Forseta Íslands ofbauð talsmáti þingmanna á Klaustur bar

Guðni Th. Jóhann­es­son segir að talsmáti þing­manna á Klaustur bar hafi ofboðið honum í Silfrinu í morgun. Hann segir það ekki sitt hlut­verk að segja þing­mönn­unum til synd­anna en hann voni að fólki finni hjá sjálfum sér hvernig beri að bregð­ast við.

Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhann­es­son Mynd: Skjátskot úr Silfrinu

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, segir að talsmáti alþing­is­manna á Klaust­urs­barnum hafi auð­vitað ofboðið honum. Hann segir að þing­menn­irnir hafi gerst sekir um virð­ing­ar­leysi og sjálfs­upp­hafn­ingu „Þetta er ekki leiðin til auka traust almenn­ings á Alþingi. Að við­hafa svona orð­færi sem er til merkis um ein­hvern und­ir­liggj­andi vanda. Manni ofbauð, það er ekk­ert flókn­ara en það,“ segir Guðni í við­tali í Silfrinu í morgun.

Í valdi kjósenda að ráða og reka þingmenn

Guðni segir í við­tal­inu að þetta sé ekki leiðin til auka traust almenn­ings á Alþingi en svarar aðspurður um hvernig hægt sé að end­ur­reisa traust að það sé ekki hans sem for­seta lands­ins að segja þing­mönnum ekki fyrir verkum, ráði þá eða reki. „Allt það er nú í valdi kjós­enda og svo er sam­viskan það vald sem frjálsir menn hlýða,“ segir Guðni.

Hann segir jafn­framt að mik­il­vægt sé fyrir alla að reyna standa sig vel í vinn­unni, sér­stak­lega þá sem eru í þjóð­kjörnum stöðum. „En ég held að það yrði ekki til fram­dráttar góðum mál­stað ef ég færi að setja mig á afskap­lega háan stall og segja öðrum til synd­anna. En um leið leyfir maður sér að vona að fólk finni hjá sjálfu sér hvað það hefur gert og hvernig beri að bregð­ast við,“ segir Guðni.[adspot]

Viðtalið við Guðna var tekið á föstu­dag­inn, áður en til­kynnt var að Gunnar Bragi og Bergþór væru farnir í leyfi og að búið væri að reka þá Karl Gauta og Ólaf úr Flokki fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár