Guðni staðfesti skipan dómara við Landsrétt

Forseti Íslands stað­festi skipan allra 15 dóm­ar­anna við Lands­rétt.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, und­ir­rit­aði skip­un­ar­bréf 15 dóm­ara við Lands­rétt sem Alþingi hafði sam­þykkt. Guðni hafði verið hvattur til þess að hafna und­ir­ritun skip­un­ar­bréf­anna í und­ir­skrifta­söfnun.

Sigríður Á. And­ers­sen dóms­mála­ráð­herra til­nefndi 15 ein­stak­linga sem dóm­ara við nýtt milli­dóms­stig, Lands­rétt, í maí. Umdeilt var að hún ákvað að hunsa röðun á hæf­is­lista sem unn­inn hafði verið af sér­stakri dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda.

Guðni segir í yfir­lýs­ingu sem barst fjöl­miðlum í morgun að und­ir­ritun hans sé í takt við form­legar og sjálf­sagðar stjórn­ar­at­hafnir.

Skorað var á Guðna að stað­festa ekki stjórn­ar­at­hafnir Alþingis vegna þess að ágrein­ingur ríkir um hvort rétt hafi verið staðið að skipan dóm­ar­anna. Alþingi greiddi atkvæði um alla 15 dóm­ar­ana en til tók ekki skipan hvers og eins. Guðni bendir á efa­semd­araddir um hvort þetta hafi verið í sam­ræmi við lög.

Guðni skrifar í yfir­lýs­ingu sinni að honum hafi þótt sjálf­sagt að kynna sér þau sjón­ar­mið sem lægju að baki mál­flutn­ingi þeirra sem hvöttu hann til að stað­festa ekki skipan dóm­ar­anna.

„[...]enda engin brýn stjórnskipu­leg nauð­syn til þess að und­ir­rita skip­un­ar­bréf dómara­efn­anna um leið og mér bær­ust þau. Jafn­framt er þess að geta að þótt atbeini for­seta sé form­legur í stjórnskipu­legu til­liti má aldrei líta svo á að sá atbeini sé þess vegna sjálfvirkur. Þannig eru þess dæmi að for­seta séu afhent skjöl til und­ir­rit­unar þar sem handvömm hefur orðið við und­irbúning og frágang. Þarf þá að vinna þau á ný og útbúa til und­ir­rit­unar,“ skrifar Guðni.

Eftir að hafa óskað eftir upp­lýs­ingum um máls­at­vik þá barst for­set­anum svar frá Alþingi í gær. Þar segir Guðni að bent hafi verið á að dóms­mála­ráð­herra hafi lagt til­lögur sínar fyrir Alþingi í sam­ræmi við lög.

„Í samtölum sem for­seti Alþingis átti við for­menn og for­ystufólk þing­flokka um und­irbúning atkvæða­greiðsl­unnar kom fram að þing­menn flokk­anna hefðu allir ákveðið að greiða atkvæði með sama hætti um hvern ein­stak­ling í töluliðum 1-15 á þing­skjal­inu,“ skrifar Guðni enn fremur.

Guðni vitnar svo í loka­orð grein­ar­gerðar skrif­stofu Alþingis: „Nið­ur­staða skrif­stof­unnar er því sú að atkvæða­greiðslan sé fylli­lega lögmæt og í sam­ræmi við lögbundna og venju­bundna afgreiðslu­hætti Alþingis, svo svarað sé beint erindi skrif­stofu for­seta Íslands. Meg­in­hug­mynd og krafa í fyrr­nefndu bráðabirgðaákvæði dómstólalaga er að Alþingi geti tekið afstöðu til hvers dómara­efnis, hafnað ein­stökum tillögum ráðherra, en standi ekki frammi fyrir þeim kosti að sam­þykkja allar tillögurnar eða hafna öllum. Við afgreiðslu málsins á Alþingi er þessi hug­mynd virt, frágangi málsins á þing­skjali og atkvæða­greiðslu hagað þannig að við þeirri kröfu dómstólalaga mætti verða.“

Guðni seg­ist hafa svo tekið afstöðu til máls­ins með hlið­sjón af þeim upp­lýs­ingum sem hann hafði aflað sér. Hann hafi þá kom­ist „að þeirri nið­ur­stöðu að mistök hefðu ekki átt sér stað við und­irbúning og tilhögun atkvæða­greiðsl­unnar 1. júní og hún hefði verið í sam­ræmi við lög, þing­venju og þing­sköp.?“

Lesa má yfir­lýs­ingu for­set­ans í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár