Fyrsta konan sem ráðin er forstjóri í þegar skráðu félagi frá bankahruni

Konur í for­stjóra­stóli í Kaup­höll­inni orðnar þrjár, eftir að hafa verið núll árum saman. Sú fyrsta þeirra, Birna Ein­ars­dóttir, kom inn í Kaup­höll­ina við skrán­ingu Íslands­banka í fyrra­sumar, önnur, Margrét Tryggva­dóttir, bætt­ist við þegar Nova var skráð.

Í ágúst 2016 var Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur sagt upp störfum sem for­stjóra VÍS. Hún hafði verið eina konan sem stýrði skráðu félagi á Íslandi fram að því, en Sigrún Ragna var ráðin tæpum tveimur árum áður en VÍS var skráð á markað árið 2013, og leiddi því skrán­ing­ar­ferlið. Eftir upp­sögn hennar var engin kona í for­stjóra­stóli á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði.

Þannig hélst staðan í næstum fimm ár, eða þar til að Íslands­banki var skráður á markað sum­arið 2021. Banka­stjóri hans er Birna Ein­ars­dóttir og með skrán­ing­unni komst kona á ný í for­stjóra­klúbb­inn.

Um ári síðar, seint í júní síð­ast­liðnum, fjölg­aði kon­unum í for­stjóra­stóli skráðs félags um 100 pró­sent, þegar Nova, sem er stýrt af Margréti Tryggva­dóttur, var skráð á markað.

Í gær gerð­ist það svo að fyrsta konan var ráðin for­stjóri í þegar skráðu félagi frá því að íslenskur hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur eftir banka­hrunið. Þá var greint frá því að Ásta Sigríður Fjeld­sted var ráðin for­stjóri Festi. Á tveimur og hálfum mán­uði hafa kon­urnar sem gegna for­stjóra­stöðu í Kauphöll Íslands því fjölgað úr einni í þrjár.

Alls eru 29 félög skráð á Aðal­markað og First North mark­að­inn, og 26 þeirra er stýrt af körlum. Því eru 89,6 pró­sent allra for­stjóra skráðra félaga enn karlar, en það hlut­fall var, líkt og áður sagði, 100 pró­sent í byrjun sum­ars í fyrra.

Konur eru 48,6 pró­sent íbúa lands­ins.

Karlar stýra peningum á Íslandi

Kjarninn hefur í níu ár fram­kvæmt úttekt á kynja­hlut­föllum þeirra sem stýra þús­undum millj­arða króna í ýmis fjár­fest­inga­verk­efni hér­lendis. Í níu ár hefur nið­ur­staðan verið svipuð, karlar eru allt um lykj­andi. Í úttekt­inni í ár, sem birt var seint í maí, kom fram að karl­arnir væru 91 en kon­urnar 13.

Hlut­­fall kvenna sem stýra pen­ingum á Íslandi jókst lít­il­lega á milli ára, fór úr ell­efu pró­­sentum í 12,5 pró­sent. Frá því að Kjarn­inn gerði úttekt­ina fyrst hefur kon­unum sem hún nær til fjölgað úr sex í 13, á níu árum. Körlunum hefur hins vegar fjölgað um tólf.

Úttektin náði til 104 æðstu stjórn­­enda við­­skipta­­banka, spari­­­sjóða, líf­eyr­is­­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­­fé­laga, lána­­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­­fyr­ir­tækja og -mið­l­ana, verð­bréfa­­sjóða, sér­­hæfðra sjóða, orku­­fyr­ir­tækja, raf­­eyr­is­­fyr­ir­tækja, greiðslu­­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­­sjóða.

Þessi hópur sem fellur undir úttekt­­ar­skil­yrðin stýrir sam­tals þús­undum millj­­arða króna.

Mark­mið kynja­kvóta­laga aldrei náðst

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi voru sam­­þykkt árið 2010. Þau tóku að fullu gildi í sept­­em­ber 2013. Lögin segja að fyr­ir­tækjum sem eru með 50 eða fleiri starfs­­menn þurfi að tryggja að hlut­­fall hvors kyns sé ekki undir 40 pró­­sent­­um. Mark­miðið með laga­­setn­ing­unni var að „stuðla að jafn­­­ari hlut­­föllum kvenna og karla í áhrifa­­stöðum í hluta­­fé­lögum og einka­hluta­­fé­lögum með auknu gagn­­sæi og greið­­ari aðgangi að upp­­lýs­ing­­um.“

Von þeirra sem sam­­þykktu frum­varpið – 32 þing­­menn úr öllum flokkum nema Sjálf­­stæð­is­­flokknum sem áttu þá sæti á þingi – var að fleiri konur í stjórnum myndi leiða til þess að fleiri konur yrðu ráðnar í stjórn­­un­­ar­­stöður og það myndi fjölga tæki­­færum kvenna.

Hag­­stofa Íslands tekur árlega saman tölur um hversu margar konur sitji í stjórnum fyr­ir­tækja. Stofn­unin birti nýj­ustu tölur sín­­ar, sem sýna stöð­una í lok 2021, á þriðju­dag í síð­ustu viku. Þar kom fram að rúm­­lega fjórð­ung­­ur, 27 pró­­sent, allra stjórn­­­ar­­manna í íslenskum fyr­ir­tækjum væru kon­­ur. Það hlut­­fall var 24 pró­­sent árið 2010.

Í fyr­ir­tækjum með fleiri en 50 laun­þega var hlut­­fall kvenna í stjórnum 19,5 pró­­sent árið 2010. Árið sem lögin tóku gildi var hlut­­fallið orðið 30,2 pró­­sent. Frá þeim tíma hefur lítið gerst. Hlut­­fallið var 34,7 pró­­sent í fyrra.

Hlut­fall kvenna í stöðu fram­kvæmda­stjóra hækk­aði lít­il­lega á milli ára og var 23,9 pró­sent en hlut­fall kvenna í stöðu stjórn­ar­for­manna var 24,7 pró­sent í lok árs 2021.

Konur fjár­­­mála­ráð­herrar í minna en 17 mán­uði frá 1944

Þegar horft er víðar á áhrifa­­stöður í sam­­fé­lag­inu, þar sem pen­ingum er auð­vitað stýrt, en þó með öðrum hætti en í við­­skipta­líf­inu, hallar víða enn á kon­­ur. Í rík­­is­­stjórn er kynja­hlut­­fallið til að mynda enn körlum í hag.

Þar sitja sex karlar og fimm kon­­ur. For­­sæt­is­ráð­herra er hins vegar konan Katrín Jak­obs­dótt­­ir. Það er í annað sinn í lýð­veld­is­­sög­unni sem kona situr í því emb­ætti. Sú fyrsta var Jóhanna Sig­­urð­­ar­dóttir sem var for­­sæt­is­ráð­herra 2009-2013.

Fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra er karl­inn Bjarni Bene­dikts­­son. Alls hafa 26 ein­stak­l­ingar gegnt þeirri stöðu frá því að lýð­veldið Ísland var stofn­að. Ein­ungis tveir þeirra hafa verið kon­­ur. Oddný Harð­­ar­dóttir varð fyrsta konan til að gegna emb­ætti fjár­­­mála­ráð­herra þegar hún tók við því á gaml­ár­s­dag 2011.

Oddný sat í emb­ætti í níu mán­uði og þá tók flokks­­systir hennar Katrín Júl­í­us­dóttir við. Hún sat í emb­ætt­inu í tæpa átta mán­uði. Því hafa konur verið fjár­­­mála­ráð­herrar á Íslandi í minna en 17 mán­uði frá árinu 1944.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár