Hvað er eiginlega að Ólafi Ragnari?

Guðni Th. Jóhann­es­son, dós­ent í sagn­fræði við Háskóla Íslands, fjallar um for­seta Íslands á árinu 2015.

Á nýárs­dag kemur í ljós hvort Ólafur Ragnar Grímsson sæk­ist eftir end­ur­kjöri þegar gengið verður til for­seta­kosn­inga næsta sumar. Aldrei hefur verið beðið eftir ávarpi þjóð­höfð­ingja lands­ins með eins mik­illi eft­ir­vænt­ingu og óvissu. Þótt fjöldi lands­manna vilji hlýða á sinn for­seta er yfir­leitt lítil spenna í loft­inu á íslenskum heim­ilum eftir hádegi á nýárs­dag. Þá sitja menn ekki endi­lega við sjón­varp eða tölvu, sumir jafn­vel eitt­hvað eftir sig að löngum gleð­skap loknum.

Hvað mun for­set­inn til­kynna? Í orðum og verkum Ólafs á því ári sem er að líða má hæg­lega finna vís­bend­ingar um hvort tveggja, að hann ætli að láta gott heita eða hann vilji áfram sitja Bessa­staði. Byrjum á síð­asta nýársávarpi. Í því var rauður þráður, ákall til lands­manna að vera bjart­sýnir, standa saman og meta að verð­leikum afrek þjóð­ar­innar að fornu og nýju. Um leið vand­aði for­seti um við þá sem gagn­rýndu í sífellu, oftar en ekki með kald­hæðni að vopni. Líkast til beindi hann helst orðum sínum að fjöl­miðla­fólki og fræða­sam­fé­lag­inu svo­nefnda. Ég var að minnsta kosti í hópi þeirra sem tóku þetta til sín. „Þjóð getur aldrei þrif­ist á gagn­rýn­inni einni saman, þótt læra þurfi af mis­tökum,“ sagði þjóð­höfð­ing­inn í sínum föð­ur­lega tón: „Hún verður einnig að halda til haga hinum góðu verkum, heiðra það sem vel var gert, vita hve oft henni hefur tek­ist að ná og halda til jafns við aðra; hvaða verk skipa henni í fremstu röð.“

Þetta voru for­seta­leg orð, í anda Vigdísar eða Krist­jáns Eldjárns ef því er að skipta. En Ólafur Ragnar á sér for­tíð, guð­faðir útrás­ar­innar. Auðvitað sætti ræðan því gagn­rýni, meðal ann­ars hér í Kjarn­anum þar sem menn þótt­ust sjá að margt í ávarpi for­seta væri end­ur­nýtt frá 2008, því hörm­ung­ar­ári Íslands­sög­unnar.

Skömmu síðar var Ólafur Ragnar í heims­press­unni, í og með út af arfi útrásar og hruns. Í byrjun mars sagði við­skipta­tíma­ritið Forbes þannig frá hruni íslensku bank­anna í októ­ber 2008 að þegar rík­is­stjórn Ólafs Ragnars Gríms­sonar hefði verið komin með einn banka undir sinn vernd­ar­væng og hinir í algerri nauð hefði for­set­inn slegið á þráð­inn til rík­asta manns Íslands, Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, og fært honum skýr skila­boð: „Komdu heim. Núna.“

Þetta var ímynd hins vold­uga for­seta og síðar í mán­uð­inum fengu þing­menn að kenna á vendi hans. Þá mælti þjóð­höfð­ing­inn á allt annan hátt en Vigdís og Kristján hefðu nokkurn tím­ann talið við hæfi, og ekki heldur hinir „póli­tísku“ for­verar þeirra, Sveinn Björns­son og Ásgeir Ásgeirs­son. Í veislu þing­manna, nokk­urs konar árs­há­tíð þeirra sem var end­ur­vakin eftir tíma­bund­inn sparn­að­ar­anda eft­ir­hrunsár­anna, tal­aði Ólafur Ragnar að sögn til gesta „eins og þeir væru hálf­vitar“ sem skildu ekki stjórn­skipan lands­ins.

Í maí var for­seti enn í ham. Nú hafði hann hins vegar að skot­spæni einn helsta fjanda Íslands úr hrun­inu. Á mál­þingi CNN og London Business School sak­aði Ólafur Gordon Brown, for­sæt­is­ráð­herra Breta þegar ham­far­irnar dundu yfir, um verstu kúg­un­ar­til­burði vald­hafa sem hann hefði nokkurn tím­ann orðið vitni að. Í næsta mán­uði var hann enn utan land­stein­anna, sat fund til heið­urs banka­stjórn Goldman Sachs og ræddi meðal ann­ars um lofs­verðan árangur Íslend­inga í glímu þeirra við alþjóða­fjár­málakrepp­una. Þarna og víðar horfði Ólafur Ragnar helst til útlanda í leit að ástæðum banka­hruns­ins hér. Vandinn var ekki heima­til­bú­inn heldur skipti mestu að ill öfl ytra höfðu níðst á Íslend­ingum. Síðan hefðum við sjálf komið okkur á réttan kjöl.

Forseti skrif­aði undir lögin en sagði áskor­un­ina sýna „hve lif­andi mál­skots­rétt­ur­inn væri í hugum þjóð­ar­innar“. Það voru inn­an­tóm orð. Í raun þýddi nið­ur­staðan að engin skýr við­mið réðu því hvenær hinn helgi réttur virk­aði og hvenær ekki.

Þannig mælti hinn bjart­sýni for­seti Íslands, sá sem hafði leyft þjóð­inni í tvígang að hafna Icesave-ánauð í boði mis­vit­urra stjórn­valda. En um hvað máttu lands­menn eiga loka­orð og hvað ekki? Sú spurn­ing vakn­aði í júlí síð­ast­liðnum. Tæplega 54.000 Íslend­ingar skrif­uðu undir þá áskorun til for­seta að stað­festa ekki lög um skipt­ingu mak­ríl­kvóta og leyfa kjós­endum að segja hug sinn. Það dugði þó ekki til. Forseti skrif­aði undir lögin en sagði áskor­un­ina sýna „hve lif­andi mál­skots­rétt­ur­inn væri í hugum þjóð­ar­innar“. Það voru inn­an­tóm orð. Í raun þýddi nið­ur­staðan að engin skýr við­mið réðu því hvenær hinn helgi réttur virk­aði og hvenær ekki. „Skil­grein­ingar hans og yfir­lýs­ingar fjúka til og frá eins og lauf­blöð sem fallið hafa að hausti,“ skrif­aði Þor­steinn Pálsson um sjón­ar­mið Ólafs Ragnars Gríms­sonar. Það mátti til sanns vegar færa.

Í sept­em­ber sýndi for­seti að honum hugn­uð­ust lítt breyt­ingar á stöðu mála. Í það minnsta yrði að vanda til verka og ekki dygðu þær umræður sem þegar hefðu farið fram, hvorki á vett­vangi stjórn­laga­ráðs né stjórn­ar­skrár­nefndar Alþingis. Greinar um þjóð­ar­eign og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur ættu vissu­lega heima í stjórn­ar­skrá, sagði Ólafur Ragnar við setn­ingu Alþingis, „en samn­ing þeirra er vanda­verk og hvorki þröng tíma­mörk né sparn­að­ar­hvöt mega stofna gæðum verks­ins í hættu“. Humphrey Appleby í bresku gam­an­þátt­unum „Já, ráð­herra“ hefði ekki getað orðað það betur.

Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn Pírata, sem notið hafa yfir­burða­fylgis í skoð­ana­könn­unum allt árið, beindi spjótum sínum óðara að Ólafi Ragnari og sak­aði hann um „aðför að lýð­ræð­inu“ og „bein afskipti af störfum þings­ins“. Aftur mætti benda á að for­verar Ólafs á for­seta­stóli hefðu aldrei talað á sama hátt til þing­heims, og reyndar ekki hann sjálfur fyrr á tíð. Fyrstu árin á Bessa­stöðum hélt hann því fram að for­seta bæri ekki að tjá sig um mál sem Alþingi hefði til umfjöll­unar. Svona hefur emb­ættið mót­ast og breyst í með­förum Ólafs Ragnars Gríms­sonar.

Á árinu sem er að líða voru norð­ur­slóðir ofar­lega í huga for­seta sem fyrr. Hann á mestan heiður af Arctic Circle – Hring­borði norð­ur­slóða sem haldið var í Hörpu í októ­ber í þriðja sinn. Meira að segja svarnir fjendur Ólafs úr stjórn­mála­bar­áttu fyrri ára mátu þetta frum­kvæði hans, ekki síst þegar frétt­ist að norskir vald­hafar kvört­uðu undan því að Íslend­ingar hefðu náð for­ystu í norð­ur­slóð­ar­málum undir dyggri stjórn for­set­ans.

Þegar Ólafur var fyrst kjör­inn for­seti árið 1996 sögðu margir kjós­endur að reynsla hans á alþjóða­vett­vangi og þekk­ing á alþjóða­málum hefði ráðið mestu um val þeirra. Var þetta enn styrkur hans tveimur ára­tugum síðar? Norð­ur­slóðir, end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar og aðgerðir til að sporna við hlýnun jarðar eru ær og kýr hins heims­vana for­seta. Vei þeim sem reynir að reka hann á gat í þessum efnum. Ekki er þar með sagt að hann hafi ætíð lög að mæla. Auk þess freist­ast hann til að ýkja áhrif Íslend­inga, örþjóðar á jaðri, á þróun mála. Drjúgur hluti lands­manna myndi þó segja að jafn­vel þótt ein­hver nöldr­andi fræði­maður hefði rétt fyrir sér um það bæri for­seta einmitt að bera höf­uðið hátt og eiga háleita drauma. Hver vill kalla yfir sig svart­sýnan og stúr­inn þjóð­höfð­ingja?

Á öðrum sviðum alþjóða­mála orka við­horf Ólafs Ragnars tví­mælis. Eftir hryðju­verka­árás­irnar í París í nóv­em­ber lýsti hann því yfir í morg­un­þætti Bylgj­unnar að „barna­leg ein­feldni“ mætti ekki ráða við­brögðum manna. Öfga­fullir ísla­mistar væru „mesta vá okkar tíma“ og hættan sem af þeim staf­aði yrði ekki leyst með „aðgerðum á sviði umburð­ar­lyndis og félags­legra umbóta“. Þetta var popúl­ismi, sögðu sumir, sjálf­sögð sann­indi, sögðu aðrir. Víst er að ummæli for­seta vöktu ekki sam­stöðu og ein­hug með þjóð­inni á erf­iðum tímum. Kannski var það ómögu­legt. Langt var síðan Ólafur Ragnar missti sam­ein­ing­ar­táknið úr höndum sér og kannski er ekki lengur hægt að ætl­ast til þess að for­seti geti talað þannig að þjóðin öll sé sátt. Sam­fé­lagið er allt annað og fjöl­breytt­ara. Og kannski eru hug­myndir okkar um sam­ein­andi for­seta áður fyrr tál­sýnin ein, í það minnsta ýkjur. Þá var ekki til siðs að skamma for­seta, þá var ekki facebook og twitter.

Kannski gæti öðru­vísi for­seti um okkar daga samt náð að sætta fólk og lýsa betur hinum ólíkum skoð­unum sem ein­kenna nútíma­sam­fé­lög. Kannski sumum þætti það veik­ari for­seti, hálf­volgur og hik­andi. Það yrði þá að hafa það og vissu­lega væri það synd ef hug­myndin um sam­ein­andi þjóð­höfð­ingja, sem Íslend­ingar áttu sér við lýð­veld­is­stofnun, heyrði nú sög­unni til. Sam­ein­ing­ar­tákn þarf ekki að vera hnjóðs­yrði, ekki frekar en umburð­ar­lyndi svo annað dæmi sé tekið.

Nokkrum dögum eftir atburð­ina í París mátti hæg­lega ætla að Ólafur Ragnar stefndi á end­ur­kjör eina ferð­ina enn – og afstaða hans bæri jafn­vel keim af því. Hann væri sem fyrr sá sem stæði fastur fyrir þegar öðrum væri ekki endi­lega treystandi. „Þjóðin ræður“, var yfir­skrift við­hafn­ar­við­tals við Ólaf Ragnar Grímsson í DV sem dreift var á öll heim­ili lands­ins. Þar upp­lýsti for­seti að hann hitti sífellt fólk sem hvetti hann til að halda áfram. Það væri í raun „visst áhyggju­efni að það skuli enn vera svo ríkt í hugum manna að það þurfi að vera á Bessa­stöðum ein­stak­lingur sem ekki hagg­ast í róti umræð­unnar, bloggs­ins og hit­ans sem fylgir átökum dags­ins“. Að vísu fylgdi fyr­ir­vari: „Þar með er ég ekki að segja að ég sé eini mað­ur­inn sem geti gegnt því hlut­verki.“

Í upp­hafi þessa mán­aðar heyrð­ist svo end­ur­ómur útrásar og hruns. Oflæt­is­árin fyrir 2008 tald­ist Sigurður Ein­ars­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, til nán­ustu ráð­gjafa Ólafs Ragnars Gríms­sonar. Fyrir það fékk Sigurður fálka­orðu úr hendi for­seta. Átta árum síðar svipti Ólafur hann þeim heiðri. Sitt sýnd­ist hverjum. Var sparkað í liggj­andi mann, tukt­hús­lim á Kvía­bryggju, eða var for­seta nauð­ugur einn kostur að sýna gömlum sam­herja hvorki mis­kunn né náð?

Ekki er hægt að taka undir þá gagn­rýni að þarna hafi for­set­inn viljað sýna þjóð sinni að hann hafi snúið baki við auð­mönnum sem sviku hann og aðra. Það væri of bil­legt og for­set­inn er miklu skyn­sam­ari og klók­ari en svo að hann beiti ódýrum brellum – nema kannski hann sé þess full­viss að þær virki. Laust fyrir jól útdeildi Ólafur Ragnar mat og jóla­gjöfum Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar í Reykja­nesbæ. Við hlið hans var eig­in­konan Dorrit, komin frá heim­ili sínu í London. Aftur heyrð­ust þær raddir að nú væri Ólafur í kosn­inga­ham og vildi sýna sig sem for­seta fólks­ins. Hann stæði með almenn­ingi gegn öllum sem létu það við­gang­ast að óþörfu að fólk þyrfti að betla nauð­þurftir í aðdrag­anda hátíð­anna. Hér þarf þó að hafa í huga að for­seti hafði áður stutt starf Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar og ann­arra mann­úð­ar­sam­taka með nær­veru sinni.

Í árs­lok er málum því svo komið að hinn sterki, bjart­sýni og óút­reikn­an­legi for­seti hefur helgað sér sviðið og athygl­ina. Efst á lista tíma­rits­ins Man um hund­rað valda­mestu Íslend­ing­ana trón­aði Ólafur Ragnar Grímsson. Í könn­unum á árinu var naumur meiri­hluti lands­manna einatt ánægður með störf for­seta, um fjórð­ungur ekki og hinir tóku ekki afstöðu. Forseti virt­ist enn í fullu fjöri þótt merkja megi af dag­skrá hans að atorkan er ekki eins mikil og áður. Þannig flutti Ólafur færri ávörp og form­legar kveðjur á þessu ári en nokkru sinni fyrr frá 1996.

Hvað ger­ist næst? Auðvitað ætti ekki að leika nokkur vafi á því. Vart voru liðnar nokkrar mín­útur frá því að úrslit í for­seta­kjör­inu 2012 lágu fyrir þegar Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti að það kjör­tíma­bil sem þá var að hefj­ast og senn rennur á enda yrði hans síð­asta.

Hvað ger­ist næst? Auðvitað ætti ekki að leika nokkur vafi á því. Vart voru liðnar nokkrar mín­útur frá því að úrslit í for­seta­kjör­inu 2012 lágu fyrir þegar Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti að það kjör­tíma­bil sem þá var að hefj­ast og senn rennur á enda yrði hans síð­asta. Þessi orð hefur hann síðan end­ur­tekið. Fyrri for­setar kunnu líka að hverfa á braut þótt þeir nytu enn vin­sælda og ættu víst yfir­burða­fylgi. „Ekki skaltu freista Drottins Guðs þín og þá ekki heldur þjóðar þinnar með þrá­setu,“ sagði Ásgeir Ásgeirs­son. „Enginn hefur gott af því að kom­ast á það stig að fara að ímynda sér að hann sé ómissandi,“ sagði Kristján Eldjárn.

Alls ekki er þó úti­lokað að á nýárs­dag til­kynni Ólafur Ragnar Grímsson að hann hygg­ist enn á ný vera í fram­boði til for­seta Íslands. Geri hann það virð­ist hann eiga sig­ur­inn vísan. Önnur for­seta­efni yrðu fall­byssu­fóður. Sitjandi for­seti sigrar alltaf. Það segir sagan að minnsta kosti. Á hitt er þó að líta að ein­hvern tím­ann verður allt fyrst. Öflugur fram­bjóð­andi sem stæði einn and­spænis Ólafi gæti heldur betur velgt honum undir uggum. Að því sögðu er for­seti helst í ess­inu sínu að hann þurfi að berj­ast. Sá er einmitt kostur hans og galli.

Margir eiga það því sam­eig­in­legt að spyrja sig og aðra hvað sé eig­in­lega að Ólafi Ragnari Gríms­syni. En fólk mælir nú sjaldn­ast einum rómi. Þjóð er ekki órofa heild og í þessum orðum skipta áherslur máli. Hvað er eig­in­lega að honum? spyrja þeir sem finnst for­seti hafa setið nógu lengi á valda­stóli, gam­all valda­karl með sitt­hvað á sam­visk­unni. Hins vegar eru þeir líka til sem spyrja: Hvað er eig­in­lega að for­set­anum? Herra Ólafur hafi staðið sig vel, komið í veg fyrir Icesave og hugs­an­lega aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, þau Ólafur og Dorrit séu landi og þjóð til sóma, ekk­ert for­seta­efni sem stand­ist sam­jöfnuð hafi komið fram og hann sé í fullu fjöri. Já, nýársávarpið verður óvenju spennu­þrungið í þetta sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár