Guðni Th. búinn að staðfesta búvörulögin

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur skrifað undir búvöru­lögin og þar með hafa nýir búvöru­samn­ingar öðl­ast gildi. Und­ir­skrifta­söfnun sem hvatti Guðna Th. til að synja lög­unum und­ir­rit­unar og vísa þeim þess í stað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu var hrint af stað eftir að lögin voru sam­þykkt á Alþingi. Til stóð að safna 15 þús­und und­ir­skriftum en í gær voru þær undir 4.500. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Búvöru­samn­ing­arnir voru sam­þykktir á Alþingi 13. sept­em­ber. Þeir munu kosta rík­is­sjóð yfir 130 millj­arða króna á næstu tíu árum hið minnsta. Sú tala gæti hækkað þar sem samn­ing­arnir eru tvö­falt verð­tryggð­ir. Samn­ing­arnir hafa verið harð­lega gagn­rýndir frá því að þeir voru und­ir­rit­aðir í febr­úar af núver­andi leið­togum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Gagn­rýnin snýr helst að því að hags­munir bænda og þeirra fyr­ir­tækja sem njóta góðs að land­bún­að­ar­kerfi Íslend­inga hafi verið teknir fram yfir hags­muni neyt­enda og skatt­greið­enda við gerð þeirra, sér­stak­lega vegna þess mikla kostn­aðar sem fylgir þeim og að þeir eiga að gilda til tíu ára, eða í tvö og hálft kjör­tíma­bil.

Þrátt fyrir háværa and­stöðu og stór orð sem látin hafa verið falla í ræðu­stólum Alþingis um þá voru samn­ing­arnir sam­þykkt­ir. En ein­ungis 19 þing­menn, eða 30 pró­sent allra þing­manna, greiddu atkvæði með þeim. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir þessa gríð­ar­lega mik­il­vægu og bind­andi atkvæða­greiðslu sem mun móta eitt af lyk­il­kerfum íslensks sam­fé­lags, hið rík­is­styrkta land­bún­að­ar­kerfi, næsta ára­tug­inn.

End­ur­skoð­un­ar­á­kvæði var sett inn í samn­ing­anna eftir aðra umræðu sem segir að skipa eigi sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun á samn­ing­unum. Hann á að skila nið­ur­stöðu sinni eftir þrjú ár, eða fyrir árs­lok 2019. End­ur­skoð­unin mun hins vegar ekki öðl­ast gildi nema að bændur sam­þykki hana í atkvæða­greiðslu. Hafni þeir henni mun tíu ára samn­ing­ur­inn gilda áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár