Börn mega fara á æfingar og hægt verður að komast í klippingu og nudd í næstu viku

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á til­lögur um til­slak­anir á gild­andi sam­komu­tak­mörk­unum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á til­lögur Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis um til­slak­anir á gild­andi sam­komu­tak­mörk­unum.

Samkvæmt þeim verður íþrótta-, æsku­lýðs- og tóm­stunda­starf barna í leik- og grunn­skólum verður heim­ilt á ný, í fram­halds­skólum verða fjölda­mörk aukin í 25 og hægt verður að hefja ýmsa þjón­ustu­starf­semi sem krefst snert­ingar eða mik­illar nándar, eins og starf­semi hár­greiðslu- og nudd­stofa.

Almennar fjölda­tak­mark­anir mið­ast hins vegar áfram við tíu manns.

Nýju reglu­gerð­irnar um tak­mark­anir á sam­komum og skóla­haldi taka gildi 18. nóv­em­ber, á mið­viku­dag í næstu viku, og gilda til og með 1. des­em­ber næst­kom­andi. Í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að gert sé ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr sam­komu­tak­mörk­unum í byrjun des­em­ber.

[adspot]Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis til ráð­herra leggur hann til að hægt verði farið í allar til­slak­anir á næst­unni.

Breytingarnar sem taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember eru eftirfarandi:

  • Starf­semi og þjón­usta sem krefst snert­ingar milli fólks verður leyfð með þeim skil­yrðum að not­ast sé við and­lits­grímur. Þetta á við um s.s. hár­greiðslu­stofur, nudd­stofur, öku- og flug­kennslu og sam­bæri­lega starf­semi. Hámarks­fjöldi við­skipta­vina á sama tíma er 10 manns.
  • Æfingar, íþrótta­starf, æsku­lýðs- og tóm­stunda­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri verður heim­ilt jafnt inni og úti. Til að slíkt starf geti farið fram eru engar tak­mark­anir settar varð­andi blöndun milli hópa. Fjölda­mörk í hverju rými fara eftir reglu­gerð um tak­mark­anir á skóla­starfi. Leik­skóla­börn og börn í 1.–4. bekk grunn­skóla mega vera 50 saman að hámarki en nem­endur í 5.–10. bekk að hámarki 25 saman.
  • Í skóla­starfi á fram­halds­skóla­stigi mega nem­endur og starfs­menn vera að hámarki 25 í hverju rými í stað 10 áður en ber að nota and­lits­grímur sé ekki unnt að halda 2 metra fjar­lægð.
  • Veitt er und­an­þágu frá grímu­skyldu þeim sem ekki geta notað grímur, t.d. af heilsu­fars­á­stæðum eða ef við­kom­andi skortir þroska eða skiln­ing til að bera grímu. Þeir sem fengið hafa COVID-19 eru einnig und­an­þegnir grímu­skyldu geti þeir sýnt gilt vott­orð þess efnis.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár