Maður er ekkert merkilegur af því maður er gamall

Rit­höf­und­ur­inn Lise Nørgaard varð 100 ára síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Danir líta á hana nán­ast sem þjóð­ar­eign, en hún er þekkt­ust fyrir að hafa átt hug­mynd­ina að sjón­varps­þátt­unum Matador.

Úr sjónsvarpsþættinum Matador
Úr sjón­svarps­þætt­inum Matador Mynd: Billetbladet

Ofan­greind ummæli eru fyr­ir­sögn á við­tali við Lise Nørgaard sem varð 100 ára síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Danir líta á hana nán­ast sem þjóð­ar­eign, kon­una sem átti hug­mynd­ina að og skrif­aði að stórum hluta hand­rit, Matador, lang þekktasta og vin­sælasta sjón­varps­mynda­mynda­flokks sem Danir hafa fram­leitt. En saga Lise Nørgaard er miklu meira en bara Matador.

Þegar stúlkan, sem síðar fékk nafnið Elise, skaust í heim­inn 14. júní 1917 gat faðir hennar, kaup­mað­ur­inn Harry Alex­ander Jensen, ekki leynt von­brigðum sínum. Hann hafði von­ast eftir syni, sem með tíð og tíma gæti tekið við fyr­ir­tæk­inu sem, að hans mati, væri ekki kven­manns­verk. Ekki þýddi þó að deila við dóm­ar­ann. Barnið, sem eig­in­konan Olga Sofie Tønder, hafði alið honum var ,,kun en pige“. Sautján mán­uðum síðar fædd­ist þeim hjónum önnur dóttir, sem var skírð Gerda, hún lést 2009. Árið 1920 fjölg­aði enn í fjöl­skyld­unni, þá fædd­ist son­ur­inn Kai. Hann fet­aði í fót­spor föð­ur­ins, varð kaup­maður og síðar fram­kvæmda­stjóri, hann lést fyrr á þessu ári. Systk­inin þrjú, sem alla tíð voru mjög náin fædd­ust í Hró­arskeldu og ólust þar upp. Móðir þeirra, Olga Sofie hafði, áður en elsta barnið, Elise, sem síðar breytti nafn­inu í Lise, fædd­ist, átt og rekið fata­verslun. Hún seldi versl­un­ina skömmu eftir að dóttirin Gerda fædd­ist og sinnti eftir það heim­il­inu. Í end­ur­minn­ingum sínum segir Lise, að hún sjálf hafi frá upp­hafi verið ákveðin í að hús­móð­ur­hlut­verkið, og það að vera fjár­hags­lega háð eig­in­manni, skyldi ekki verða sitt hlut­skipti.

Send á húsmæðraskóla

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn var mjög stjórn­samur, hús­bóndi á sínu heim­ili eins og Lise hefur orðað það. Hann lagði mikla áherslu það við börnin að þau skyldu ætíð leggja sig fram við allt sem þau tækju sér fyrir hendur. Við mat­ar­borðið hvatti hann börnin til að segja frá því sem gerst hefði þann dag­inn og Lise segir í end­ur­minn­ingum sínum að hann hafi lagt áherslu á að frá­sögnin væri skemmti­leg og ,,þar lærði ég að blanda saman gamni og alvöru og með því móti heldur maður athygl­inni.“ Faðirinn ákvað,að sögn Lise, að nám við Hús­stjórn­ar­skól­ann í Sorø, væri prýði­legur und­ir­bún­ingur undir lífið. ,,Gjör­sam­lega mis­heppnuð ákvörðun“ sagði Lise síðar ,, meira að segja pabbi gat ekki borðað það sem ég eld­aði eftir að hafa verið í skól­anum og mér hefur ekki farið fram“ sagði hún í við­tali fyrir nokkrum árum.

Hróarskeldudagblaðið

Árið 1935 var Lise Nørgaard ráðin til Roskilde Dagblad, Hró­arskeldu­dag­blaðs­ins. Eins og títt er á litlum fjöl­miðlum þurfti Lise að sinna öllu mögu­legu. Í end­ur­minn­ingum sínum segir hún að ekki hafi allir verið jafn hrifnir af því að ,,þessi stelpa“ kæmi þegar eitt­hvað frétt­næmt átti sér stað. Eitt sinn var hún send á fund hjá kaup­fé­lags­deild­inni (brugs­for­en­ingen) í Hró­arskeldu. Formaður félags­deild­ar­innar kom í eigin per­sónu á skrif­stofu blaðs­ins dag­inn eftir og var ekki sáttur: ,,við báðum um blaða­mann og svo sendu þeir stúlku.“ Lise Nørgaard segir að rit­stjóri Hró­arskeldu­dag­blaðs­ins hafi kennt sér mikið og vinnan á blað­inu verið góður skóli.[adspot]

Hjónabönd, barneignir, Politiken, Hjemmet og Berlingske

Þótt ann­ríkið og vinnu­á­lagið á Hró­arskeldu­dag­blað­inu hafi verið mikið hafði Lise Nørgaard fleiri járn í eld­inum. Árið 1938 gift­ist hún Mogens Einar Flindt Nielsen, þau eign­uð­ust fjögur börn en skildu árið 1950. Þá var Lise Nørgaard orðin blaða­maður á Politi­ken, byrj­aði þar árið 1949. Hún hefur margoft sagt að þau nítján ár sem hún var á Politi­ken og stutt vera hennar á Berl­ingske Tidende (heitir núna Berl­ingske) hafi verið skemmti­leg­asti tím­inn á starfs­ferl­inum. ,,Ég var, held ég, ágætur blaða­maður en ekki góð móðir.“ Börnin hennar hafa tekið undir þetta ,,hún var nátt­úr­lega aldrei heima“. Árið 1968 réð Lise Nørgaard sig til viku­rits­ins ,,Hjemmet“ og þar var hún rit­stjóri um tveggja ára skeið 1975 – 1977. Á blaða­manns­ferl­inum skrif­aði Lise um allt milli him­ins og jarðar, mikið um neyt­enda­mál og mál­efni kvenna. Með fram blaða­mennsk­unni sinnti hún ýmsum verk­efnum, skrif­aði kvik­mynda­hand­rit, hand­rit að útvarps­þáttum, skáld­sögur, tvær bækur um hunda­þjálfun og dæg­ur­laga­texta svo eitt­hvað sé nefnt. Árið 1951 gift­ist Lise Nørgaard Jens Waaben rit­stjóra, hann lést 1984.

Húsið á Kristjánshöfn og Matador

16. maí árið 1970 var frum­sýndur í danska sjón­varp­inu fyrsti þáttur í sjón­varps­þátta­röð sem fékk nafnið Huset paa Christianshavn, Húsið á Krist­jáns­höfn. Þætt­irnir fjöll­uðu í stuttu máli um dag­legt líf íbúa í fjöl­býl­is­húsi á Krist­jáns­höfn í Kaup­manna­höfn. Þrátt fyrir að margir af þekkt­ustu leik­urum og kvik­mynda­leik­stjórum Dana stæðu að gerð þátt­anna töldu flestir gagn­rýnendur að þeir yrðu ekki lang­lífir. Gagn­rýnend­urnir reynd­ust hins vegar hlað­varpa­spek­ingar, Húsið á Krist­jáns­höfn er ein vin­sælasta þátta­röð í sögu dansks sjón­varps, alls voru gerðir 84 þættir, sá síð­asti frum­sýndur 31. des­em­ber 1977. Hand­rits­höf­und­arnir voru all­margir, þar á meðal Lise Nørgaard. Meðal leik­stjór­anna var Erik Balling (1924 – 2005) og það var hann sem komst á snoðir um að Lise Nørgaard ætti í fórum sínum hand­rit að sögu tveggja fjöl­skyldna í smábæ. Þegar Erik Balling stakk upp á því við Lise Nørgaard að hún mynda skrifa hand­rits­drög fyrir sjón­varps­þætti tók hún hug­mynd­inni fálega. En Erik Balling var ekki maður sem lét auð­veld­lega segj­ast og að lokum féllst Lise Nørgaard á að skrifa sögu­þráð sex þátta, sem Nordisk Film fram­leiddi fyrir DR. Þætt­irnir kost­uðu miklu meira en nokkuð það sem DR hafði áður látið fram­leiða og útvarps­ráðið sá ofsjónum yfir kostn­að­inum og hafði efa­semdir um þætt­ina. Fyrsti þáttur Matador var frum­sýndur í DR 11. nóv­em­ber 1978 og er skemmst frá því að segja að þátta­röðin sló algjör­lega í gegn. Á næstu árum voru fram­leiddar þrjár sex þátta syrpur til við­bótar, sam­tals urðu þætt­irnir 24 og spanna ára­bilið 1929 til 1947. Það segir sína sögu að sjötti, tólfti og átj­ándi þáttur höfðu ákveð­inn enda­punkt, Nordisk Film vissi nefni­lega aldrei hvort þætt­irnir yrðu fleiri og sló því varnagla. Þætt­irnir hafa öðl­ast vin­sældir sem eiga sér enga hlið­stæðu í Danmörku og um þessar mundir er verið að sýna þátta­röð­ina í átt­unda skipti. Lise Nørgaard skrif­aði sjálf hand­rit sextán þátta en aðrir hina átta.

Margt fleira en Matador


Þótt í hugum Dana sé eins­konar sama­sem merki milli Lise Nørgaard og Matador er hún ekki sama sinnis. Segist stolt­ust af blaða­manna­ferl­inum en það allir tali alltaf um Matador. ,,Þegar ég hitti ókunn­ugt fólk vill það bara tala um Matador, stundum get ég næstum kastað upp vegna þess. En ég sit uppi með þetta.“

Ekkert merkilegt við það að vera gamall

Lise Nørgaard finnst það ekki merki­legt að verða gömul. ,,Stundum hugsa ég um hvernig á því standi að nán­ast allir gamlir vinir mínir eru dánir en alltaf tóri ég. Í fyrra fór ég í tíu jarð­ar­farir og þær verða ekki færri á þessu ári, ef ég lifi. Þeir vinir sem ég á nú eru nær allir miklu yngri, það er allt í lagi fyrir mig, veit ekki með þá.“

Lise Nørgaard var búin að til­kynna að hún vildi ekki gjafir í til­efni ald­ar­af­mæl­is­ins, ,,húsið er fullt af dóti, er eins og graf­hýsi. Súkkulaði vil ég ekki, maður fitnar bara af því og ég vil heldur ekki blóm. Þau visna í vös­unum og svo kemur vond lykt af vatn­inu. Engar gjafir takk.“

Bannsettur farsíminn

Lise Nørgaard segir að far­sím­inn sé algjör plága. ,,Maður fær kannski ein­hverja hug­mynd og byrjar að skrifa, þá hringir sím­inn og svo þegar sím­tal­inu loks­ins lýkur man maður ekki lengur hug­mynd­ina, alveg tómur í koll­inum.“ Þegar hún var spurð af hverju hún væri þá að svara í sím­ann sagði hún að það yrði hún að gera. ,,Ef ég svara ekki halda börnin mín að ég sé hrokkin af stand­inum og svo myndi tengda­son­ur­inn, sem býr í grennd­inni, ryðj­ast inn og segja svo, ja hérna, þú ert þá lif­andi. Þess vegna verð ég að svara. Árum saman hef ég reynt að horfa á glæpa­þætti þar sem ég sé bæði morðið og svo lausn­ina. Það tekst aldrei, sím­inn hringir alltaf og eyði­leggur skemmt­un­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár