Er efri millistéttin hluti af vandamálinu?

Umræðan um vax­andi ójöfnuð í Banda­ríkj­unum hefur gjarnan beinst að miklum tekju­hækk­unum mill­lj­arða­mær­inga. Samkvæmt tveimur fræði­mönnum er ein­angrun efri milli­stétt­ar­innar hins vegar aðal­vanda­málið.

Frá fjármálahverfinu Wall Street í New York.
Frá fjár­mála­hverf­inu Wall Street í New York. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á und­an­förnum árum hefur athygli almenn­ings á þeim vanda­málum sem tengj­ast ójöfn­uði auk­ist til muna. Alþjóð­legar stofn­anir benda á hættu­lega þróun á Vest­ur­löndum auk þess sem stjórn­mála­menn hafa beint sjónum að gríð­ar­legri tekju­söfnun efsta pró­sents­ins í tekju­dreif­ing­unni eða jafn­vel efsta 0,01 pró­sents­ins. Hins vegar er annar tekju­hópur, sem gjarnan er kölluð efri milli­stéttin, einnig hluti af vanda­mál­inu að mati tveggja fræði­manna.

9,9 prósentin

Hag­fræð­ing­ur­inn Matthew Stewart gerir ójöfnuð í Banda­ríkj­unum að umfjöll­un­ar­efni sínu í jún­í­hefti tíma­rits­ins The Atlantic. Þar beinir hann augum að þeim þjóð­fé­lags­hópi sem vill kenna sig við efri milli­stétt, eða efstu tekju­tí­und­inni að und­an­skildu hinu rík­asta 0,1 pró­senti þjóð­ar­innar.

Samkvæmt Stewart hefur þessi hópur, sem hann kallar 9,9 pró­sentin, fest sig í sessi sem ný yfir­stétt í Banda­ríkj­unum. Hann fari í bestu skól­ana, búi við betri heilsu og fjar­lægist stöðugt hin 90 pró­sentin sem eru fyrir neðan hann í tekjum.

Draumafangarar

Pælingar Stewarts eru ekki nýjar af nál­inni, en breski rit­höf­und­ur­inn Richard Reeves skrif­aði einnig um sama mál í bók sinni “Dream Hoarders,“ sem kom út í fyrra. Hér má nálg­ast umjöllun The Economist um bók­ina. Þar talar Reeves um þróun efri milli­stétt­ar­innar sem hluti af vanda­máli ójöfn­uðar, skýr lína sé á milli eigna­söfn­unar efsta tekju­fimmt­ungs­ins og hinna. Á tíma­bil­inu 1979-2013 juk­ust raun­tekjur neðstu 80 pró­sent­anna í Banda­ríkj­unum um 42% á meðan raun­tekjur efsta fimmt­ungs­ins jókst um 70% og rík­asta eina pró­sents­ins um 192%.

Glergólfið

Samkvæmt Reeves og Stewart liggur meg­in­vanda­mál þess­arar þró­unar í sjálfs­mynd efri milli­stétt­ar­innar Banda­ríkj­anna sem telur sig hafa kom­ist þangað á eigin verð­leikum. Auðug börn sem kom­ast í bestu skól­ana kjósi oft að líta fram hjá því að mögu­leikar þeirra til mennt­unar hafi alltaf verið meiri en hjá öðrum. Sömu sögu má segja um starfs­mögu­leika, sem ræðst af menntun og við­skipta­tengslum, og maka­leit.

Myndband úr umfjöllun The Atlantic.

Afleið­ingar þess­arar sjálfs­myndar er sú að aðgrein­ingin milli efri milli­stétt­ar­innar og allra hinna eykst, þrátt fyrir ímynd margra af Banda­ríkj­unum sem landi mögu­leik­anna. Hreyf­an­leiki milli stétta hefur minnkað til muna þar í landi á síð­ustu ára­tugum og því eru börn lík­legri til að enda í sömu þjóð­fé­lags­stöðu og for­eldrar sínir. Með því ein­angr­ast efri milli­stéttin í síauknum mæli þar sem allir með­limir hennar sækj­ast í að við­halda þeirra stöðu.

Báðir höf­und­arnir telja breyt­ingu á skatt­kerf­inu nauð­syn­lega til að stemma stigu við þess­ari þróun. Skatt­byrði lág­tekju­hópa þurfi að létta, en sam­kvæmt þeim er hún sér­stak­lega þung vest­an­hafs. Meiri­hluti skattaí­viln­ana fer til hátekju­hópa og við­heldur svoköll­uðu „gler­gólfi“ milli auð­ugra og ann­arra.

Hver er þróunin á Íslandi?

Besti mæli­kvarði á styrk gler­g­ólfs­ins er stétt­ar­hreyf­an­leiki milli kyn­slóða, þ.e. hversu mikið fram­tíð íbúa ræðst af þjóð­fé­lags­stöðu for­eldra þeirra. Þessi mæli­kvarði breyt­ist hægt milli ára og er því ein­angrun milli­stétt­ar­innar í Banda­ríkj­unum afleið­ing þró­unar sem átt hefur sér stað í marga ára­tugi. Ólíklegt er að svipuð staða muni koma upp á Íslandi á næst­unni, en hér er tekju­jöfn­uður hærri auk þess sem hreyf­an­leiki milli stétta er mun meiri.

[links]Hins vegar var útlit fyrir því að Ísland stefndi í sömu átt og Banda­ríkin fyrir hrun, en í kjöl­far fjár­mála­væð­ing­ar­innar sem átti sér stað fyrir rúmum ára­tug síðan jókst ójöfn­uður á Íslandi á ógn­ar­hraða. Þetta eru nið­ur­stöður nýút­gef­innar bókar Stefáns Ólafs­sonar og Arnaldar Sölva Krist­jáns­sonar um ójöfnuð á Íslandi. Samhliða fjár­mála­væð­ing­unni jókst hlut­deild efstu tekju­tí­und­ar­innar af heild­ar­tekjum þjóð­ar­innar, en árið 2007 náði hún hámarki og var þá orðin mjög lík stöð­unni í Banda­ríkj­unum. Á sama tíma dróg­ust lægri tekju­hópar aftur úr hátekju­hóp­unum og tóku jafn­framt á sig veru­lega aukna skatt­byrði.

Þessi þróun tók hins vegar u-beygju eftir fjár­mála­hrunið árið 2008 og ójöfn­uður meðal Íslend­inga minnk­aði jafn­hratt og hann jókst fyrir hrun. Hlut­deild efstu tekju­tí­und­ar­innar af þjóð­ar­tekjum lækk­aði sömu­leiðis hratt og er nú tölu­vert frá­brugð­inn þeirri í Banda­ríkj­unum.

Ein­angrun efri milli­stétt­ar­innar er afleið­ing lang­tíma­vanda­máls vest­an­hafs þar sem ójöfn­uður hefur vaxið hratt. Með meiri ójöfn­uði minnkar hreyf­an­leiki milli stétta og erf­ið­ara verður fyrir efna­minni að kom­ast í efri tekju­þrep sam­fé­lags­ins. Að mati Stewart og Reeves er nauð­syn­legt fyrir Banda­ríkin að brjóta upp það gler­gólf sem mynd­ast hefur milli auð­ugra og ann­arra, vilji þau raun­veru­lega vera „land tæki­fær­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár