Álagsgreiðsla fyrir 170 vinnustundir í miðjum faraldri „niðurlægjandi“

„Ég gaf mig alla í þetta, gekk mjög nærri sjálfri mér í vinnu við þessar þessar ótrú­lega erf­iðu aðstæður,“ segir svæf­ing­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem finnst upp­hæð álags­greiðslu vegna starfa í bak­varða­sveit og á gjör­gæslu van­virða hennar fram­lag.

„Þetta var eins og að fá kalda vatns­gusu í and­litið,“ segir Arna Rut O. Gunn­ars­dóttir um augna­blikið þegar hún komst að því að fyrir yfir 170 klukku­stunda vinnu á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans – á mesta álags­tíma í far­aldri COVID-19 – fékk hún greiddar 26.938 krónur í álags­greiðslu frá rík­inu. Greiðslan er skatt­skyld og munu því rétt rúmar 16 þús­und krónur koma í hlut Örnu.

Hún seg­ist hafa horft lengi á töl­una og hugsað: Hvað er þetta eig­in­lega? Sér­stak­lega í ljósi þess að hún hafði heyrt að starfs­fólk Land­spít­al­ans, sem hefði komið beint að þjón­ustu við COVID-sjúk­linga, gæti fengið allt að 250 þús­und krónur í umbun vegna álags­ins.

En Arna er ekki fastur starfs­maður. Og hún innti sína vinnu - í rúm­lega 170 klukku­stundir – af hendi á nokkrum vikum í apríl þegar álagið var gríð­ar­legt á gjör­gæslu­deild­inni. Þangað kom hún til starfa í gegnum bak­varða­sveit heil­brigð­is­starfs­fólks – sveitar sem sett var saman til að heil­brigð­is­stofn­anir lands­ins færu ekki á hlið­ina út af álagi. Sveitar sem hlaut mikið lof fyrir sín störf.

[adspot]

Arna er menntuð í svæf­ing­ar­hjúkrun. Hún vann í mörg ár á sjúkra­hús­inu á Akureyri en skipti um starfs­vett­vang árið 2018. Vegna sér­þekk­ingar hennar var henni tekið fagn­andi er hún bauð fram krafta sína í bak­varða­sveit­ina. Hún er búsett á Akureyri ásamt fjöl­skyldu sinni; eig­in­manni og fjórum sonum.

[links]Hún taldi það ekki eftir sér að fljúga suður og taka tíu vaktir á gjör­gæslu­deild­inni á níu dögum. Fara svo í stutt vakta­hlé til Akur­eyrar en svo aftur suður um pásk­ana til að sinna alvar­lega veikum COVID-sjúk­lingum. „Þegar ég fór heim aftur eftir pásk­ana þá var ástandið á deild­inni farið að róast,“ rifjar Arna upp. „Spít­al­inn ætl­aði að hringja ef að það yrði þörf á mér aftur en það kom ekki til þess.“

Í miðjum far­aldr­inum var þegar farið að ræða um það að greiða heil­brigð­is­starfs­fólki sér­staka umbun vegna álags­ins. Einn millj­arður króna var svo settur inn í fjár­auka­lög og átti hann að greiða því starfs­fólki sem stóð í fram­lín­unni í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Ákveðið var að 750 millj­ónir myndu renna til starfs­manna Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri en afgang­ur­inn til heilsu­gæsl­unnar og ann­arra heil­brigð­is­stofn­ana í land­inu.

Miðað við viðveru starfsmanna í mars og apríl

Síðar til­kynnti Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, að allt starfs­fólk sjúkra­húss­ins fengi greitt vegna álags­ins en mis­mikið eftir því á hvaða deildum það vinnur. Og á hvaða tíma. Þannig var ákveðið að upp­hæðin færi eftir við­veru starfs­manns í mars og apríl.

„Ég heyrði þessar fréttir og hugs­aði svo sem ekk­ert mikið út í þetta. Ég vissi að hvað hver og einn myndi fá yrði útfærslu­at­riði,“ segir Arna. „En svo fór ég að sjá umræðu á Facebook í gær­kvöldi frá bak­vörðum sem fannst upp­hæðin sem þeir fengu skrítin.“

Einn bak­vörð­ur­inn, kona sem hafði komið fyrr úr fæð­ing­ar­or­lofi til aðstoðar á gjör­gæslu­deild­inni, fékk svo dæmi sé tekið 6.775 krónur í umbun. Eftir skatt fær hún 1.094 krónur í sinn hlut.

Fleiri svip­aðar sögur fóru að heyr­ast.

„Þá fór ég að kíkja hvort ég hefði fengið sendan launa­seðil. Hann var kom­inn og þar stendur ein­fald­lega: Launa­upp­bót A: 26.938 krónur. Útborgað: 16.100,“ segir Arna.

Hún seg­ist hafa farið að skoða málið og telur skýr­ing­una á þessum lágu greiðslum fel­ast í því að umbunin er reiknuð út frá föstu starfs­hlut­falli í mars og apríl, en bak­verðir eru fæstir með fast­ráðn­ingu heldur var gert við þá tíma­vinnu­samn­ingur. Þannig virð­ist launa­upp­bótin ekki end­ur­spegla vinnu­fram­lag starfs­manna með neinum hætti, heldur ein­göngu ráðn­inga­sam­band þeirra til Land­spít­al­ans þessa tvo mán­uði.

Sumir starfs­menn í hluta­starfi sem ákváðu að vinna meira þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst til að létta undir með sam­starfs­fólki, virð­ast ekki fá það metið inn í launa­upp­bót­ina og Arna og fleiri bak­verðir, sem komu margir hverjir til aðstoðar í apríl – er flestir lágu inni á sjúkra­húsum, þar af margir í önd­un­ar­vél – fengu þá mun lægri upp­hæð. Þrátt fyrir að hafa skilað yfir 170 vinnu­stundum á stuttu tíma­bili.

„Ég tók allan mesta álags­tím­ann,“ segir Arna. „Og nið­ur­staðan er þessi upp­hæð.“

Sonurinn fékk fullt af gjafabréfum

Hún seg­ist alls ekki vilja vera van­þakk­lát. En henni finnst upp­hæðin engu að síður van­virð­ing við sig og sitt fram­lag. „Mér finnst þetta nið­ur­lægj­andi. Ég gaf mig alla í þetta, gekk mjög nærri sjálfri mér í vinnu við þessar ótrú­lega erf­iðu aðstæður. Þetta end­ur­speglar engan veg­inn þá áhættu og það álag sem starfs­menn unnu í og þar með ekki fram­lag hvers og eins. Ég vann ígildi mán­að­ar­vinnu í mesta álag­inu en fæ samt ekki helm­ing­inn af upp­hæð­inni. Þetta er ósann­gjarnt gagn­vart okkur sem komum inn á þessum tíma­punkti og kláruðum okkur hrein­lega í vinnu á nokkrum vikum.“

Sextán ára sonur Örnu fór að vinna fyrir Nettó á Akureyri í sam­komu­bann­inu. „Hann kom heim um dag­inn með umslag sem í var fjöldi gjafa­bréfa, fyrir hót­elgist­ingum og margt fleira. Þannig þakk­aði Nettó starfs­fólki sínu fyrir vel unnin störf í COVID. Sem er auð­vitað til mik­illar fyr­ir­myndar. Ég hefði verið þakk­lát­ari ef Land­spít­al­inn hefði sent mér gjafa­bréf í hót­elgist­ingu eina nótt að and­virði 26 þús­und króna.“

Myndi aftur aðstoða

Nýverið fékk Arna sím­tal frá Land­spít­al­anum þar sem hún var spurð hvort hún gæti verið á útkalls­lista yfir þá bak­verði sem yrðu fyrst kall­aðir til ef önnur bylgja far­ald­urs­ins gangi yfir. „Ég sagði eins og var að það væri mikið að gera í vinn­unni hjá mér en að ég myndi skoða þetta. Ég vona að næsta bylgja, komi hún upp, verði ekki eins alvar­leg og sú fyrsta. En ef virki­lega þyrfti þá myndi ég örugg­lega fara og aðstoða. En ég myndi aldrei taka tíu daga tarnir aftur eða 12-16 tíma vinnu­daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár