„Þetta er búið og gert og allir glaðir hér“

Sturla Böðv­ars­son bæj­ar­stjóri í Stykk­is­hólmi vísar ásök­unum um hags­muna­á­rekstra á bug. Segir mál Amt­bóka­safns­ins póli­tískt upp­hlaup af ramm­ís­lenskri gerð.

„Þetta er nátt­úr­lega hags­muna­gæsla ann­ars vegar og póli­tískt upp­hlaup af ramm­ís­lenskri gerð,“ segir Sturla Böðv­ars­son, bæj­ar­stjóri í Stykk­is­hólmi. Stundin sagði frá því í gær að mikil reiði ríkti í bæj­ar­fé­lag­inu vegna sölu á hús­næði Amt­bóka­safns­ins í miðbæ bæj­ar­ins. Á annað hund­rað manns skrif­uðu nafn sitt á und­ir­skrifta­lista þar sem farið var fram á íbúa­kosn­ingu um málið. Þrátt fyrir það sam­þykkti bæj­ar­stjórn í gær að láta verða af söl­unni. „Þetta er búið og gert og allir glaðir hér,“ segir Sturla og seg­ist ekki hafa hitt neinn í morgun sem sé ekki sáttur við þessa nið­ur­stöðu. „Auðvitað eru ein­hverjir óánægðir en það er nú bara þannig í líf­inu. Við getum ekki gert öllum til hæfis,“ segir hann. 

Bókasafnið ekki á hrakhólum

Samþykkt var að ganga til samn­inga við Marz-sjáv­ar­af­urðir ehf. um sölu á hús­eign­inni en hug­mynd for­svars­manna Marz er að rífa hús­næðið og byggja meðal ann­ars íbúð­ar­hús á lóð­inni. Deiliskipu­lag …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár