Trump kallar Clinton djöful og segist hræddur um kosningasvindl

Donald Trump, for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins, segir að það sé mögu­leiki á því að kosn­inga­svindl verði stundað í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber. Hann seg­ist ótt­ast að svo verði og hvatti repúblik­ana til að vera vel á verði, „ann­ars verður þetta tekið frá okkur.“

Trump sagði þetta á kosn­inga­fundi í Columbus í Ohio og end­ur­tók þetta svo í við­tali á Fox News í gær­kvöldi. Roger Stone, ráð­gjafi Trump til langs tíma, ýtti einnig undir þetta. „Ég held að við höfum víð­tækt kosn­inga­svindl, en það fyrsta sem Trump þarf að gera er að byrja að tala um það stans­laust. Hann þarf að segja til dæmis: Ég leiði í Flórída, skoð­ana­kann­an­irnar sýna það. Ef ég tapa í Flórída, þá vitum við að það er kosn­inga­svindl í gangi.“

Í gær­kvöldi var Trump svo kom­inn á kosn­inga­fund í Penn­syl­vaníu þar sem hann kall­aði keppi­naut sinn um for­seta­stól­inn, Hillary Clinton, djöf­ul­inn. Hann hefur und­an­farið sagt að Bernie Sanders, sem laut í lægra haldi fyrir Clinton hjá demókrötum, hafi gert sam­komu­lag við djöf­ul­inn með því að styðja hana. Í gær fór hann í fyrsta sinn lengra og sagði beint út: „Hún er djöf­ull­inn.“

Trump hefur hins vegar alfarið forð­ast að svara mik­illi gagn­rýni á ummæli hans um hjón sem héldu ræðu á flokks­þingi demókrata í síð­ustu viku og lýstu þar dauða sonar síns, sem var her­maður. Hann hét Humayun Khan og var 27 ára gam­all banda­rískur múslimi sem fórn­aði lífi sínu í Afganistan fyrir tólf árum síðan. Faðir hans, Khizr Khan, gagn­rýndi Trump harð­lega í ræð­unni, og sagði meðal ann­ars að ef Trump hefði fengið að ráða hefði fjöl­skyldan aldrei komið til Banda­ríkj­anna. Trump segði niðr­andi hluti um múslima, um konur, um minni­hluta­hópa. Hann spurði hvort Trump hefði yfir­höfuð lesið stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna.

Fyrstu við­brögð Trump voru að gagn­rýna að Khizr Khan hefði einn flutt ræð­una, en kona hans Ghazala hafi staðið við hlið hans. „Hún hafði ekk­ert að segja. Hún lík­lega, kannski mátti hún ekki segja neitt. Seg þú mér.“ Ghazala kom í við­tal degi síðar og greindi frá því að hún hafi ein­fald­lega ekki treyst sér til að tala um son sinn á þessum vett­vangi, þar sem enn þann dag í dag bresti hún í grát við að sjá myndir af honum.

Trump sagði einnig að hann hefði fært fórnir svip­aðar þeim sem hjónin og sonur þeirra hefðu fært.

Trump hefur verið harð­lega gagn­rýndur bæði af sam­flokks­mönnum og póli­tískum and­stæð­ingum fyrir fram­komu sína í garð hjón­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár