Von á hertari aðgerðum – takmarkanir á starfsemi þar sem nánd er mikil

Hertar aðgerðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins verða kynntar nú um helg­ina og taka gildi í næstu viku. Net­verslun og heim­send­ingar munu vega þyngra á næst­unni, segir Víðir Reyn­is­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn.

Víðir Reynisson, Alma Möller og Páll Matthíasson á upplýsingafundinum í dag.
Víðir Reyn­is­son, Alma Möller og Páll Matth­í­as­son á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir til­kynnti það á upp­lýs­inga­fundi í dag að verið væri að end­ur­skipu­leggja þjón­ustu heil­brigð­is­kerf­is­ins og í und­ir­bún­ingi er að láta af val­kvæðum skurð­að­gerðum og öðrum inn­gripum, s.s. spegl­unum, sem ekki eru brýn. „Þetta er vegna þess að auð­vitað er smit­hætta í slíkum nánum sam­skiptum en líka vegna þess að ef koma upp fylgi­kvillar þá getur það leitt til koma á bráða­mót­töku og jafn­vel sjúkra­húsinn­lagnar.“

Nú yrði að for­gangs­raða en Alma ítrek­aði að allar aðgerðir sem ekki þola bið verði að sjálf­sögðu gerðar.

Miðað við dán­ar­tíðni frá Ítalíu í gær mætti gera ráð fyrir að tutt­ugu dauðs­föllum af völdum sjúk­dóms­ins hér á landi nú þegar. Hins vegar er að sögn Ölmu enn ekki búið að upp­færa spálíkan íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda hvað þetta varðar. Hún sagði það hafa komið sér á óvart hvernig far­ald­ur­inn þró­að­ist á Ítalíu og á Spáni. „Við erum að vona að far­ald­ur­inn fari örlítið mild­ari höndum um okkur.“

Sagðist hún vona að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi geri það að verkum að það tak­ist að hægja meira á far­aldr­inum, „en ég ætla svo sann­ar­lega ekki að hrósa happi fyrr en það liggur fyrir.“

[adspot]

„Þetta eru risa­vaxin verk­efni og flókin sem [fjöl­margir aðilar] eru að fá í fangið á hverjum degi og fólk tekst á við af æðru­leysi og fag­mennsku,“ sagði Alma er hún þakk­aði starfs­fólki heil­brigð­is­kerf­is­ins, Kára Stef­áns­syni, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar og starfs­fólki hans, fyrir vel unnin störf.

Mun færri sýni voru tekin í gær en síð­ustu daga þar sem skortur er á sýna­tökupinnum. „Við erum með allar klær úti,“ sagði Alma spurð um hvenær von væri á fleiri pinnum. Sagðist hún eiga von á send­ingu fljót­lega og í kjöl­farið von­andi stærri send­ingu.

Land­læknir sagði að vissu­lega væri eldra fólk í mestri áhættu að veikj­ast alvar­lega af völdum veirunnar „en það eru vís­bend­ingar um það frá Norð­ur­lönd­unum og Ítalíu að ungt fólk sé að veikj­ast og lenda á gjör­gæslu. Við viljum því hvetja ungt fólk, og við miðum við fimm­tugt, sem er búið að vera með flensu­lík ein­kenni en fær ný ein­kenni, og þar erum við fyrst og fremst að hugsa um and­þyngsli, að það hafi sam­band við heilsu­gæsl­una, Heilsu­veru eða hringja í 1700.“

Alma sagði margar spurn­ingar ber­ast um óléttar konur. Rifjaði hún upp að svínaflensan hafi lagst þungt á þær en ekk­ert bendi til að það sama gildi um þessa veiru.

Loka þarf nudd- og hárgreiðslustofum

Hertar aðgerðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins verða kynntar um helg­ina og taka gildi í næstu viku. Net­verslun og heim­send­ingar munu vega þyngra á næst­unni, sagði Víðir Reyn­is­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn almanna­varn­ar­deildar, á fund­inum. Hann sagði að verið væri að skoða að þrengja enn að fjölda­tak­mörk­unum sem gæti haft áhrif á versl­anir, svo dæmi sé tekið. Einnig er verið að skoða ein­staka starf­semi þar sem ekki er hægt að upp­fylla skil­yrði um fjar­lægð­ar­tak­mark­anir, þ.e. tvo metra á milli fólks.

Það myndi t.d. eiga við um hár­greiðslu­stofur, nudd­stofur og aðra starf­semi þar sem nánd er mikil og snert­ing jafn­vel sömu­leiðis. Starf­semi af þessum toga verður að hætta tíma­bundið. „Þetta er hluti af stærri aðgerða­pakka en ég vil nefna þetta sér­stak­lega. [...] Þegar við erum farin að lækka fjölda þeirra sem mega fara inn í versl­anir á sama tíma þá er aug­ljóst að sumar þeirra munu eiga erfitt með að sinna sinni starf­semi áfram og þurfa að end­ur­skipu­leggja sig.“

Tryggja verður heilbrigðisstarfsfólki forgang að skólakerfinu

Þá er verið að skoða frek­ari tak­mark­anir á skóla­starfi. „Í þess­ari veiru veikj­ast miklu færri börn. [...] Þannig að við erum fyrst og fremst að skoða að herða aðgerð­irnar varð­andi skól­ana fyrst og fremst til að tryggja það að fram­línu­starfs­menn­irnir, og þá erum við sér­stak­lega að horfa til heil­brigð­is­starfs­manna, að þeir fái fullan for­gang [að skól­unum]. Við erum að lenda allt of mikið í því núna að heil­brigð­is­starfs­menn geti ekki mætt í vinnu vegna þess að þeir fá ekki pláss á leik­skólum eða grunn­skólum fyrir börnin sín. Þannig að við þurfum að bregð­ast við þessu núna um helg­ina.“

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, greindi frá því á fund­inum að 24 starfs­menn sjúkra­húss­ins væru í ein­angrun og 266 í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár