Regnskógar gætu illa ráðið við loftslagsbreytingar

Það getur verið heitt og rakt í regn­skóg­unum en þeir þola þó ekki langvar­andi hátt hita­stig og þurrka. Þannig gætu lofts­lags­breyt­ingar haft áhrif á hina nátt­úru­legu kolefn­is­bind­ingu þeirra.

Maria Witteman og kollegar að störfum í skógum Rúanda.
Maria Witteman og kollegar að störfum í skógum Rúanda.

Geta regn­skóga til að binda kolefni gæti minnkað sam­hliða lofts­lags­breyt­ingum. Þetta gæti gerst bæði vegna þess að hærra hita­stig dregur úr ljóstil­lífun sem á sér stað í lauf­blöðum og vegna þess að nátt­úru­leg kæli­kerfi trjáa hætta að starfa í þurrkum. Hærra hita­stig ógnar ákveðnum teg­undum í regn­skóg­unum sem eru mik­il­væg til bind­ingar kolefnis.

Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem unnin var við Háskól­ann í Gauta­borg.

Vissu­lega eru sumar trjá­teg­undir í hita­belt­inu færar um að ráða við hækkun hita­stigs – að draga í sig vatn og breyta því í gufu til kæl­ingar. Þetta á einkum við um ung og hrað­vaxta tré regn­skóg­anna. Öðru máli gegnir, segir í rann­sókn­inni, um trén í elstu hlutum þeirra. Þau vaxa mun hægar. Stofnar þeirra eru meiri um sig og lauf þeirra ekki jafn fær um að kæla þau með útgufun.

Í til­kynn­ingu frá Gauta­borg­ar­há­skóla um rann­sókn­ina segir að ísaldir fyrri tíma hafi ekki náð til hita­belta jarðar og því hafi lofts­lag þar verið stöðugra í sögu­legu til­liti en ann­ars staðar.

En með lofts­lags­breyt­ingum hefur orðið hlýnun í hita­belt­inu og því er spáð að sú þróun eigi eftir að halda áfram. Það hefur, að því er rann­sóknin sýna, orðið til þess að ákveðnar trjá­teg­undir hafa látið undan og drep­ist. „Hingað til höfum við ekki vitað af hverju,“ segir Maria Wittemann, höf­undur rann­sókn­ar­innar.

Landnemar og hástigsplöntur

Wittemann hefur rann­sakað margar trjá­teg­undir regn­skóg­anna sem hún segir að megi í grófum dráttum skipta í tvennt: Landnema (s. Pionjär­arter) og hástigs­plöntur (s. Climaxarter). Land­nem­arnir festa fyrstir rætur er skógur er að þró­ast en hástigs­plöntur, koma til sög­unnar þegar meiri stöð­ug­leiki hefur náðst. Slík tré vaxa hægar en verða að lokum stór og mikil. Það eru þau sem binda mest af kolefni regn­skóg­anna.

Hins vegar er stór­kost­legur munur á því hvernig trjá­teg­undir í þessum tveimur flokkum fást við hita. Land­nem­arnir draga í sig vatn, útgufun verður í gegnum lauf­blöðin sem kælir þau. Þetta er því nokkuð full­komið kæli­kerfi. En hástigs­plönt­urnar búa ekki yfir jafn öfl­ugu kæli­kerfi og eiga þess vegna erf­ið­ara upp­dráttar er hita­stig hækkar í lengri tíma.

Maria Wittemann segir þetta hafa komið ber­sýni­lega í ljós í rann­sóknum hennar. Mikill hita­munur hafi verið í blöðum trjáa þess­ara tveggja flokka, trjáa sem uxu á sömu svæðum, eða allt að tíu gráður.

Wittemann segir að lofts­lags­breyt­ingar gætu líka haft áhrif á land­nem­ana. Útgufunin, kæli­kerfið þeirra, þarfn­ast mik­ils vökva. Á þurrka­tímum, sem hafa orðið tíð­ari og meiri, geta þessi tré ekki ræst kerfið og kælt sig. Því sáu Wittemann og teymi hennar merki um að land­nem­arnir ættu erfitt upp­dráttar í þurrkum. Slík tré hafa þá enga aðra kosti en að fella laufin. Hástigs­plöntur eru hins vegar betur í stakk búnar til að fást við þurrka.

Þannig að báðir þessir hópar trjáa gætu misst hæfni sína til að binda kolefni vegna lofts­lags­breyt­inga en við ólíkar aðstæður.

„Nið­ur­stöður okkar sýna að það dregur úr ljóstil­lífun trjáa þegar lauf­blöð þeirra hitna,“ segir Wittemann. Það aftur verður til þess að þau drep­ast því það er hið merki­lega fyr­ir­bæri ljóstil­lífun sem heldur í þeim líf­inu.

Með ljóstil­lífun grænna plantna er koltví­oxíð (CO2) úr and­rúms­lofti notað til að mynda kol­vetni eða sykur. Um leið er vatns­sam­eind (H2O) klofin í frumum til að halda uppi ljóstil­lífun og afleið­ing þess er sú að súr­efni (O2) losnar.

Umfangs­mik­ill trjá­dauði hefur áhrif á allt vist­kerfi svæðis. Alls konar dýr og aðrar líf­verur lifa í skjóli og af ávöxtum trjáa regn­skóg­anna.

Fyrri rann­sóknir á kolefn­is­bind­ingu regn­skóg­anna hafa sýnt, segir í til­kynn­ingu Gauta­borg­ar­há­skóla, að ástandið sé einna verst í Amazon. Þar er því spáð að losun frá skóg­inum verði orðin meiri en bind­ing árið 2035.

Rannsókn Wittemann og félaga beind­ist hins vegar að regn­skógum Afríku og þar virð­ist ástandið ekki jafn slæmt. Sjónum var m.a. beint að skógum í Rúanda og rann­sóknin unnin í sam­starfi við þar­lenda vís­inda­menn.

Í Rúanda er lítið eftir af frum­skógi. Honum hefur verið eytt í gegnum tíð­ina, landið brotið undir jarð­rækt í stórum stíl. En nú vilja stjórn­völd breyta um kúrs og fá skóg­ana aftur. Þá verða þau að vita hvaða teg­undum eigi að planta í því lofts­lagi sem nú er og í breyttu lofts­lagi í nán­ustu fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár