Ekki síðra að skapa söguna en skrifa hana

Guðni Th. Jóhann­es­son býður sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Kjarninn ræddi við hann um fram­boðið og stefnu­málin.

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur býður sig fram til embættis forseta Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur býður sig fram til emb­ættis for­seta Íslands.

Guðni Thorlacius Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur hefur lengi verið álits­gjafi fjöl­miðla þegar kemur að umfjöll­unum um störf for­seta Íslands og emb­ættið sem slíkt. Hann hefur stundað kennslu við ýmsa háskóla, gefið út fjölda fræði­rita og bóka og starfar í dag sem dós­ent í sagn­fræði við Há­­skóla Íslands. Hann hefur haldið sig utan flokks­bund­innar póli­tíkur allan sinn feril og virð­ist sækja fylgi bæði til vinstri og hægri. Fyrir rúmum mán­uði útskýrði Guðni atburð­ar­rás­ina eftir Panama­skjölin fyrir sjón­varps­á­horf­endum í margra klukku­tíma beinni útsend­ingu þegar for­seti neit­aði for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof. Í kjöl­farið fór að bera meira á eft­ir­spurn­inni eftir Guðna sjálfum á Bessa­staði.

„Það var skorað á mig og ég tók þeim áskor­unum, en ákvörð­unin var auð­vitað mín og Elizu, kon­unnar minnar. Mér finnst að í for­seta­kjöri þurfi kjós­endur að hafa ákveðið val og sú sýn á emb­ættið sem ég hef er þannig að mér finnst gott að hún sé í boði. Mér finnst ég hafa stefnu og sjón­ar­mið sem mega heyr­ast í þess­ari kosn­inga­bar­áttu,“ segir hann. 

Var viss um að fólk vildi konu

En atburð­ar­rás síð­ustu vikna var þó ekki fyrsta kveikjan að hug­myndum Guðna um fram­boð.

„Það var nefnt fyrir ára­mót hvort ég vildi gefa kost á mér, færi svo að Ólafur Ragnar hætti. Þegar hann ákvað að hverfa á braut færð­ist smá þungi í það, en ég gaf það frá mér. Ég var nokkuð viss um að þjóðin vildi fá konu í fram­boð og ég sá ekki fyrir mér að ég mundi vilja sækj­ast fast eftir þessu núna. Ég sagði við fólk að það ætti að tala við mig eftir 12 ár, þá væri ég til í slag­inn. Og sagði það meira að segja hálf­part­inn í gamni, en líka í alvöru,“ segir hann. „En svo gerð­ist þetta bara. Ég lenti í þessu kast­ljósi fjöl­miðl­anna og þurfti að tala um mál sem ég hafði sér­þekk­ingu á, og þá breytt­ist allt. Ég fékk bylgju áskor­ana og fólk út um allt hvatti mig til þess að fara í fram­boð. Ég þurfti ekki að sann­færa sjálfan mig um það að ég gæti valdið þessu emb­ætti, ég vissi það alveg. Og ég vissi að ég þekki sög­una, veit til hvers er ætl­ast af for­seta og treysti mér til þess að gegna emb­ætt­inu þannig að sómi sé að.“

„Sitjandi forseti sigrar alltaf“

Guðni seg­ist þá hafa þurft að hug­leiða hvort hann hefði eitt­hvað fram að færa sem væri ekki í boði nú þegar.

„Maður þurfti líka að meta líkur á sigri. Ég hefði ekki viljað fara í fram­boð ein­göngu til þess að kynna mín stefnu­mál og ég komst að þeirri nið­ur­stöðu að ég hefði erindi og gæti haft sigur. Þannig að sunnu­dag einn vorum við í start­hol­unum og ætl­uðum að fara að til­kynna fram­boð, en dag­inn eftir sner­ist Ólafi Ragnari hugur. Og þá varð maður að doka við um stund og hugsa með sér hvort maður vildi bjóða sig fram gegn sitj­andi for­seta. Helgi emb­ætt­is­ins er í mínum huga ennþá slík að það er að minnsta kosti ekki sjálf­gefið. „Sitjandi for­seti sigrar alltaf“ lét ég nú hafa eftir mér ein­hvern tím­ann - og ætl­aði maður þá að storka örlög­unum eða bíða vísan ósigur? Þannig að ég þurfti að hugsa mitt ráð. Og ég komst að því að þótt sitj­andi for­seti hafi alltaf sigrað hingað til, þá hefur eng­inn boðið sig fram sex sinnum svo þetta lög­mál á ekk­ert endi­lega við. Og sá for­seti sem for­sæt­is­ráð­herra styður tapar alltaf og Sigurður Ingi hafði verið svo góður við mig að lýsa yfir stuðn­ingi við Ólaf. En fyrst og fremst ætl­aði ég ekki að láta ein­hvern annan ákveða fyrir mig hvað ég gerði. Þannig að þegar ég hafði haft nægan tíma til að líta yfir sviðið, þá ákvað ég að láta samt slag standa. Svo þró­uð­ust hlut­irnir þannig að Ólafur dró sig í hlé og annar af hans kyn­slóð kom í stað­inn, Davíð Oddsson. Þannig að maður spyr sig bara hvað ger­ist næst, því enn eru nokkrir dagar til stefnu.“

Guðni segist hafa þurft að meta líkurnar á því að hann stæði uppi sem sigurvegari í forsetakosningum áður en hann lýsti yfir framboði. Hann hafi ekki viljað bjóða sig fram eingöngu til að kynna stefnumál sín.
Guðni seg­ist hafa þurft að meta lík­urnar á því að hann stæði uppi sem sig­ur­veg­ari í for­seta­kosn­ingum áður en hann lýsti yfir fram­boði. Hann hafi ekki viljað bjóða sig fram ein­göngu til að kynna stefnu­mál sín.

Skrif sögunnar hans líf og yndi

Eins og áður segir þekkir Guðni hlut­verk og skyldur íslenska for­seta­emb­ætt­is­ins betur en flestir aðrir, sem og kosti þess og galla. Hann svarar um hæl þegar hann er spurður hvort hann langi ein­læg­lega að verða for­seti Íslands.

„Já. Annars væri ég ekki að þessu. Það hefur verið mitt líf og yndi að skrifa sög­una, fátt veit ég skemmti­legra. En að taka þátt í að skapa hana væri senni­lega ekki síðra. Nái ég kjöri, verður erfitt stundum að sitja á Bessa­stöðum, þó að ég hafi ekki leitt hug­ann mikið að því núna. Ég vil taka þetta eitt skref í einu.“

Það hefur verið mitt líf og yndi að skrifa sög­una, fátt veit ég skemmti­legra. En að taka þátt í að skapa hana væri senni­lega ekki síðra.

Tilbúinn að glíma við stjórnarkreppu

Hann seg­ist full­kom­lega undir það búinn að taka þátt í, og leiða til lykta, erf­iðar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður.

„Fordæmin, hefðin og sagan eru þannig að það er nauð­syn­legt að kunna skil á öllu sem gengið hefur á. Venjur og hefðir eru líka sjón­ar­mið sem þarf að virða og þetta er atburð­ar­rás sem þarf að ganga vel og hratt fyrir sig. Þetta þekki ég mjög vel og væri svo sann­ar­lega til­bú­inn að glíma við eitt stykki erf­iða stjórn­ar­kreppu. Það sama gildir um synjun laga, við vitum hvernig emb­ættið hefur breyst í þeim efnum. Hér áður var synj­un­ar­valdið álitið dauður bók­stafur, en Ólafur Ragnar vakti þann dauða bók­staf til lífs­ins og það verður ekk­ert aftur snúið með það. Það hefur skap­ast nýr raun­veru­leiki á Bessa­stöðum,“ segir Guðni. Annað skref sé hins vegar að færa þann rétt frá for­seta einum og til fólks­ins í land­inu.

„Við þurfum að koma því í stjórn­ar­skrá að til­tek­inn hluti kjós­enda geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæðis um umdeild mál. Þarna ætla ég bein­línis að beita mér því þetta lítur svo beint að störfum for­seta.“

Venjur og hefðir eru líka sjón­ar­mið sem þarf að virða og þetta er atburð­ar­rás sem þarf að ganga vel og hratt fyrir sig. Þetta þekki ég mjög vel og væri svo sann­ar­lega til­bú­inn að glíma við eitt stykki erf­iða stjórn­ar­kreppu.

Ekki auðvelt að endurskoða forsetakaflann

Guðni seg­ist líka ætla að beita sér fyrir því að kafl­inn í stjórn­ar­skrá um völd og verk­svið for­seta Íslands verði færður í nútíma­horf og end­ur­spegli betur raun­veru­leik­ann en nú er.

„Núna höfum við gömlu bráða­birgða­stjórn­ar­skrána sem var samin með það í huga að hún yrði tekin gagn­gerrar end­ur­skoð­unar. Þeir sem sömdu stjórn­ar­skránna og sam­þykktu árið 1944 þótt­ust vita að suma kafla hennar yrði að minnsta kosti að end­ur­skoða og það gildir um for­setakafl­ann. Og þarna held ég reyndar að nær allir sem láta sig stjórn­ar­skrár­mál nokkru varða séu mér sam­mála. Það þarf að vinna í þeim kafla, en auð­vitað verður það ekk­ert auð­velt. Það takast á and­stæð sjón­ar­mið og mörg sjón­ar­mið, en þó að eitt­hvað sé erfitt þá þýðir það ekki að maður eigi að forð­ast það.“

„Við skulum rétt vona að það verði kosið í haust,“ segir Guðni sem álítur það kost ef næsti forseti kunni stjórnarmyndunarferlið eftir Alþingiskosningar.
„Við skulum rétt vona að það verði kosið í haust,“ segir Guðni sem álítur það kost ef næsti for­seti kunni stjórn­ar­mynd­un­ar­ferlið eftir Alþing­is­kosn­ingar.

Vonar að kosið verði til Alþingis í haust

Nýr for­seti verður kos­inn 25. júní og tekur við emb­ætti 1. ágúst. Allt bendir til þess að kosið verði til Alþingis í haust, þó að end­an­leg tíma­setn­ing sé enn ekki ljós. Færa má rök fyrir því að tím­inn sé naumur fyrir nýjan for­seta að setja sig í stell­ingar áður en mögu­lega þarf að mynda nýja rík­is­stjórn.

„Við skulum rétt vona að það verði kosið í haust. Og ég held að það sé kostur fyrir næsta for­seta, hver sem það verður, að þekkja í þaula það ferli sem fer í gang þegar stjórn fer frá völdum og mynda þarf aðra,“ segir hann og er fljótur að setja sig í stell­ingar fræði­manns­ins þegar talið berst að kom­andi kosn­ingum.

„Skoð­ana­kann­anir benda til að það séu nokkrir kostir í stöð­unni núna í sam­bandi við tveggja flokka stjórnir. Það gerir leik­inn auð­vitað auð­veld­ari. En það gæti vel gerst að það væri ill­mögu­legt að mynda stjórn tveggja flokka,“ segir hann. „Síðast sáum við það árið 1987 að það var ein­göngu hægt að mynda stjórn þriggja flokka og við tók löng og erfið stjórn­ar­kreppa og lá um skeið við að for­seti þyrfti að taka í taumana og að minnsta kosti hóta utan­þings­stjórn, ef ekki mynda hana. Allt þetta þarf að hafa í huga.“

Guðni bendir á að und­an­farið hafi þró­unin að vísu verið þannig að það hefur gengið sífellt betur að mynda rík­is­stjórnir.

„Hér áður fyrr gátu stjórn­ar­mynd­anir dreg­ist á margar vikur. En í seinni tíð hefur þetta gengið mun hraðar, til dæmis þegar Davíð var í stjórn­ar­ráð­inu og réð því sem hann vildi. Og þá sagði hann að það væri algjör óþarfi að raska ró for­seta og mynd­aði bara sínar stjórnir til hægri og vinstri.“

Í seinni tíð hefur þetta gengið mun hraðar, til dæmis þegar Davíð var í stjórn­ar­ráð­inu og réði því sem hann vildi. Og þá sagði hann að það væri algjör óþarfi að raska ró for­seta og mynd­aði bara sínar stjórnir til hægri og vinstri.

„Its the economy, stupid“

Þó að lín­urnar hafi verið skýrar hingað til, gæti það breyst í þessum kosn­ingum með til­komu fylgis Pírata.

„Píratar eru hug­sjóna­fólk og það ber að virða. En það getur verið erfitt fyrir hug­sjóna­fólk að miðla málum og vilji þeir kom­ast í rík­is­stjórn gætu þeir þurft að sætt­ast á mála­miðl­anir sem féllu kannski illa í kramið hjá bak­landi þeirra. En það sama gildir líka um Sjálf­stæð­is­menn og Sam­fylk­ing­una, verði Sam­fylk­ingin enn til, þar gætu tek­ist á mjög and­stæð sjón­ar­mið í sam­bandi við stjórn­ar­skrár­mál og Evr­ópu­mál. En reyndar held ég að í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga verði Evr­ópu­mál og stjórn­ar­skrár­mál ekki endi­lega í brennid­epli. Ég held að við getum tekið undir með Clinton og hans mönnum þegar þeir útskýrðu hvernig hann hafði betur gegn Bush eldri á sínum tíma: „It‘s the economy, stupid.“ Bush hamp­aði sigri í Persaflóa­stríð­inu fyrra og það gilti lítt þegar efna­hags­málin voru ann­ars vegar, þannig að það er mín til­finn­ing að stjórn­ar­skrár­mál og ESB verði ekk­ert endi­lega mál mál­anna.“

Óttast ekki fylgissveiflur

Guðni hefur verið að mæl­ast vel í könn­unum og verið langefstur und­an­farið, með um 70 pró­senta fylgi í þremur könn­unum í röð. Hann seg­ist ekki ótt­ast fylg­is­sveiflur.

„Fylgið mun lík­lega fara á fleygi­ferð þegar Ólafur Ragnar er horf­inn á braut og ein­hverjir sem gátu ekki hugsað sér að kjósa hann völdu kannski mig bein­línis út af því. Samt er ég nú ekk­ert að velta vöngum yfir því. Númer eitt, tvö og þrjú hjá mér er að kynna mín sjón­ar­mið, kynna mig sjálfan, reyna að hitta sem flesta og ná til sem flestra á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum, og fá fólk þannig til þess að kjósa mig og það sem ég stend fyrir, en ekki til þess að kjósa ekki ein­hvern annan. Og ég bið alla að hugsa ekki þannig, heldur að fylgja sinni sann­fær­ingu.“

Guðni segist styðja þann í embætti forseta Íslands sem fær mest fylgi í kosningum, ef það verður ekki hann sjálfur.
Guðni seg­ist styðja þann í emb­ætti for­seta Íslands sem fær mest fylgi í kosn­ingum, ef það verður ekki hann sjálfur.

Sættir sig við þann sem þjóðin velur 

En hvern vill Guðni sjá sem næsta for­seta Íslands, ef það verður ekki hann sjálfur?

„Þann fram­bjóð­anda sem fær mest fylgi. Það er ekk­ert flókn­ara en það. Davíð Oddsson var stór­brot­inn stjórn­mála­maður, einn umdeild­asti stjórn­mála­maður síð­ustu aldar. Vilji þjóðin kjósa hann til nýrra ábyrgð­ar­starfa þá er það dómur sem ég sætti mig við. Andri Snær er mik­ill hug­sjóna­maður sem ég ber mikla virð­ingu fyrir og okkur Andra hefur alltaf komið mjög vel saman og ég þekki fólkið í kring um hann. Hann mundi sóma sér vel á Bessa­stöðum. Höllu þekki ég líka, hún hefur unnið með kon­unni minni, Elizu. Sturla Jónsson, talandi um að hafa hug­sjónir, ég virði hann og hlakka til að hlusta á hann lýsa stjórn­ar­skránni með sínu nefi. Og þetta er ekki frumraun Ástþórs á þessum vett­vangi svo maður veit svona aðeins að hverju maður gengur þar. Margt varð­andi þetta fólk hugn­ast mér, en ekki svo mikið að ég ætli að kjósa þau,“ segir Guðni og hlær. „Það er fólkið sem velur for­set­ann, það er bara svo ein­falt. Það slag­orð var notað í for­seta­kjör­inu árið 1952, fyrsta for­seta­kjör­inu á Íslandi þegar fólk skund­aði á kjör­stað og kaus sér for­seta. Þetta er enn í góðu gildi.“

Það verða bara allir, gjörið svo vel, að arka á kjör­stað og kjósa þann sem þeim líst best á.

Guðni segir kosn­ingu mikil for­rétt­indi sem fólk megi ekki gleyma.

„Á næst­unni fáum við, að því er virð­ist, í tvígang að ganga til lýð­ræð­is­legra kosn­inga og það megum við ekki van­meta. Sér­stak­lega verður að leggja áherslu á þetta við unga fólkið, sem tekur því kannski sem gefnu að þetta séu sjálf­sögð mann­rétt­indi og nýtir þau þess vegna ekki. Það verða bara allir, gjörið svo vel, að arka á kjör­stað og kjósa þann sem þeim líst best á.“

Kjarninn birtir viðtöl yfir Hvítasunnuhelgina við þá forsetaframbjóðendur sem hafa mælst best í skoðanakönnunum undanfarið. Tekið skal fram að Davið Oddsson hafnaði beiðni Kjarnans um viðtal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár