Að láta kaupmannsdrauminn rætast

Þeir sem hafa alið með sér þann draum að verða kaup­menn geta nú látið draum­inn ræt­ast og eign­ast verslun í Kaup­manna­höfn. Og það er ekki nein búð­ar­hola sem er til sölu heldur ein þekktasta verslun á Norð­ur­löndum, nefni­lega Magasin du Nord, Den gamle dame.

Magasin du Nord við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn.
Magasin du Nord við Kongens Nytorv í Kaup­manna­höfn. Mynd: Open source

Fullyrða má að flestir Íslend­ingar kann­ist við stór­versl­un­ina Magasin du Nord. Vel­flestir Íslend­ingar sem hafa komið til Kaup­manna­hafnar hafa rölt um stór­hýsið við Kóngsins Nýjatorg en auk þess rekur Magasin fimm aðrar versl­anir og sú sjö­unda verður opnuð í Álaborg í næsta mán­uði. 

Saga þess­arar þekktu stór­versl­unar hófst í Árósum 1868, fyrir réttum 150 árum. Stofn­end­urnir voru Theodor Wessel og Emil Vett og versl­unin, sem seldi vefn­að­ar­vörur hét Emil Vett & Co. Rekst­ur­inn gekk vel og árið 1870 opn­uðu þeir félagar verslun á Østergade (síðar hluti Striks­ins) í Kaup­manna­höfn. Ári síðar flutti síðar flutti versl­unin á þann stað við Kóngsins Nýjatorg þar sem hún er enn í dag. Versl­unin hét þá De for­enede Hvidevar­eforretn­inger ved Th. Wessel & Co og var í hluta Hotel du Nord en það hús var rifið árið 1893 og núver­andi versl­un­ar­hús byggt. Í virð­ing­ar­skyni við gamla hót­elið breyttu þeir félagar árið 1879 nafn­inu á versl­un­inni í Magasin du Nord. Starf­semin í Árósum gekk vel, versl­unin flutti í stærra hús­næði og fyr­ir­tækið stækkað ört. Árið 1890 voru sam­tals 50 Magasin du Nord versl­anir víða í Danmörku, margar þeirra litlar og í eigu ein­stak­linga sem önn­uð­ust rekst­ur­inn. Á fyrstu ára­tugum síð­ustu aldar fjölg­aði Magasin versl­unum og árið 1925 voru þær 170 tals­ins.

Stofn­end­urnir, Theodor Wessel og Emil Vett drógu sig út úr rekstr­inum um alda­mótin 1900. Magasin var skráð á markað árið 1952 en fjöl­skyldur stofn­end­anna áttu til skamms tíma full­trúa í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins

Á árunum eftir 1950 ákvað stjórn Magasin að reka fáar, en stórar versl­anir og nú eru þær sex tals­ins og sú sjö­unda verður opnuð í sept­em­ber. Auk þess rekur Magasin net­verslun þar sem við­skiptin aukast hratt.

Erfiðleikar og kaupin á Illum

Árið 1891 stofn­aði Anton Carl Illum verslun við Østergade (síðar Strikið) í Kaup­manna­höfn. Anton Carl leit­aði ekki langt yfir skammt að nafni á versl­un­ina, hún var ein­fald­lega kennd við hann sjálfan, Illum. Í upp­hafi versl­aði Illum einkum með alls kyns efni og til­heyr­andi til kjóla­saums. Árið 1899 flutt­ist versl­unin yfir göt­una og þar hefur hún verið allar götur síðan. Á þessum árum voru auk Illum og Magasin fleiri stór­versl­anir í Kaup­manna­höfn, en þær heyra nú allar sög­unni til. Illum og Magasin eru stutt hvor frá annarri og hafa ára­tugum saman keppst um hylli við­skipta­vin­anna. Illum lengst af aðeins dýr­ari þótt ekki hafi mun­ur­inn verið mik­ill. Fjöl­skylda stofn­and­ans (sem lést árið 1938) átti versl­un­ina til árs­ins 1972. Stór­aukin sam­keppni olli erf­ið­leikum í rekstri Illum og Magasin en rekstur Illum gekk þó mun verr.

Árið 1991 keypti Magasin Illum en seldi tveimur árum síðar 80% hlut í versl­un­inni til banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­ans Merrill Lynch. Eftir þau eig­enda­skipti varð nokkur breyt­ing á versl­un­ar­húsi Illum við Strikið, aukin áhersla var lögð á dýr­ari varn­ing (verðið hækk­aði líka). Til að gera langa sögu stutta hafa þessar breyt­ingar ekki fallið í kramið hjá Dönum. Rekstur Illum hefur árum saman gengið erf­ið­lega en fyr­ir­tækið hefur um nokkura ára skeið verið í eigu ítölsku versl­ana­sam­steypunnar La Rinascente. Miklu fé hefur verið varið í breyt­ingar og end­ur­bætur en það hefur engu breytt, kúnn­arnir láta sig vanta. Margir undr­uð­ust þegar til­kynnt var fyrir um það bil tveimur árum að mat­vöru­versl­unin Irma, sem verið hafði í kjall­ara Illum um ára­tuga skeið hefði verið sagt upp pláss­inu, nán­ast rekin á dyr. Í stað­inn kæmi ítölsk „hágæða­verslun“ Eataly. Passaði inn í „konseptið“ eins og það var kallað. Irma hafði notið mik­illa vin­sælda og dró að sér mik­inn fjölda við­skipta­vina á degi hverjum. Skemmst er frá því að segja að ítalska „hágæða­versl­unin“ náði sér aldrei á strik, skrif­ari þessa pistils rak þar nokkrum sinnum inn nefið og aug­ljóst var að eig­endur Illum höfðu mis­reiknað sig illi­lega. „Hágæða­versl­un­inni“ hefur nú verið lokað og viti menn, Irma komin aftur.

Íslenska „ævintýrið“

Eins og flestum er kunn­ugt fóru íslenskir athafna­menn mik­inn, jafnt heima og erlendis, á fyrstu árum ald­ar­innar. Slógu um sig í við­skiptum, ekki síst í Danmörku og keyptu árið 2004 Magasin (með húð og hári sagði eitt íslensku blað­anna) og eign­uð­ust með kaup­unum 20% hlut í Illum og ári síðar allt fyr­ir­tækið. Mörgum Dönum þótti nóg um kaupa­gleði Íslend­ing­anna sem keyptu meðal ann­ars á þessum tíma Hotel D‘Anglet­erre, þekktasta hótel Dan­merkur. „Hvaðan koma pen­ing­arnir“ sögðu Danir og klór­uðu sér í koll­inum. Ekki þarf að fjöl­yrða um enda­lok þess­arar útrásar og allt sem þeim fylgdi en „ævin­týrið“ fékk skjótan endi.

Debenhams og Magasin

Árið 2009, þegar íslenska „ævin­týrið“ var úti, keypti breska versl­ana­fyr­ir­tækið Deb­en­hams Magasin, hlutur Íslend­inga í Illum fór á ann­arra hendur. Deb­en­hams, sem verslar með fatnað, heim­il­is­vörur og margt fleira, á sér langa sögu. Var stofnað árið 1778 og var árið 2016 með um 28 þús­und starfs­menn og 180 versl­anir. Allra síð­ustu ár hafa reynst Deb­en­hams þung í skauti og blikur á lofti. Þar kemur ýmis­legt til. Í Bret­landi hefur versl­un­ar­rekstur almennt gengið erf­ið­lega, nema á net­inu, og nú eru óvissu­tímar, ekki síst vegna Brexit. Fyrir skömmu sagði einn af stjórn­endum Deb­en­hams í við­tali við frétta­mann Reuters,að núna væri „kannski“ rétti tím­inn til að end­ur­skoða ýmis­legt í rekstr­inum og nefndi Magasin sér­stak­lega. Í umfjöllun Reuters um erf­ið­leika Deb­en­hams sagði frétta­mað­ur­inn að ekki væri til­viljun að stjórn­and­inn hefði nefnt Magasin. Þar gengi rekst­ur­inn nefni­lega mjög vel. Í áður­nefndu við­tali vildi stjórn­and­inn ekki ræða hugs­an­legt sölu­verð en í við­tali við dag­blaðið Guardian nokkrum dögum síðar nefndi einn stjórn­enda Deb­en­hams töl­una tvo millj­arða danskra króna, um það bil 33 millj­arða íslenska. Hann vildi ekki segja neitt um hvort ein­hverjir hefðu lýst áhuga á að kaupa Magasin en lagði áherslu á að rekstur Magasin versl­an­anna gengi vel og þess vegna hlyti danska fyr­ir­tækið að freista margra.

Breytir einhverju hver eigandinn er ?

Reynslan sýnir að í sjálfu sér skiptir eign­ar­haldið ekki máli. Versl­anir ganga iðu­lega kaupum og sölum án þess að við­skipta­vinir merki breyt­ingar. Mestu skiptir að skynja takt­inn í sam­fé­lag­inu og það virð­ist eig­endum Magasin hafa tek­ist. Líklegt verður því að telja að nýir eig­endur Magasin muni, ef af sölu verður, fara var­lega í breyt­ingar. Reyna ekki að finna upp hjólið. Flýta sér hægt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár