Bændur ráða því hvort búvörusamningar séu til þriggja eða tíu ára

Bændur eru með neit­un­ar­vald gagn­vart end­ur­skoðun á búvöru­samn­ing­unum sem á að fara fram árið 2019. Hafni þeir til­lögum að end­ur­skoðun gilda samn­ing­arnir áfram eins og þeir eru. Búvöru­samn­ingar voru gerðir til tíu ára og kosta 13-14 millj­arða á ári.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðu búvörusamninganna 19. febrúar síðastliðinn. Aðrir sem undirrituðu þá voru fulltrúar bænda.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­rit­uðu búvöru­samn­ing­anna 19. febr­úar síð­ast­lið­inn. Aðrir sem und­ir­rit­uðu þá voru full­trúar bænda. Mynd: stjornarrad.is

Bændur ráða því hvort búvöru­samn­ing­unum sem sam­þykktir voru á þriðju­dag verði end­ur­skoð­aðir eftir þrjú ár. Hafni þeir þeim breyt­ingum sem sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun á samn­ing­unum skilar í atkvæða­greiðslu sem fram á að fara árið 2019 mun engin end­ur­skoðun á samn­ing­un­unum eiga sér stað. Búvöru­samn­ing­arnir gilda til tíu ára, í tvö og hálft kjör­tíma­bil, og kosta á bil­inu 13-14 millj­arða króna á ári. Áætlaður heild­ar­kostn­aður vegna þeirra á þeim ára­tug sem gild­is­tími þeirra nær yfir er um 132 millj­arðar króna. Samn­ing­arnir eru hins vegar tvö­falt verð­tryggðir og því mun kostn­aður vegna þeirra aukast í sam­ræmi við verð­bólgu.

Ein­ungis 19 þing­menn, eða 30 pró­sent allra þing­manna, greiddu atkvæði með samn­ing­unum þegar þeir voru sam­þykktir á Alþingi á þriðju­dag. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir þessa gríð­ar­lega mik­il­vægu og bind­andi atkvæða­greiðslu sem mun móta eitt af lyk­il­kerfum íslensks sam­fé­lags, hið rík­is­styrkta land­bún­að­ar­kerfi, næsta ára­tug­inn. Enginn þing­maður Pírata, Sam­fylk­ingar eða Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn samn­ingnum. Þeir sjö þing­menn sem það gerðu voru allir þing­menn Bjartrar fram­tíðar og Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Auk þess sátu fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks sem voru við­staddir atkvæða­greiðsl­una hjá við hana. Aðrir þing­menn stjórn­ar­flokka sem voru við­staddir sam­þykktu samn­ing­anna.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um samn­ing­anna í frétta­skýr­ingu í gær.

Bjarni og Sigurður Ingi undirrituðu

Nýj­ustu samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir 19. febr­úar síð­ast­lið­inn af full­trúum bænda ann­ars vegar og full­trúum rík­is­ins. Fyrir hönd rík­is­ins skrif­uðu Sig­urður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra og nú for­sæt­is­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, undir samn­ing­anna.

Þeir voru afar umdeildir og vöktu upp miklar deilur í sam­fé­lag­inu. Þrennt skipti þar mestu. Í fyrsta lagi lengd þeirra, en samn­ing­arnir binda þrjár næstu rík­is­stjórnir. Í öðru lagi feyki­lega hár kostn­aður sem greiddur er úr rík­is­sjóði til að við­halda kerfi sem að mati margra hags­muna­að­ila er fjand­sam­legt neyt­endum og bændum sjálfum og gagn­ast fyrst og síð­ast stórum milli­liðs­fyr­ir­tækjum eins og Mjólk­ur­sam­söl­unni, Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga og Slát­ur­fé­lagi Suð­ur­lands. Í þriðja lagi var gagn­rýnt að engir aðrir en bændur og for­svars­menn rík­is­ins hafi verið kall­aðir að borð­inu þegar samn­ing­arnir voru und­ir­búnir.

Lofuðu endurskoðun eftir þrjú ár

Í lok ágúst lagði meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar fram breyt­ing­ar­til­lögur á samn­ing­un­um. Þegar þær voru kynntar var látið að því liggja að í til­lög­unum væri skýrt kveðið á um end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði innan þriggja ára. Engar frek­ari breyt­ingar voru gerðar á lögum sem gera samn­ing­anna gild­andi eftir þær breyt­inga­til­lögur. 

Ákvæðið um end­ur­skoðun samn­ing­anna er þó ekki mjög skýrt. Í áliti meiri­hluta­nefndar atvinnu­vega­nefndar sagði: „Meiri hlut­inn leggur áherslu á að við sam­þykkt frum­varps­ins nú eru fyrstu þrjú ár samn­ing­anna stað­fest og mörkuð fram­tíð­ar­sýn til tíu ára. Meiri hlut­inn leggur til ákveðna aðferða­fræði fyrir end­ur­skoðun samn­ing­anna árið 2019 og skal ráð­herra þegar hefj­ast handa við að end­ur­meta ákveðin atriði og nýtt fyr­ir­komu­lag gæti mögu­lega tekið gildi í árs­byrjun 2020. Meiri hlut­inn leggur til að end­ur­skoð­unin bygg­ist á aðferða­fræði sem feli í sér víð­tæka sam­still­ingu um land­bún­að­inn, atkvæða­greiðslu um end­ur­skoð­aða samn­inga meðal bænda og afgreiðslu Alþingis á laga­breyt­ingum sem sú end­ur­skoðun kann að kalla á.“

Í breyt­ing­ar­til­lög­unni sjálfri sagði: „Eigi síðar en 18. októ­ber 2016 skal sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Tryggja skal aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­ur­skoð­un­inni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019. Skulu bændur eiga þess kost að kjósa um nýjan búvöru­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­inga.“

Bændur geta hafnað endurskoðun

Ný búvöru­lög, sem fjalla um búvöru­samn­ing­anna, hafa ekki verið birt á vef Alþingis þrátt fyrir að tveir dagar séu frá því að þau voru sam­þykkt. Kjarninn beindi því fyr­ir­spurn til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins um hvort að það bæri að skilja lögin þannig að bændur myndu alltaf fá að kjósa um þá end­ur­skoðun sem muni eiga sér stað eigi síður en árið 2019. Svar ráðu­neyt­is­ins var já. 

Þegar spurt var hvað myndi ger­ast ef bændur myndu hafna þeirri end­ur­skoðun í atkvæða­greiðslu var svarið: „ Ef bændur hafna þeim breyt­ingum sem hugs­an­lega verða gerðar við end­ur­skoð­un­ina 2019 verður aftur sest niður og leitað frek­ari samn­inga.“

Því er ljóst að Bænda­sam­tökin geta ein­hliða hafnað öllum þeim breyt­ingum sem lagðar verða til við'end­ur­skoðun búvöru­samn­inga árið 2019 ef aðilar þeirra eru þeim mót­fallnir. Hafni þeir öllum end­ur­skoð­un­ar­til­lögum munu samn­ing­arnir gilda til þeirra tíu ára sem þeir eru gerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár