Cameron: Theresa May verður forsætisráðherra á miðvikudag

Theresa May verður for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands á mið­viku­dag­inn. Þetta stað­festir David Cameron, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér rétt í þessu.

Hann ætlar að halda sinn síð­asta rík­is­stjórn­ar­fund á morgun og svara spurn­ingum þing­manna í spurn­inga­tíma for­sæt­is­ráð­herra í síð­asta skipti á mið­viku­dag. Eftir það ætlar hann að fara til Elísa­betar drottn­ingar og segja form­lega af sér.

„Ég held að Andrea Leadsom hafi tekið algjör­lega rétta ákvörðun með því að stíga til hliðar. Það er ljóst að Theresa May nýtur yfir­gnæf­andi stuðn­ings þing­flokks Íhalds­flokks­ins. Ég er líka him­in­lif­andi með að Theresa May verði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Hún er sterk, hún er hæf, hún er meira en fær um að vera sá leið­togi sem þjóðin mun þurfa á næstu árum og hún mun njóta fulls stuðn­ings frá mér,“ sagði Cameron í yfir­lýs­ingu sinni.

Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar í breska þing­inu, Verka­manna­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar, hafa nú í dag kallað eftir því að boðað verði til kosn­inga í Bret­landi. „Nú lítur út fyrir að að við munum sjá krýn­ingu nýs for­sæt­is­ráð­herra úr Íhalds­flokknum. Það er nauð­syn­legt með til­liti til óvissunnar sem Brexit hefur valdið að ríkið þarf að hafa lýð­ræð­is­lega kjör­inn for­sæt­is­ráð­herra,“ sagði Jon Trickett hjá Verka­manna­flokknum.

„Það er ein­fald­lega óhugs­andi að Theresa May verði krýnd for­sæt­is­ráð­herra án þess að hafa einu sinni unnið kosn­ingu innan eigin flokks, hvað þá á lands­vísu. Það verða að vera kosn­ingar,“ segir Tim Farron, leið­togi Frjáls­lyndra demókrata.

Hins vegar hefur Íhalds­flokk­ur­inn ekki gefið neitt til kynna um kosn­ingar, heldur hefur einmitt verið hamrað á því, síð­ast í ræðu Andreu Leadsom í morgun, að aðeins 13 mán­uðir séu síðan Íhalds­flokk­ur­inn fékk sterka kosn­ingu og hreinan meiri­hluta í þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár