Ofsaveður í Afríku meiri og verri vegna loftslagsbreytinga

Lofts­lags­breyt­ingar orsök­uðu meiri rign­ingar og meiri eyði­legg­ingu en vana­lega í nokkrum ofsa­veðrum í suð­ur­hluta Afríku fyrr á þessu ári að mati vís­inda­manna.

Fellibylur olli gríðarlegum flóðum á Madagaskar í janúar.
Felli­bylur olli gríð­ar­legum flóðum á Madaga­skar í jan­úar. Mynd: EPA

Samtök sem sér­hæfa sig í að fylgj­ast með breyt­ingum á veð­ur­fari og kort­leggja frá­vik (World Weather Attribution, WWA) telja að gríð­ar­leg rign­ing­ar­veður séu algeng­ari í sunn­an­veðri Afríku en áður og í nýrri skýrslu þeirra kemur fram að lofts­lags­breyt­ingar hafi aukið á eyði­legg­ingu vegna ofsa­veðra sem geisað hafa á svæð­inu á fyrstu mán­uðum árs­ins.

Veðrið í nokkrum löndum sunnan mið­baugs hefur verið mjög óvenju­legt það sem af er ári. Þrír felli­byljir og tveir hita­belt­is­stormar gengu yfir á aðeins sex vikna tíma­bili. Þetta hafði mikil og nei­kvæð áhrif á líf yfir einnar millj­ónar manna, m.a. vegna mik­illar úrkomu og flóða. Að minnsta kosti 230 manns lét­ust vegna veð­urofs­ans, segir í skýrslu WWA.

Vís­inda­menn sam­tak­anna segja að vegna mjög tak­mark­aðra veð­ur­gagna sé þó ekki hægt að full­yrða að lofts­lags­breyt­ingar séu að auka tíðni slíkra ofsa­veðra.

Fyrsti felli­byl­ur­inn sem fékk nafnið Ana skall á í jan­úar og olli umfangs­mik­illi eyði­legg­ingu í Madaga­skar, Mósambík og Malaví. Tugir létu lífið og þús­undir urðu inn­lyksa þar sem vegir og brýr eyðilögð­ust í flóðum.

Vís­inda­menn á vegum WWA báru saman gögn um veðrið í ár og veð­ur­far síð­ustu ára en rák­ust fljótt á veggi þar sem sam­felldar úrkomu­mæl­ingar hafa ekki verið gerðar í þessum heims­hluta. Í frétt BBC um málið segja vís­inda­menn­irnir að aðeins fjórar af 23 veð­ur­stöðvum á þeim svæðum í Mósambík sem urðu hvað verst úti hafa safnað gögnum í fjóra ára­tugi og engin veð­ur­stöð á Madaga­skar eða í Malaví.

Meiri rigning og meiri skemmdir

Hins vegar er það nið­ur­staðan að lofts­lags­breyt­ingar hafi þegar orðið til þess að ill­viðrin eru kraft­meiri og verri en áður þótt ekki sé hægt að stað­festa að tíðni þeirra sé að aukast.

„Úrkoma sem teng­ist svona stormum er orðin lík­legri og meiri en áður,“ hefur BBC eftir Friederike Otto, einum vís­inda­mann­anna. „Það sem við getum svo sagt með vissu er að skemmdir af völdum svona óveðra eru meiri.“

Otto segir að enn einu sinni komi ber­lega í ljós að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum muni hafa mest áhrif á líf fólk sem beri minnsta ábyrgð á þeim. „Efnuð ríki ættu að standa við skuld­bind­ingar sína og auka fjár­fram­lög til fyr­ir­byggj­andi aðgerða og til greiðslu bóta til handa fórn­ar­lömbum ofsa­veðra af völdum lofts­lags­breyt­inga.“

Vís­inda­menn hafa margir bent á að nauð­syn­legt sé að efla rann­sóknir á veðri í Afríku. Aðeins þannig væri hægt að meta fylli­lega þau fyr­ir­sjá­an­legu áhrif sem þar eiga eftir að verða vegna lofts­lags­breyt­ing­anna. „Það þarf að und­ir­búa útsett fólk og inn­viði sam­fé­lag­anna svo betur sé hægt að takast á við vána,“ hefur BBC eftir

Izidine Pinto, pró­fessor við Háskól­ann í Höfða­borg í Suður-Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár