Jesús og María halda jólin í Reykjavík með Jesú

Jesús Sigfús, konan hans María og sonur þeirra Kristján Jesús halda jólin heilög saman í Reykjavík. Sá eldri fékk símtal frá nunnu sem leitaði til hans vegna nafnsins en sá yngri fékk í fyrra sérstaka jóla­kveðju frá ókunnugri konu sem vildi heyra í Jesú rétt fyrir afmæli frelsarans.

Nafnar frelsarans
Nafnar frels­ar­ans Jesús og Jesús ásamt Maríu. Afmæl­is­dagur hennar nálg­ast en þeim degi deilir hún með nafna manns síns og sonar, Jesú Kristi. Mynd: Golli

Síminn hringir nokkrum sinnum og karlmaður tekur upp tólið. „Halló?“ spyr rám rödd með dálitlum hreim.

Góðan daginn. Er ég að tala við Jesú?

„Góðan daginn. Þú ert að tala við Jesú,“ svarar Jesús. 

Jesús, Jesús og María

Maðurinn í símanum er ekki fæddur í Betlehem né heldur er hann helsti trúar­leiðtogi og mikil­vægasta manneskjan í kristinni trú. Hann er þó, líkt og nafni hans Kristur, kennari.

Sá sem heldur á símtólinu er Jesús Sigfús H. Potenciano – framhalds­skóla- og háskóla­kennari á áttræðis­aldri. Hann er fæddur á Spáni en fluttist til Íslands eftir að hann kynntist Maríu Önnu Kristjáns­dóttur, íslenskri eiginkonu sinni. Saman eiga hjónin, sem hafa verið saman í rúm fimmtíu ár, 31 árs gamlan son. Hann heitir Kristján Jesús, en hann er alla jafna kallaður Jesús.

Þrátt fyrir að fyrsti stafurinn í nafni feðganna sé yfirleitt borinn fram með h-hljóði upp á spænsku, bera þeir báðir nafn sitt fram upp á íslenska mátann – með j.

Fólk vildi berja „gripinn“ augum

„Á Spáni er Jesús bara eins og Gunnar eða Daníel. Ekki alveg eins og Jón eða Sigurður, en það er mjög almennt. Ekki bara á Spáni, heldur öllum þessum kaþólsku ríkjum,“ útskýrir Jesús Sigfús.

Það voru því talsverð viðbrigði fyrir hann að koma til Íslands, þar sem hann var lengi vel sá eini sem bar nafnið. „Þegar ég kom hér þá var það ekki til. Ég vann þá í verslun sem tengda­faðir minn átti, Herjólfi í Skipholti 70, og þá kom fólk til að sjá gripinn,“ segir hann og skellir upp úr. Hann segir að fólk hafi verið mjög vinalegt, en forvitið um það af hverju hann væri kominn til að starfa á Íslandi. „Ég sagði bara að ég væri ástfanginn af konu og þyrfti að gera eitthvað,“ segir hann.

Sé flett upp í þjóðskrá má þar sjá að átta manns bera nafnið Jesús að eigin­nafni, þar af fjórir að fyrsta nafni. Nafnið hefur þó enn ekki ratað á manna­nafnaskrá. „Ég er ekki lengur stjarnan, ég er bara venju­legur maður. Sem er líka gott,“ segir Jesús Sigfús um þessa fjölgun á nöfnum sínum hérlendis og hlær. 

Hjálpar við að brjóta ísinn

Sonurinn Kristján Jesús er, líkt og faðir hans og nafni þeirra frá Nasaret, kennari. Hann kennir þó aðeins yngri aldurs­hópum. „Ég heiti Jesús, kalla mig Jesú, og allir í kringum mig. Ég er umsjónar­kennari í grunn­skóla. Ég leyfi nemendum mínum ekki að kalla mig Jesú – en allir vinir mínir kalla mig Jesú.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár