Já, ráðherra!

Hvað gerir ráð­herra sem verður undir í þing­inu og getur ekki sætt sig við nið­ur­stöð­una? Ja, hann getur sagt af sér eða kannski getur hann reynt að fá emb­ætt­is­menn­ina í ráðu­neyt­inu til að fara í kringum ákvörðun þings­ins.

Lars Løkke Rasmussen er forsætisráðherra í Danmörku. Esben Lunde Larsen er umhverfis- og matvælaráðherra í ríkisstjórninni.
Lars Løkke Rasmus­sen er for­sæt­is­ráð­herra í Danmörku. Esben Lunde Larsen er umhverfis- og mat­væla­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni. Mynd: EPA

Um alda­mótin síð­ustu var útlitið ekki bjart í danskri útgerð. Sífellt minni fiskur í sjónum en jafn­framt alltof stór floti til að veiða fisk­inn. Sjómenn börð­ust í bökkum, margir urðu gjald­þrota og misstu allt sitt. „Það voru dökk ský á himni,“ sagði einn tals­maður báta­sjó­manna. Lengi vel virt­ust stjórn­völd ekki láta sig sífellt lak­ari afkomu útgerð­ar­innar neinu varða en árið 2007 var lokst gripið til aðgerða. Kvóti í höndum sjó­manna sjálfra. Áður hafði danska sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið og und­ir­stofn­anir þess úthlutað kvót­anum en þess­ari breyt­ingu var ætlað að gera fisk­veiðar í senn eft­ir­sókn­ar­verð­ari og arð­bær­ari.

Aðgerðin heppn­að­ist, það dró úr ofveið­inni, fiski­stofn­arnir réttu við og afkoma sjó­manna batn­aði. Margir þeirra, sem áður höfðu hangið á horrim­inni, höfðu skyndi­lega bæri­lega afkomu, sumir mjög góða.

[quote]Sala á bátum, og þar með kvót­anum, var heimil og afleið­ingin varð sú að fjár­sterkir kvóta­eig­endur (kall­aðir kvóta­kóngar) keyptu í stórum stíl báta og til­heyr­andi kvóta.[/quote]

Með því sem sumir köll­uðu síðar „einka­væð­ingu kvót­ans“ færði ríkið í raun mörgum mikla fjár­muni því kvót­inn var tengdur ein­stökum bátum. Sala á bátum, og þar með kvót­anum, var heimil og afleið­ingin varð sú að fjár­sterkir kvóta­eig­endur (kall­aðir kvóta­kóngar) keyptu í stórum stíl báta og til­heyr­andi kvóta. Þótt regl­urnar segðu að hver ein­stak­lingur mætti ekki eiga nema til­tekið magn kvóta fundu margir leiðir til að „sigla“ fram­hjá þeim. Kvótinn færð­ist þannig á mun færri hendur.

Skipin sem fisk­inn veiddu urðu jafn­framt stærri, því þeir sem keypt höfðu kvót­ann fengu leyfi til að færa kvóta milli skipa, færðu kvót­ann frá smærri bátum (sem síðan voru úreltir) yfir á stærri skip. Þetta þýddi að sjó­mönnum fækk­aði, eng­inn fiskur barst að landi í tugum smá­báta­hafna og ann­ars staðar minnk­aði afl­inn sem að landi kom, víða um helm­ing frá því sem áður var. Í dag eru starf­andi fiski­menn í Danmörku um það bil 3.300, sú tala hefur hald­ist nokkurn veg­inn óbreytt um nokk­urra ára skeið.

Poul Holm, pró­fessor við Trinity háskól­ann í Dublin á Írlandi, sagði í við­tali við danskt dag­blað, að allir væru sam­mála um að kvóta­kerfi sé nauð­syn­legt til að tak­marka fisk­veiðar en kvaðst undr­andi á því að danska ríkið skyldi hafa valið að færa til­teknum hópi gríð­ar­lega fjár­muni, nán­ast skil­yrð­is­laust. Pró­fess­or­inn sagð­ist líka undr­ast hvað þessi breyt­ing olli litlum deilum, hann teldi hugs­an­legt að meiri­hluti dönsku þjóð­ar­innar hefði hrein­lega ekki áttað sig á afleið­ing­unum.

[adspot]

Þátturinn í danska sjónvarpinu og styrkirnir

Árið 2015 sýndi DR, danska sjón­varpið, heim­ilda­þátt um kvóta­kerfið. Sjón­varps­menn höfðu lagt mikla vinnu í þátt­inn og beindu sjónum sínum að kvóta­kóng­unum svo­nefndu, þeim sem fundið höfðu leiðir til að fara fram hjá kvóta­lög­unum og eign­ast mik­inn kvóta. Í þætt­inum kom fram að í mörgum til­fellum voru makar og jafn­vel börn kvóta­kóng­anna skráðir sem eig­endur kvóta þótt við­kom­andi kæmu hvergi nærri veið­unum.

Þátt­ur­inn í danska sjón­varp­inu vakti mikla athygli, ekki síst stjórn­mála­manna sem margir hverjir sögð­ust hrein­lega ekki hafa gert sér grein fyrir hvernig ástandið væri orðið. Um svipað leyti komst eitt dönsku dag­blað­anna á snoðir um að núver­andi stjórn­ar­flokkur, Venstre (sem er hægri miðju­flokkur), hafði þegið háar fjár­hæðir í formi styrkja frá mörgum kvóta­kóngum. Þetta vakti grun­semdir því aðrir flokkar nutu ekki sam­bæri­legra styrkja. Venstre fór með stjórn­ar­for­mennsk­una frá 2001–2011 og svo aftur frá 2015.

Vildu „kíkja á“ fiskveiðistjórnunarkerfið

Eftir miklar umræður og umfjöllun í þing­inu ákvað rík­is­stjórnin haustið 2015 að rétt væri að líta á fisk­veiði­stjórn­un­ar­fyr­ir­komu­lagið (kall­aði það servicetjek). Stjórnin boð­aði sam­vinnu við alla flokka á þingi. Margir þing­menn höfðu tak­mark­aða trú á þetta „servicetjek“ myndi ein­hverju skila og sumir héldu því bein­línis fram að kvóta­kóng­arnir hefðu stjórn rík­is­stjórnar Venstre, undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen, í vas­anum og þeir hefðu afar tak­mark­aðan áhuga á að hróflað yrði við kerf­inu sem hafði fært þeim millj­arða á millj­arða ofan.

[quote]Margir þing­menn höfðu tak­mark­aða trú á þetta „servicetjek“ myndi ein­hverju skila og sumir héldu því bein­línis fram að kvóta­kóng­arnir hefðu rík­is­stjórn­ina í vas­anum.[/quote]

Viðræður um fisk­veiði­stjórn­un­ina hófust í sept­em­ber 2016 undir stjórn Esben Lunde Larsen umhverfis- og mat­væla­ráð­herra. Þessar við­ræður full­trúa flokk­anna á þing­inu skil­uðu litlum árangri, bæði Sós­í­alde­mókratar og Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn töldu þetta „sýnd­ar­við­ræður“ því stjórnin ætl­aði sér ekki að breyta neinu. Þessir tveir flokkar lögðu einkum áherslu á tvennt: breyt­ingar á kvóta­kerf­inu til að hindra að kvót­inn færð­ist á æ færri hendur og að strand­veiðar, sem höfðu nær lagst af, yrðu heim­il­aðar á ný. Ráð­herr­ann tók lítt undir þetta.

Fóru framhjá stjórninni

Þegar kom fram í des­em­ber 2016 lögðu Sós­í­alistar og Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, ásamt Sós­íal­íska þjóð­ar­flokknum og Radikale ven­stre, fram frum­varp um breyt­ingar á kvóta­kerf­inu. Í and­stöðu við ráð­herr­ann sem vildi að beðið yrði eftir nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar sem skoða átti kerfið. Frum­varpið flaug í gegnum þingið og vinna við fram­kvæmd nýju lag­anna átti að hefj­ast strax eftir síð­ast­liðin ára­mót.

Tvískinnungur ráðherrans

Í langri og yfir­grips­mik­illi umfjöllun í dag­blað­inu Berl­ingske undir yfir­skrift­inni „Kvoter, kon­ger og kumpaner“ komu fram upp­lýs­ingar sem hafa valdið miklu fjaðrafoki (sporða­köstum mætti kannski segja) meðal danskra þing­manna. Blaða­menn Berl­ingske komust yfir gögn sem sýna, svart á hvítu, að sam­tímis því að emb­ætt­is­menn­irnir unnu að útfærslu lag­anna um fisk­veiði­stjórn­un­ina unnu þeir jafn­framt að því að finna leiðir til að koma í veg fyrir að lögin kæmust í fram­kvæmd.

Í gögnum sem blaða­menn­irnir hafa undir höndum kemur fram að margar leiðir væri hægt að fara til að vinna að þessu mark­miði. Allar mið­uðu þær að því að láta líta svo út að lögin væru flókin og and­stæð hags­munum sjó­manna og eina leiðin væri að ráð­herr­ann færi „sína leið“ í þessum efnum. Fram kemur í gögnum blaða­manna Berl­ingske að ráð­herr­ann lagði blessun sína yfir þessar hug­myndir, enda halda blaða­menn­irnir því fram að allt sé þetta runnið undan rifjum ráð­herr­ans og segj­ast hafa gögn sem sanni það.

Ráðherrann fastur í netinu og valtur í sessi

Aðeins eru örfáir dagar síðan greinin um kvót­ann og kóng­ana birt­ist í Berl­ingske. Margir þing­menn hafa tjáð sig um málið, þeir eru nær allir á einu máli um að fram­koma ráð­herr­ans sé með öllu ólíð­andi, það nái engri átt að ráð­herr­ann ætli bara að fara sínar eigin leiðir, þvert á ákvarð­anir þings­ins. „Hver togar hér í spott­ana?“ spurði þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins og bætti við að margir vissu kannski svarið. Esben Lunde Larsen ráð­herra hefur verið boð­aður til yfir­heyrslu þing­flokk­anna (samraad) en sá fundur hefur þegar þetta er ritað ekki verið tíma­settur.

Esben Lunde Larsen hefur ekki átt sjö dag­ana sæla í emb­ætti umhverfis- og mat­væla­ráð­herra síðan hann tók við í lok febr­úar á síð­asta ári. Hann er jafn­framt sá ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem margoft hefur vermt botns­ætið þegar spurt er um vin­sældir og trú­verð­ug­leika ráð­herr­anna í núver­andi rík­is­stjórn.

Nokkrir þing­menn sem Berl­ingske hefur rætt við að und­an­förnu telja ráð­herr­ann mjög valtan í sessi og ekki kæmi á óvart þótt hann hrökkl­að­ist úr ráð­herra­stólnum. Einn þing­manna Danska þjóð­ar­flokks­ins orð­aði það svo að „ráð­herr­ann væri fastur í eigin neti og við ætlum ekki að losa hann úr flækj­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár