hvorki meira né minna en trilljónir reiki­stjarna sem eiga sér enga sól.

Sem sveima villu­ráf­andi um nið­dimmar óra­víð­átt­urnar milli sól­kerf­anna í Vetr­ar­braut okkar í fimb­ulkulda og algerri ein­semd.

Ef ein­hver stæði á yfir­borði slíkrar reiki­stjörnu myndi hann ekki sjá neina sól rísa yfir sjón­deild­ar­hring­inn, og sól­ina aldrei setj­ast, því það væri engin sól.

Þessi „ein­hver“ sæi vissu­lega stjörnur í fjarska en gæti ekki einu sinni látið sér detta í hug að þetta væru fjar­lægar sólir af þeirri ein­földu ástæðu að hann gæti aldrei ímyndað sér að sólir væru til, né hvað slík fyr­ir­brigði væru.

Ein­mana­legt líf — ef það er þá mögu­legt.

Vís­inda­menn hafa raunar lengi vitað að reiki­stjörnur kynnu að vera á flæk­ingi í dimm­unni milli sól­kerfa. Þeir héldu hins vegar að slíkt væri sjald­gæft og slíkar flökku­plánetur hlytu að vera fyrst og fremst stórir gas­risar rétt eins og Júpíter og Satúrnus í okkar sól­kerfi.

Minni reiki­stjörnur hefðu alls ekki nægan massa til að slíta sig frá aðdrátt­ar­afli sólar sinnar og leggja í ein­mana­legt ferða­lag um auðn­irnar.

En nú er sem sagt komið í ljós að þetta álit stenst ekki.

Með því að mæla hliðrun á ljósi frá óvið­kom­andi sól­stjörnum hefur komið í ljós í fyrsta lagi að þessar villu­ráf­andi reiki­stjörnur eru alls ekki fáar.

Þvert á móti.

Það virð­ist vera ótölu­legur grúi þeirra á vafri í myrkr­inu.

Trilljónir og aftur trilljónir, já, það er sem sagt nýja nið­ur­staðan.

Og í öðru lagi — þá virð­ist alls ekki fyrst og fremst um að ræða gas­risa.

Stór meiri­hluti virð­ist vera „litlar“ kletta­plánetur á borð við Jörðina.

En hvernig hafa þær lent þarna út í auðn­inni, svona sól­ar­lausar með öllu?

Jú, vís­inda­menn eru enn á því að reiki­stjörnur mynd­ist aðeins í kringum nýjar sólir. Ryk og alls­konar efn­isagnir sem verða „afgangs“ þegar ný sól verður til þétt­ist og þétt­ist, uns ný reiki­stjarna er orðin til.

Á „æsku­árum“ nýs sól­kerfis gengur oft mikið á. Fjöldinn allur af stórum og smáum reiki­stjörnum er á sveimi. Oftast er litlu kletta­plánet­urnar nærri sól­inni en gas­risarnir fjær.

Svo verður allt vit­laust.

Litlu reiki­stjörn­urnar reyn­ast stundum, já, lík­lega oft, vera alltof margar.

Þær rekast á eða hrinda hver annarri af braut sinni með stór­hættu­legu skransi og fót­skriðum á alla kanta.

Þetta vitum við að gerð­ist í sól­kerf­inu okkar.

Reiki­stjarna á stærð við Mars rakst á Jörðina þegar sól­kerfið var til­tölu­lega nýorðið til.

Hún eydd­ist en ruslið úr henni mynd­aði að lokum Tunglið.

Jörðin stór­skadd­að­ist en lifði árekst­ur­inn af.

Afrakstur árekst­urs­ins er senni­lega sú gíf­ur­lega innri virkni Jarð­ar­innar þar sem allt er enn gló­andi eftir ham­far­irnar og við sjáum í hvert sinn sem eld­gos verður.

En ef þessi reiki­stjarna hefði verið ögn stærri, þá gæti verið að Jörðin hefði ekki hald­ist á braut sinni heldur þeyst út úr sól­kerf­inu.

Og stundum fara gas­risarnir í fjarska að drag­ast nær sól­stjörnu sinni og þungi þeirra þá svo mik­ill og aðdrátt­ar­aflið svo sterkt að kletta­plánet­urnar hend­ast hingað og þangað.

Og sumar — já, lík­lega margar — enda­send­ast þá beina leið út úr sól­kerf­inu.

Vís­inda­menn­irnir sem skilað hafa þessum rann­sóknum við­ur­kenna sjálfir að þeir eru alveg hissa á því sem þeir upp­götv­uðu.

Eig­in­lega alveg þrumu lostnir.

Þá óraði ekki fyrir því hve margar þessu dimmu ein­mana plánetur virð­ast vera.

Þær eru nú taldar vera sex sinnum fleiri en „venju­legar“ reiki­stjörnur sem enn húka heima í hlýj­unni hjá mömmu.

Sex sinnum fleiri!

Kannski yfir­gáfu ein­hverjar tví­bura­systur Jarð­ar­innar sól­kerfið okkar í árdaga og eru nú útí myrkr­inu, týndar.

Og munu aldrei snúa aftur.

Hugs­an­lega mun aðdrátt­ar­afl fjar­lægrar sólar í fjar­lægri fram­tíð ein­hvern tíma fanga þær og soga þær til sín, en það er raunar ólík­legt að þær muni lifa slíkt af.

Þær hefðu ekki tóm til að koma sér á snyrti­lega braut um þessu nýju sól, því hún myndi nærri áreið­an­lega bara gleypa þær með húð og hári.

En lang­flestar reiki­stjörn­urnar munu sem sé sveima um myrkrið til eilífð­ar­nóns.

Líf­lausar.

Eða hvað?

Getur nokk­urt líf kviknað á svona sól­ar­lausum reiki­störnum?

Var það ekki blessuð sólin sem kveikti lífið á Jörðinni og getur nokk­urt líf kviknað á reiki­stjörnu þar sem engin sól rís og vermir?

Það er nefni­lega það.

Það er víst ekki alveg óhugs­andi að líf gæti kviknað á reiki­stjörnum sem eru á ferð milli sól­kerfa.

Sumt líf á Jörðinni virð­ist ekki hafa kviknað fyrir áhrif frá Sólinni okkar.

Og það er til líf sem þarf ekki sól­ar­ljós til að skrimta.

Djúpt oní bergi — lengst lengst oní sjónum, þar eru til líf­verur sem lifa á hit­anum sem streymir upp frá gló­andi berg­kvik­unni í iðrum Jarðar.

Það er kannski ekki mik­ill hiti (áður en komið er niður í berg­kvik­una sjálfa) en hann virð­ist duga.

Svo reiki­stjarna með gló­andi innri kjarna, eins og Jörðin, hún gæti mögu­lega hýst líf.

Það er kannski ekki lík­legt og það yrði áreið­an­lega ekki flókið líf — en það er ekki úti­lokað.

Og eins og við vitum, þá er alltaf best að úti­loka ekki það sem er ekki úti­lokað.

Það gætu fund­ist merki um það á morgun, eða hinn.

Eða seinni part­inn í næstu viku.

Nógu margar virð­ist reiki­stjörn­urnar á dimmu flakk­inu vera.

Trilljónir, já, og aftur trilljónir.

Bara í Vetr­ar­braut­inni okkar.

Leiðum ekki einu sinni hug­ann að öllum hinum stjörnu­þok­unum.

Og skyldu svona föru­plánetur kannski vera á ferð­inni milli stjörnu­þokanna líka?

Svo fjöld­inn er nægur til að töl­fræði­lega sé ekki óhugs­andi að líf ... já, að líf gæti kviknað.

En ansi má það vera ein­semd­ar­legt líf sem á slíkri plánetu þrífst.

* * *

Hér skrifar New York Times um þessar nýju nið­ur­stöður.

Og hér Forbes.

Hér eru svo rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­urnar sjálfar.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér finnst orðið trilljón notað grunsamlega oft. Mjög oft er þetta orð notað vegna misskilngins á ensku. Enskan þekkir ekki orðið milljarður, í staðinn nota amerikanar orðið billjón fyrir 1 með 9 núllum og 1 með 12 núllum er fyrir þá ein trilljón. Í alþjóðasamfélaginu talað um 1 með 6 núllum sem miljón 1 með 9 núllum sem miljarð og 1 með 12 núllum sem billjón. 1 með 18 núllum er þá trilljón. Trilljón er sem sagt mjög stór tala.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár