Forseti Íslands talaði um fjölbreytni, virðingu og frelsi við Pence

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sagði við vara­for­seta Banda­ríkj­anna að hann von­að­ist til þess að hann myndi fá til­finn­ingu fyrir þeim gildum sem Íslend­ingum þykja kær á meðan hann dvelur hér­lendis.

„Ég vona að þú fáir til­finn­ingu fyrir þeim gildum sem okkur þykja kær hér­lendis: Frelsi, fjöl­breytni, alþjóða­sam­vinnu og virð­ingu hvort fyrir öðru.“ Þetta var með því fyrsta sem Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sagði við Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, þegar hann bauð hann vel­kom­inn til Íslands í Höfða rétt í þessu.

Guðni sagð­ist auk þess von­ast til þess að Pence myndi njóta dval­ar­innar og að hún myndi skilja hann eftir með til­finn­ingu um hversu mikið Íslend­ingar kunni að meta sterkt og heil­brigt sam­band þjóð­ar­innar við Banda­ríkin.

Telur að samkynhneigð sé val einstaklingsins

Pence hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir að vinna gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra. Birt­ing­ar­myndir þess hafa verið margar.

[links]Til að mynda lítur hann svo á að sam­kyn­hneigð sé val sem gæti leitt til sam­fé­lags­legs hruns og að það sé vilji guðs að koma í veg fyrir slíka.

Þá sam­þykkti hann sem rík­is­stjóri í Indíana umdeilda laga­setn­ingu á sínum tíma um að til dæmis veit­inga­húsa­eig­endur mættu neita hinsegin fólki um afgreiðslu af trú­ar­legum ástæðum.

Guðni Th. bar einnig arm­band þegar hann hitti Mike Pence og virð­ist vera um sama arm­band, lit­ríkt arm­band, að ræða og hann bar þegar for­set­inn hitti Vladimir Pútín, for­seta Rúss­lands, í apríl síð­ast­liðnum. Margir hafa tengt það við bar­áttu hinsegin fólks fyrir auknum mann­rétt­indum en upp­runa­lega var arm­bandið gert fyrir Guðna Th. af Krafti, félags ungs fólks sem greinst hefur með krabba­mein. Á því stendur „Lífið er núna.”Pútin er þekktur fyrir and­stöðu við sam­kyn­hneigð og fyrir að hafa þrengt veru­lega að rétt­indum hinsegin fólks í Rúss­landi á valda­tíma sínum. Samstaða Guðna Th. með hinsegin fólki á ekki að koma mikið á óvart enda gerð­ist hann vernd­ari Sam­tak­anna ´78 í fyrra.

Draga regnbogafánann að húni

Advania, sem er með höf­uð­stöðvar við hlið Höfða, flagg­aði regn­boga­fánum hjá sér í dag og var þar aug­ljós­lega um sam­stöðu­að­gerð að ræða vegna yfir­lýstra skoð­ana vara­for­set­ans á lífstíl og rétt­indum hinsegis fólks. Það sama gerði Reykja­vík­ur­borg við starfs­stöð sína við Höfða­torg.

Pence trúir enn fremur ekki á að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum og hefur hann ekki viljað svara því hvort hann trúi á þró­un­ar­kenn­ing­una.

Rík­is­stjórn Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, sem Pence er full­trúi fyrir hér­lendis hefur auk þess ráð­ist í nokkuð umfangs­mikið tolla­stríð, sagði upp aðild Banda­ríkj­anna að Par­ís­ar­sátt­mál­anum og aðild að kjarn­orku­samn­ingnum við Íran. Þessi atriði eru talin vera á meðal helstu ógna við alþjóða­sam­vinnu í heim­inum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár