Umsóknarferlið flókið og kerfið óliðlegt

Ungur maður frá Litháen sem búið hefur meiri­hluta ævi sinnar hér á landi hefur fengið synjun um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Hann gagn­rýnir umsókn­ar­ferlið og telur það vera flókn­ara og tyrfn­ara en það þyrfti að vera.

Útlendingastofnun
Útlend­inga­stofnun

Audrius Saka­laus­kas sótti um rík­is­borg­ara­rétt fyrir ári síðan og fékk neitun síð­asta vor. Hann er 23 ára og hefur verið búsettur á Íslandi í tæp 18 ár, eða frá því hann var 5 ára gam­all, en hann flutti hingað til lands frá Litháen með fjöl­skyldu sinni.

Audrius er mennt­aður í raf­virkjun og er að ljúka meist­ara­námi í sömu grein. Hann er búinn að reka sitt eigið fyr­ir­tæki í tæpt ár og seg­ist vera búinn að mynda góð tengsl í þeirri atvinnu­grein.

Í sam­tali við Kjarnann gagn­rýnir hann umsókn­ar­ferlið í heild sinni, hvernig staðið sé að upp­lýs­inga­gjöf og hversu ólið­legt kerfið sé. Hann seg­ist hafa fengið neitun vegna þess að þegar hann var yngri þá fékk hann nokkrar umferð­ar­sektir, sem geri hann að „síend­ur­teknum afbrota­manni“, sam­kvæmt Útlend­inga­stofnun.

[adspot]

Líf hans er á Íslandi

Audrius sótti sem sagt um rík­is­borg­ara­rétt á síð­asta ári og íhugar hann nú hvort hann eigi að leggja umsókn að nýju fyrir Alþingi. Alþingi hefur heim­ild til að veita íslenskan rík­is­borg­ara­rétt með lögum. Uppfylli umsækj­andi ekki skil­yrði sem sett eru fyrir veit­ingu íslensks rík­is­borg­ara­réttar í lögum getur hann óskað eftir að umsókn hans verði lögð fyrir Alþingi. Umsóknir eru lagðar fyrir þingið tvisvar á ári, á vor­mán­uðum og í des­em­ber­mán­uði.

Í því ferli þyrfti hann að afla allra gagna á nýjan leik. Hann gagn­rýnir að umsókn­ar­ferlið sé ekki raf­rænt og segir hann að það hafi tekið heil­mik­inn tíma frá vinnu.

Ástæðan fyrir því að hann sótti um rík­is­borg­ara­rétt er sú að líf hans er á Íslandi, konan hans og fjöl­skylda býr hér á landi og seg­ist hann vera meiri Íslend­ingur en Lithái. Hann seg­ist jafn­framt veigra sér við að ferð­ast til útlanda, þar sem hann ótt­ist að þurfa að gegna her­skyldu í Litháen, en þar í landi var her­skylda tekin upp að nýju árið 2015 eftir vax­andi hern­að­ar­um­svif­ Rússa í ná­grenni Eystra­salts­ins.

Tekur ábyrgð á eigin gjörðum

Audrius seg­ist bera fulla ábyrgð á hraða­sektum sínum og að hann hafi verið ungur og vit­laus á þeim tíma sem hann fékk þær. Útlend­inga­stofnun hafi aftur aftur á móti sagt honum að reyna að sækja um rík­is­borg­ara­rétt, þrátt fyrir það. Hann hafi því eytt miklum tíma í umsókn­ina, þar sem hann þræddi fjölda stofn­ana, sem end­aði með synjun.

Faðir Audri­usar kom hingað til lands og vann sem múr­ari en fjöl­skylda hans fylgdi honum ári seinna. „Við lifum fínu lífi,“ segir Audrius en hann á einn eldri bróður sem býr hér með íslenskri konu. Hann segir að bróðir hans búi við aðrar aðstæður en hann sjálfur, þar sem hann er kom­inn yfir þrí­tugt og þurfi ekki að hafa áhyggjur af her­skyldu í Litháen.

Hægt að gera kerfið skilvirkara

Audrius seg­ist alltaf hafa skilað sínu til sam­fé­lags­ins, borgað sína skatta og að hann líti á sig sem virkan þjóð­fé­lags­þegn. Litháen leyfir ein­ungis einn rík­is­borg­ara­rétt og vill Audrius ger­ast Íslend­ingur þar sem hann hefur búið hér á landi lung­ann úr ævi sinni.

Hans gagn­rýni snýr þá að mestu leyti að umsókn­ar­ferl­inu sjálfu, þar sem hann telur að hægt væri að gera kerfið mun skil­virkara og betra fyrir fólk að fóta sig í. Hann hafi ítrekað fengið mis­vísandi upp­lýs­ingar, hann hafi til að mynda verið beð­inn um saka­vott­orð frá Litháen þrátt fyrir að hafa farið þaðan ein­ungis fimm ára gam­all. Síðar kom í ljós að þess var ekki þörf.

Audrius seg­ist skilja vel álagið á starfs­fólk­inu hjá Útlend­inga­stofnun og að ekki sé við það að sakast. Hann spyr sig ein­fald­lega af hverju ferlið þurfi að vera svona langt og flókið, þegar hægt væri að ein­falda það með til að mynda raf­rænni útfærslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár