Sex ný innanlandssmit – 120 með COVID-19

Sex ný inn­an­lands­smit af kór­ónu­veirunni greind­ist hér á landi í gær. Fjögur sýni bíða mótefna­mæl­ingar úr landamæra­skimun. 120 manns eru með COVID-19 og í ein­angrun. Einn liggur á gjör­gæslu­deild.

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga og er í eina­grun er120 sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.is. Sex ný til­felli greindust inn­an­lands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Þá bíða fjögur sýni mótefna­mæl­ingar úr landamæra­skimun.

Í gær voru 766 í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn niður í 720.

Einn liggur enn á sjúkra­húsi með COVID-19 og er hann á gjör­gæslu­deild.

695 sýni voru tekin og greind hjá Land­spít­al­anum í gær og 27 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Við landa­mærin voru tekin 2.488 sýni.

Flestir sjúk­ling­arnir eru í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 49 og hefur fjölgað um sjö síð­ustu tvo sól­ar­hringa. Sjö sjúk­lingar eru yfir sex­tugu.

Tíu hafa því greinst inn­an­lands á tveimur sól­ar­hringum. Þeir fjórir sem greindust í gær voru ekki í sótt­kví og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna að þeir tengd­ust ekki. Sagði hann enn­fremur ljóst að ein­kenna­lausir væru að smita.

[links]Allir þeir sem grein­ast með COVID-19 eru í umsjá COVID-göngu­deildar Land­spít­ala. Starfs­menn hennar ann­ast eft­ir­lit með sjúk­ling­unum og eftir atvikum með­ferð. „Núna eru rúm­lega 100 full­orðnir í eft­ir­liti hjá okkur og um ell­efu börn sem starfs­fólk Barna­spít­ala Hrings­ins sinnir,“ segir Runólfur Pálsson, for­stöðu­maður lyf­lækn­inga- og end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu Land­spít­ala, í ítar­legu við­tali við Kjarnann.

Und­an­farið hafa sjúk­lingar bæst við nær dag­lega en síð­ustu daga hafa nokkrir útskrif­ast sem hafa náð bata sam­kvæmt ákveðnum skil­merkjum. „Þess vegna hefur sjúk­lingum í umsjá göngu­deild­ar­innar ekki fjölgað eins mikið og ann­ars hefði verið,“ bendir Runólfur á. Til þess að sjúk­lingur sé útskrif­aður úr eft­ir­liti þarf hann að hafa verið ein­kenna­laus í sjö daga og að minnsta kosti fjórtán dagar þurfa að hafa liðið frá grein­ingu. Fylgst er vel með þróun ein­kenna, jafn­vel með dag­legum sím­tölum, ekki síst vegna þess að dæmi eru um að þau geti versnað skyndi­lega og að hratt geti þurft að bregð­ast við.

Runólfur segir að heilt yfir hafi starf­semi göngu­deild­ar­innar gengið vel og verk­efnin verið við­ráð­an­leg það sem af er þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. „Það skýrist mest af því að stærsti hluti þeirra sem sýkst hafa að und­an­förnu er ungt fólk og að lang­flestir hafa haft væg ein­kenni.“

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febr­úar hafa 1.978 greinst með COVID-19. Tíu hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár