Karlar ráða íslenskum peningaheimi en konur að mestu í aukahlutverkum

Kjarninn hefur í níu ár fram­kvæmt úttekt á kynja­hlut­föllum þeirra sem stýra þús­undum millj­arða króna í ýmis fjár­fest­inga­verk­efni hér­lendis. Í níu ár hefur nið­ur­staðan verið svipuð, karlar eru allt um lykj­andi. Í ár eru karl­arnir 91 en kon­urnar 13.

Konur eru enn fjarri því að njóta jafn­ræðis við karl­menn þegar kemur að því að ákveða í hvaða verk­efni pen­ingar á Íslandi rata. Kjarn­inn hefur fram­kvæmt úttekt á því hvers kyns þeir sem stýra fjár­magni á Íslandi eru árlega frá 2014. Úttektin nú er því sú níunda sem fram­kvæmd hefur ver­ið.

Í ár nær hún til 104 æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, verð­bréfa­sjóða, sér­hæfðra sjóða, orku­fyr­ir­tækja, raf­eyr­is­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða.

Af þeim eru 91 karlar en 13 kon­ur. Hlut­fall kvenna sem stýra pen­ingum á Íslandi eykst því lít­il­lega á milli ára, fer úr ell­efu pró­sentum í 12,5 pró­sent. Frá því að Kjarn­inn gerði úttekt­ina fyrst hefur kon­unum sem hún nær til fjölgað úr sex í 13, á níu árum. Körlunum hefur hins vegar fjölgað um tólf.

Þessi hópur sem fellur undir úttekt­ar­skil­yrðin stýrir sam­tals þús­undum millj­arða króna.

Ef 40 af stærstu einka­fjár­festum lands­ins, sem eru á meðal 20 stærstu hlut­hafa í félögum sem eru skráð í Kauphöll eru einnig taldir með þá breyt­ist myndin aðeins. Í þeim hópi, sam­kvæmt úttekt Kjarnans, ráða 33 karlar ríkjum en sjö konur. Körlunum fjölgar því í 124 en kon­unum í 20.

Markmið kynjakvótalaga aldrei náðst

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi voru sam­þykkt árið 2010. Þau tóku að fullu gildi í sept­em­ber 2013. Lögin segja að fyr­ir­tækjum sem eru með 50 eða fleiri starfs­menn þurfi að tryggja að hlut­fall hvors kyns sé ekki undir 40 pró­sent­um. Mark­miðið með laga­setn­ing­unni var að „stuðla að jafn­ari hlut­föllum kvenna og karla í áhrifa­stöðum í hluta­fé­lögum og einka­hluta­fé­lögum með auknu gagn­sæi og greið­ari aðgangi að upp­lýs­ing­um.“

Von þeirra sem sam­þykktu frum­varpið – 32 þing­menn úr öllum flokkum nema Sjálf­stæð­is­flokknum sem áttu þá sæti á þingi – var að fleiri konur í stjórnum myndi leiða til þess að fleiri konur yrðu ráðnar í stjórn­un­ar­stöður og það myndi fjölga tæki­færum kvenna.

Hag­stofa Íslands tekur árlega saman tölur um hversu margar konur sitji í stjórnum fyr­ir­tækja. Stofn­unin birti nýj­ustu tölur sín­ar, sem sýna stöð­una í lok 2021, á þriðju­dag í síð­ustu viku. Þar kom fram að rúm­lega fjórð­ung­ur, 27 pró­sent, allra stjórn­ar­manna í íslenskum fyr­ir­tækjum væru kon­ur. Það hlut­fall var 24 pró­sent árið 2010.

Í fyr­ir­tækjum með fleiri en 50 laun­þega var hlut­fall kvenna í stjórnum 19,5 pró­sent árið 2010. Árið sem lögin tóku gildi var hlut­fallið orðið 30,2 pró­sent. Frá þeim tíma hefur lítið gerst. Hlut­fallið var 34,7 pró­sent í fyrra.

Hlutfall kvenna í stöðu fram­kvæmda­stjóra hækk­aði lít­il­lega á milli ára og var 23,9 pró­sent en hlut­fall kvenna í stöðu stjórn­ar­for­manna var 24,7 pró­sent í lok árs 2021.

„Þetta er ekki hægt. Þetta á eftir að koma í bakið á ykk­ur“

Staða kvenna er afar mis­mun­andi eftir atvinnu­greinum. Í einni af und­ir­stöðu­greinum þjóð­ar­innar, sjáv­ar­út­vegi, er hún til að mynda afar skökk. Ein birt­ing­ar­mynd þess er sú að á síð­asta árs­fundi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) var kjörin ný 19 manna stjórn. Í henni sitja 19 karlar en engin kona.

Klem­ens Hjart­ar, með­eig­andi í alþjóð­lega ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu McKinsey & Co, hélt erindi á árs­fund­inum og tók þessa stöðu fyrir. „Iðn­aður sem ætlar að halla sér fram og breyta heim­in­um, búa til aðgrein­an­leika, getur ekki hagað sér svo­leið­is. Þetta er algjör­lega for­kast­an­legt og það liggur mér á hjarta, af því að nú vinn ég við að ráð­gefa fyr­ir­tækjum út um allan heim, þetta er ekki hægt. Þetta á eftir að koma í bakið á ykk­ur.“

Klem­ens sagð­ist vona að atvinnu­greinin færi að skilja að það að kjósa bara karla í stjórn hags­muna­gæslu­sam­taka hennar gangi virki­lega ekki. „Ef þetta gerð­ist ein­hvers staðar ann­ars staðar í venju­legu fyr­ir­tæki sem er með þennan metnað sem hægt er að hafa hér, þá væri það bara alls ekki ásætt­an­leg­t.“

Klemens Hjartar, meðeigandi hjá McKinsey & Co, flutti erindi á ársfundi SFS sem vakti umtal og athygli. Mynd: Skjáskot
Klemens Hjartar, með­eig­andi hjá McKinsey & Co, flutti erindi á árs­fundi SFS sem vakti umtal og athygli. Mynd: Skjáskot

Heiða Kristín Helga­dóttir, stofn­andi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Niceland Seafood, gerði stjórn­ar­kjörið einnig að umtals­efni í grein sem birt var á Vísi 12. maí. Þar sagði hún að allir lof­söngvar og glans­myndir sem hugs­ast geti nái ekki að breiða yfir þá stað­reynd að með stjórn­ar­kjöri 19 karla í 19 manna stjórn afhjúp­ist helsti veik­leiki grein­ar­innar. „Er það virki­lega svo að SFS ætlist til þess að allar þær fjöl­mörgu hæfu og reynslu­miklu konur sem starfa í grein­inni sitji penar á kant­inum, styðji sína menn og bíði eftir kyn­slóð­ar­skiptum? Eigi sjáv­ar­út­veg­ur­inn að tvö­falda verð­mætin sem hann skapar nú þegar eru engar líkur á að það tak­ist með eins­leitum hópi karla af sama reki og með sama bak­grunn í far­ar­broddi. Það er ákveðin lág­marks­krafa að hleypa öðru kyni að, svo ekki sé talað um allar aðrar mann­legar breytur sem greinin myndi græða svo marg­falt á að hleypa nálægt sér. En ég legg ekki meira á mína menn en þeir geta borið.“

Nær allir stjórn­endur líf­eyr­is­sjóða eru karl­ar

Stærstu fjár­fest­arnir á Íslandi eru líf­eyr­is­sjóð­ir. Þeir eru allt um lykj­andi í við­skipta­líf­inu. Hrein eign þeirra er um 6.647 millj­arðar króna. Það er lík­lega rúmur þriðj­ungur af heild­ar­fjár­munum sem til eru á Íslandi og sá eign­ar­hlutur mun vaxa á næstu árum. Árið 2060 munu þeir eiga tæp­lega 40 pró­sent allra fjár­muna hér. Þeir eiga í dag meiri­hluta allra mark­aðs­skulda­bréfa á Íslandi og beint eða óbeint um helm­ing allra skráðra hluta­bréfa í íslensku kaup­höll­inni. Alls eru sjóð­irnir 21 tals­ins en stjórn­endur þeirra eru 16.

Nær allir stjórn­endur líf­eyr­is­sjóða eru karl­ar. Stærsta breyt­ingin í þeim efnum varð árið 2019 þegar Harpa Jóns­dóttir tók við stjórn­ar­taumunum hjá stærsta líf­eyr­is­sjóði lands­ins, Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins. Þrettán sjóðum er stýrt af körlum en þremur af kon­um. Það er sama stað og var uppi 2021.

Þegar skyggst er undir efsta stjórn­enda­lagið er svipuð staða uppi. Karlar eru mun fyr­ir­ferða­meiri en konur í þeim stöðum sem ákveða í hvaða fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða­pen­ing­arnir okkar rata.

Karlarnir allstaðar í verðbréfafyrirtækjunum

Stærstu við­skipta­vinir íslenskra verð­bréfa­­fyr­ir­tækja og rekstr­­ar­­fé­laga verð­bréfa­­sjóða eru líf­eyr­is­sjóðir.

Flestir á þeim mark­aði hafa stóran hluta tekna sinna upp úr því að rukka líf­eyr­is­­sjóði um þókn­ana­­tekjur fyrir milli­­­göngu í verð­bréfa­­kaup­um eða ann­ars fjár­fest­ing­um. Öllum leyf­is­skyldum verð­bréfa­fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa- og sér­hæfðra sjóða er stýrt af körl­um. Af þeim rekstr­ar­að­ilum sér­hæfðra sjóða sem eru skrán­ing­ar­skyld­ir, en ekki leyf­is­skyld­ir, eru sjö undir stjórn karla en þrír undir stjórn kvenna.

Öllum eft­ir­lits­skyldum trygg­inga­fé­lögum lands­ins er stýrt af körlum og hjá lána­fyr­ir­tækjum eru karl­arnir tveir en konan ein eftir að Jónína Gunn­ars­dóttir tók við hjá SaltPay 18. mars síð­ast­lið­inn af Reyni Finndal Grét­ars­syni sem gerð­ist stjórn­ar­for­maður.

Þá eru átta stór orku­fyr­ir­tæki í land­inu. Lengi vel var þeim öllum stýrt af körlum en 2018 var Berg­lind Rán Ólafs­dóttir ráðin fram­kvæmda­stýra Orku Nátt­úr­unnar í kjöl­far mik­illa átaka innan þess fyr­ir­tækis vegna meintrar kyn­ferð­is­legrar áreitni.

Loksins kom kona í Kauphöllina og önnur á leiðinni

Á Íslandi eru fjórir spari­sjóðir enn starf­andi. Þeim er öllum stýrt af körl­um. Ein breyt­ing varð á æðstu stjórn­endum þeirra á síð­ast­liðnu ári, þegar karl­inn Sig­urður Erlings­son tók við stjórn­ar­taumunum hjá Spari­sjóði Suð­ur­-­Þing­ey­inga. Honum var áður stýrt af spari­sjóðs­stjór­anum Gerði Sig­tryggs­dótt­ur.

Birna Einarsdóttir hefur stýrt Íslandsbanka frá því að hann var búinn til úr rústum Glitnis. Í fyrrasumar hringdi hún inn fyrstu viðskipti með bréf bankans og varð um leið fyrsta konan til að stýra skráðu félagi á Íslandi síðan 2016.
Birna Ein­ars­dóttir hefur stýrt Íslands­banka frá því að hann var búinn til úr rústum Glitnis. Í fyrra­sumar hringdi hún inn fyrstu við­skipti með bréf bank­ans og varð um leið fyrsta konan til að stýra skráðu félagi á Íslandi síðan 2016.

Þeim er öllum stýrt af körl­um. Þegar litið er yfir starfs­manna­list­ann er ljóst að kynja­hlut­fallið lag­ast ekki mikið þegar neðar í skipu­ritið er kom­ið.

Fjórir stórir bankar eru á land­inu. Tveimur þeirra, Lands­bank­anum og Íslands­banka, er stýrt af kon­unum Lilju Björk Ein­ars­dóttur og Birnu Ein­ars­dótt­ur. Báðir bank­arnir sem eru að fullu í einka­eigu, Arion banki og Kvika banki, eru undir stjórn karla.

For­stjóri Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar, sem stundar útlán til fast­eigna­kaupa, er sömu­leiðis karl.

Á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði eru skráð 26 félög sem stend­ur og nokkur eru á leið á hann. Alls eru 20 félag­anna skráð á Aðal­markað og sex á First North. Öllum félög­unum utan einu er stýrt af körlum. Þar varð sú breyt­ingu á í fyrra þegar Íslands­banki var skráður á markað, að kona stýrði skráðu félagi á Íslandi í fyrsta sinn síðan í ágúst 2016, þegar Sig­rúnu Rögnu Ólafs­dóttur var sagt upp hjá VÍS.

Þrjú félög eru á leið á markað í næsta mán­uði. Ölgerðin og Nova ætla að skrá sig á aðal­markað og Alvotech hefur hug á að skrá sig á First North. Nova er stýrt af kon­unni Margréti Tryggva­dóttur.

Konur fjár­mála­ráð­herrar í minna en 17 mánuði frá 1944

Þegar horft er víðar á áhrifa­stöður í sam­fé­lag­inu, þar sem pen­ingum er auð­vitað stýrt, en þó með öðrum hætti en í við­skipta­líf­inu, hallar víða enn á kon­ur. Í rík­is­stjórn er kynja­hlut­fallið til að mynda enn körlum í hag.

Oddný Harðardóttir var fyrsta konan til að verða fjármálaráðherra á Íslandi.
Oddný Harð­ar­dóttir var fyrsta konan til að verða fjár­mála­ráð­herra á Íslandi.

Þar sitja sex karlar og fimm kon­ur. For­sæt­is­ráð­herra er hins vegar konan Katrín Jak­obs­dótt­ir. Það er í annað sinn í lýð­veld­is­sög­unni sem kona situr í því emb­ætti. Sú fyrsta var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir sem var for­sæt­is­ráð­herra 2009-2013.

Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er karl­inn Bjarni Bene­dikts­son. Alls hafa 26 ein­stak­lingar gegnt þeirri stöðu frá því að lýð­veldið Ísland var stofn­að. Ein­ungis tveir þeirra hafa verið kon­ur. Oddný Harð­ar­dóttir varð fyrsta konan til að gegna emb­ætti fjár­mála­ráð­herra þegar hún tók við því á gaml­árs­dag 2011.


Oddný sat í emb­ætti í níu mán­uði og þá tók flokks­systir hennar Katrín Júl­í­us­dóttir við. Hún sat í emb­ætt­inu í tæpa átta mán­uði. Því hafa konur verið fjár­mála­ráð­herrar á Íslandi í minna en 17 mán­uði frá árinu 1944.

Konur undir 40 pró­sent þeirra sem sitja á Alþingi

Seðla­banka­stjóri Íslands er, og hefur alltaf ver­ið, karl en af þremur vara­seðla­banka­stjórum eru tvær kon­ur, Rann­veig Sig­urð­ar­dóttir og Unnur Gunn­ars­dótt­ir.

Á Alþingi voru 30 konur kjörnar í fyrra. þær voru 24 fyrir kosn­ing­arnar og fjölg­aði því um sex í síð­ustu kosn­ingum. Hlutfall kvenna á þingi er nú 47,6 pró­sent en voru 38 pró­sent fyrir síð­ust kosn­ingar. Hlut­fallið nú er það sama og var eftir kosn­ing­arnar 2016, en þá var kosið aftur ári síðar eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk og við það fækk­aði konum á ný.

Í ríkisstjórn Íslands eru sjö karlar og fimm konur.
Í rík­is­stjórn Íslands eru sjö karlar og fimm konur.

Konurnar á þingi dreifast ójafnt á flokka. Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, stærsta flokknum á þingi, eru þær sjö en karl­arnir tíu. Hjá Framsókn eru kon­urnar sex en karl­arnir sjö og hjá flokki for­sæt­is­ráð­herra, Vinstri grænum, eru kon­urnar fimm en karl­arnir þrír.

Hjá Sam­fylk­ing­unni, nú stærsta stjórn­ar­and­stöðu­flokki lands­ins, eru kon­urnar fjórar en karl­arnir tveir og hjá Viðreisn eru kon­urnar sömu­leiðis í meiri­hluta, þrjár á móti tveimur körlum. Hjá Pírötum er kynja­skipt­ingin jöfn milli sex þing­manna flokks­ins.

Inga Sæland og Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­konur Flokks fólks­ins, deila þing­flokki með fjórum körlum og báðir eft­ir­stand­andi þing­menn Mið­flokks­ins eru karlar.

Því eru konur í meiri­hluta hjá þremur þing­flokkum, kynja­hlut­föllin jöfn hjá einum en karl­arnir í meiri­hluta fjórum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár