Mynd: Birgir Þór Harðarson

Forsetinn sem varð til í beinni útsendingu á RÚV og þjóðin elskar

Á meðan að traust hríð­fellur gagn­vart Alþingi og borg­ar­stjórn, og mælist undir 20 pró­sent, er einn þjóð­kjör­inn full­trúi sem flestir lands­menn eru ánægðir með. Það er for­seti lands­ins sem nýtur trausts 83 pró­sent lands­manna.

Þann 30. des­em­ber 2015 birt­ist grein á Kjarn­anum eftir sagn­fræð­ing­inn Guðna Th. Jóhann­es­son. Hún bar tit­il­inn „Hvað er eig­in­lega að Ólafi Ragnari?“ Tit­ill­inn var leikur að orðum og til­gangur hans það að sýna hversu umdeildur Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi for­seti Íslands, væri.

Í grein­inni sagði: „Margir eiga það því sam­eig­in­legt að spyrja sig og aðra hvað sé eig­in­lega að Ólafi Ragnari Gríms­syni. En fólk mælir nú sjaldn­ast einum rómi. Þjóð er ekki órofa heild og í þessum orðum skipta áherslur máli. Hvað er eig­in­lega að honum? spyrja þeir sem finnst for­seti hafa setið nógu lengi á valda­stóli, gam­all valda­karl með sitt­hvað á sam­visk­unni. Hins vegar eru þeir líka til sem spyrja: Hvað er eig­in­lega að for­set­anum? Herra Ólafur hafi staðið sig vel, komið í veg fyrir Icesave og hugs­an­lega aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.“

Tilefnið grein­ar­innar það að Ólafur Ragnar Grímsson hafði sagt að hann myndi greina frá því hvort hann sækt­ist eftir því að sitja sitt sjötta kjör­tíma­bil, en hann hafði verið kos­inn í emb­ættið sum­arið 1996.

Í henni sagði Guðni, sem hafði sér­hæft sig í for­seta­legri sagn­fræði, meðal ann­ars að það væri alls ekki úti­lokað að Ólafur Ragnar yrði aftur í fram­boði, þrátt fyrir að hann hefði áður sagt að svo yrði ekki. „Geri hann það virð­ist hann eiga sig­ur­inn vísan. Önnur for­seta­efni yrðu fall­byssu­fóður. Sitjandi for­seti sigrar alltaf. Það segir sagan að minnsta kosti. Á hitt er þó að líta að ein­hvern tím­ann verður allt fyrst. Öflugur fram­bjóð­andi sem stæði einn and­spænis Ólafi gæti heldur betur velgt honum undir uggum.“

Í nýársávarp­inu til­kynnti Ólafur Ragnar hins vegar að þetta væri orðið gott, hann yrði ekki í fram­boði í kosn­ing­unum sem fram fóru sum­arið 2016.

Hver yrði næstur?

Miklar bolla­legg­ingar hófust um hverjir myndu bjóða sig fram. Nöfn eins og Jón Gnarr, Katrín Jak­obs­dóttir, Andri Snær Magnason og Össur Skarp­héð­ins­son voru hávær í umræð­unni.

Í byrjun apríl 2016 breytt­ust hins vegar for­sendur for­seta­kosn­ing­anna algjör­lega þegar Panama­skjölin voru opin­beruð, fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar leiddu til afsagnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og sú rík­is­stjórn sem tók við lof­aði þing­kosn­ingum um haustið.

Öll þessi atburða­rás átti sér stað nán­ast í beinni útsend­ingu á RÚV. Þann 4. apríl, fyrir þremur árum síðan, hafði staðið til að halda stuttan auka­frétta­tíma til að fara yfir þá sögu­lega atburði sem voru að eiga sér stað. Þann dag flakk­aði Sig­mundur Davíð um höf­uð­borg­ar­svæðið með tösku sem inni­hélt skjal með ósk um þing­rofs­heim­ild. Hann fór meðal ann­ars til fundar við Ólaf Ragnar og bar upp þá ósk, sem for­set­inn hafn­aði. Ólafur Ragnar hélt svo blaða­manna­fund í kjöl­farið þar sem hann útskýrði hvað hefði átt sér stað.

Í setti hjá RÚV var Guðni Th. Jóhann­es­son í hlut­verki sér­fræð­ings og hann ílengd­ist í gegnum mara­þonútsend­ing­una, leiddi þjóð­ina í gegnum fárán­leika atburð­ana sem voru að eiga sér stað og sló í gegn.

Í kjöl­farið fór áskor­unum að rigna yfir Guðna um að bjóða sig fram til for­seta.

Hættur við að hætta við

Ólafur Ragnar hafði hins vegar runnið á blóð­lykt­ina og ákvað að hætta við að hætta við að bjóða sig aftur fram 18. apríl. Hann taldi þjóð­ina þurfa á sér að halda „í þessu umróti óvissu og mót­mæla.“

Í fyrstu skoð­ana­könnun sem gerð var eftir þetta mæld­ist Ólafur Ragnar með 53 pró­sent stuðn­ing. En þrýst­ingur á Guðna um fram­boð hélt áfram. Í könnun sem birt var í byrjun maí var eng­inn mark­tækur munur á stuðn­ingi við hann og Ólaf Ragnar. 51 pró­sent sögð­ust vilja Guðna, sem hafði ekki til­kynnt um fram­boð, sem for­seta en tæp 49 pró­sent Ólaf Ragnar.

Ólafur Ragnar rataði svo í vand­ræði í byrjun maí þegar Kjarninn greindi frá beinum tengslum eig­in­konu hans, Dorritar Moussaieff, við aflands­fé­lög. Ólafur hafði áður neitað því afdrátt­ar­laust á CNN að fjöl­skylda hans hefði nokkur tengsl við slík.

Þann 5. maí til­kynnti Guðni svo um fram­boð sitt.

Davíð mætir

Þremur dögum síðar æst­ust leikar enn frekar þegar Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og þáver­andi og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, ákvað að bjóða sig líka fram.

Daginn eftir það til­kynnti Ólafur Ragnar að hann væri hættur við að hætta við að hætta. Opinbera skýr­ingin var að Guðni og Davíð væru nægi­lega fram­bæri­legir fram­bjóð­endur til að hann gæti stigið af svið­inu. Þeim væri treystandi.

Ljóst varð strax að Guðni hafði kosn­inga­bar­átt­una í hendi sér. Hann mæld­ist strax með feiki­lega yfir­burði í könn­unum og með lang­mest fylgi þeirra níu sem enn voru í fram­boði eftir að fram­boðs­frestur rann út.

Hann þótti reka nokkuð lit­lausa og örugga kosn­inga­bar­áttu sem ein­kennd­ist af því að reyna að gera ekki mis­tök á meðan að Davíð lagð­ist í drullu­kast og reyndi eftir fremsta megni að draga Guðna, sem hann taldi sinn helsta and­stæð­ing, þangað niður til sín. Á víg­völl sem Davíð þekkir vel.

Á end­anum vann Guðni nokkuð öruggan sigur og varð við það sjötti for­seti Íslands. Hann fékk 39,1 pró­sent atkvæða. Davíð varð fjórði á eftir Guðna, Höllu Tóm­as­dóttur og Andra Snæ Magna­syni með 13,7 pró­sent atkvæða þrátt fyrir að hafa rekið dýr­ustu kosn­inga­bar­átt­una. Á end­anum kost­aði hvert atkvæði sem Davíð fékk hann 1.103 krónur.

„Minn sigur var varn­ar­sigur í ljósi þró­un­ar­innar,“ sagði Guðni hóg­vær í útvarps­við­tali skömmu eftir kosn­ing­arnar.

Samstöðuforsetinn

Guðni Th. Jóhann­es­son tók svo form­lega við emb­ætti for­seta Íslands 1. ágúst 2016 við hátíð­lega athöfn í Alþing­is­hús­inu. Hann hóf ræðu sína á því að þakka fyrir traustið sem honum hafi verið sýnt með kjör­inu í emb­ættið og sagð­ist taka við því með auð­mýkt í hjarta. „Ég mun og vil þiggja ráð og leið­sögn frá ykkur öll­um, fólk­inu í land­in­u.“

Hann lauk ræðu sinni á því að segja að hann vildi að þjóðin stæði „saman um fjölbreytni og frelsi, sam­hjálp og jafnrétti, virð­ingu fyrir lögum og rétti. Stöndum saman um þessi grunn­gildi góðs samfélags, vongóð og full sjálfs­trausts. Megi sú verða gæfa okkar um alla framtíð.“

Sjötti forseti Íslands og forsetafrúin við embættistökuna.
Sjötti for­seti Íslands og for­seta­frúin við emb­ætt­is­tök­una.

Nokkrum vikum síðar náð­ist mynd af honum fyrir utan Dominos-pizzastað þar sem hann var að sækja Megaviku-til­boð fyrir fjöl­skyld­una. Hann flutti erindi á Hinsegin dögum fyrstur íslenskra for­seta. Hann hafn­aði launa­hækkun sem honum var skammtað í októ­ber 2016. Hann lét mynda sig með buff frá Alzheimer-sam­tök­unum. Hann sýndi æðru­leysi og þol­in­mæði við for­dæma­lausa erf­ið­leika við að mynda rík­is­stjórn eftir þing­kosn­ing­arnar 2016.

Og þetta voru ein­ungis fyrstu mán­uð­irnir í starfi.

Mikil ánægja samkvæmt könnunum

Und­an­farin ár, áður en Guðni tók við emb­ætt­inu, höfðu á bil­inu 15-30 pró­­sent lands­manna sagst vera óánægð með störf Ólafs Ragn­­ars Gríms­­sonar sem for­­seta, en ánægjan með störf hans mæld­ist á bil­inu 45-64 pró­­sent. Mest mæld­ist ánægjan með Ólaf Ragnar í febr­úar 2013, þegar nýbúið var að kveða upp dóm í Icesave-mál­inu, og í síð­ustu mæl­ing­unni sem fram­kvæmd var áður en Ólafur Ragnar lét af emb­ætti sum­arið 2016.

Ánægja með störf Guðna er hins vegar miklu meiri. Í fyrstu könnun MMR um ánægju með for­set­ann sem fram­kvæmd var eftir að hann tók við sögð­ust 68,6 pró­sent vera ánægð með Guðna.

Þegar stuðn­ingur við Guðna var kann­aður í des­em­ber 2016 kom í ljós að 80 pró­sent aðspurðra voru ánægðir með störf hans. Þegar ein­ungis var skoðað þá sem tóku afstöðu þá var stuðn­ingur við hann 96 pró­sent.

Guðni fékk mikla athygli þegar hann setti á sig buff frá Alzheimer-samtökunum. Hún var bæði jákvæð og neikvæð. Hann brást við með því að endurtaka leikinn hjá Rauða krossinum skömmu síðar. Mynd: Aðsend.
Guðni fékk mikla athygli þegar hann setti á sig buff frá Alzheimer-sam­tök­unum. Hún var bæði jákvæð og nei­kvæð. Hann brást við með því að end­ur­taka leik­inn hjá Rauða kross­inum skömmu síðar. Mynd: Aðsend.

Þannig hefur stuðn­ing­ur­inn verið nær sleitu­laust síðan. Í nýj­ustu mæl­ingu MMR, sem birt var 9. apríl síð­ast­lið­inn, sagð­ist 81,6 pró­sent þjóð­ar­innar vera ánægð með störf for­seta síns. um 93,5 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu voru sáttir með hann.

Landsmenn treysta ekki stjórnmálamönnum, bara Guðna

Ljóst er að Guðni er því for­seti sem nær að sam­eina þjóð­ina á sama tíma og for­dæma­laust rót hefur verið í íslenskum stjórn­málum, sem skilað hefur því að átta flokkar eru nú á Alþingi íslend­inga og í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

Hann er eini kjörni full­trúi þjóð­ar­innar sem virð­ist njóta trausts þvert á flokka og aðrar grund­vall­ar­mein­ingar. Á sama tíma og traust á Guðna er í svim­andi og nán­ast óhugs­andi hæðum – í kringum 80 pró­sent – þá hefur það fallið skarpt gagn­vart öðrum stofn­unum þar sem kjörnir full­trúar sitja.

Í þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtur var í febr­úar kom í ljós að traust á Alþingi hafði hrunið úr 29 pró­sent í 18 pró­sent milli ára. Traust til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur mæld­ist í sömu könnun 16 pró­sent, en hafði verið 24 pró­sent árið áður. Traust til emb­ættis for­seta Íslands mæld­ist 83 pró­sent í þess­ari könnun Gallup. Það jókst milli ára.

Ofbauð Klausturmálið

Guðni hefur ekki gefið kost á mörgum stórum við­tölum síðan að hann tók við emb­ætti. Hann gaf þó kost á einu slíku í des­em­ber síð­ast­liðnum þegar hann ræddi við Fanneyju Birnu Jóns­dóttur, stjórn­anda Silf­urs­ins.

Umræðu­efnið var að stórum hluta traust, sér­stak­lega í kjöl­far hins víð­fræga Klaust­urs­máls. Guðni sagði að honum hefði ofboðið talsmáti þeirra þing­manna sem sátu að drykkju á Klaust­ur­barnum 20. nóv­em­ber 2018. Hann sagði að þing­menn­irnir hefðu gerst sekir um virð­ing­ar­leysi og sjálfs­upp­hafn­ing­u „Þetta er ekki leiðin til auka traust almenn­ings á Alþingi. Að við­hafa svona orð­færi sem er til merkis um ein­hvern und­ir­liggj­andi vanda. Manni ofbauð, það er ekk­ert flókn­ara en það.“

Guðni sagði þetta ekki leið­ina til að auka traust almenn­ings á Alþingi og að það væri mik­il­vægt fyrir alla að reyna standa sig vel í vinn­unni, sér­stak­lega þá sem eru í þjóð­kjörnum stöð­um. „En ég held að það yrði ekki til fram­dráttar góðum mál­stað ef ég færi að setja mig á afskap­lega háan stall og segja öðrum til synd­anna. En um leið leyfir maður sér að vona að fólk finni hjá sjálfu sér hvað það hefur gert og hvernig beri að bregð­ast við.“

Hefur ekki beitt synjunarvaldinu

Ólafur Ragnar mark­aði sér þá sér­stöðu á meðal íslenskra for­seta að hann beitti synj­un­ar­valdi, neit­aði þrí­vegis að skrifa undir lög sem honum bár­ust frá Alþingi til und­ir­skriftar. Það hafði eng­inn for­seti gert áður og Guðni hefur heldur ekki beitt því valdi.

Í við­tali við Kjarnann skömmu eftir að hann til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta sagði Guðni að hann væri þó til­bú­inn að glíma við synjun laga. „Það hefur skap­ast nýr raun­veru­leiki á Bessa­stöðum,“ sagði hann um það að Ólafur Ragnar hefði vakið synj­un­ar­valdið upp úr því að vera álitið dauður bók­stafur. Frá því yrði ekki snúið.

Guðni hafði þó líka sterkar skoð­anir á því hvar synj­un­ar­valdið ætti að liggja. „Við þurfum að koma því í stjórn­ar­skrá að til­tek­inn hluti kjós­enda geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæðis um umdeild mál. Þarna ætla ég bein­línis að beita mér því þetta lítur svo beint að störfum for­seta.“

Á þeim árum sem Guðni hefur setið í emb­ætti þá hefur verið skorað á hann nokkrum sinnum að beita synj­un­ar­vald­inu. Rúmum mán­uði eftir að hann tók við skrif­aði Guðni undir búvöru­lög og við það tóku umdeildir nýir búvöru­samn­ingar gildi. Und­ir­skrifta­söfnun hafði verið hrundið af stað til að reyna að fá for­set­ann til að hafna lög­unum.

Sumarið 2017 var skorað á hann að stað­festa ekki stjórn­ar­at­hafnir Alþingis vegna skip­unar 15 dóm­ara við Lands­rétt. For­set­inn sendi þá frá sé sér­staka yfir­lýs­ingu þar sem hann rök­studdi ákvörðun sína, en skrif­aði sam­tímis undir.

Nú stendur hann frammi fyrir því að þrýst verður á for­set­ann að skrifa ekki undir lög sem inn­leiða hinn svo­kall­aða þriðja orku­pakka inn í íslenska lög­gjöf. Félaga­sam­tökin Orkan okkar eru sem stendur að safna und­ir­skriftum vegna þessa.

Guðni virð­ist þó yfir­veg­aður yfir stöð­unni. Þann 9. apríl tók hann þátt í pall­borðsum­ræðum um norð­ur­slóða­mál í Rúss­landi og ákvað að flytja hluta tölu sinnar á rúss­nesku.

Upp­á­tækið sló í gegn í Rúss­landi. For­set­inn sem Íslend­ingar elska felur vel í kramið víðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár