Vísindafólk finnur aukin einkenni kulnunar

Álagið, kröf­urnar og ójafn­vægi milli vinnu og einka­lífs varð á síð­asta ári til þess að bæði banda­rískir og evr­ópskir vís­inda­menn fundu í auknum mæli fyrir ein­kennum kuln­unar. Far­ald­ur­inn hefur tekið sinn toll af fólk­inu sem leitar lausna.

Margar starfsstéttir hafa unnið undir gríðarlegu álagi mánuðum saman. Einkenni slíks álags koma ekki alltaf strax í ljós.
Margar starfs­stéttir hafa unnið undir gríð­ar­legu álagi mán­uðum saman. Einkenni slíks álags koma ekki alltaf strax í ljós. Mynd: EPA

Nú þegar ár er liðið frá því að heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar hófst eru margir vís­inda­menn farnir að finna fyrir við­var­andi örmögnun sem í dag­legu tali er kölluð kulnun. Kulnun getur átt sér stað hjá fólki hvar sem það vinnur en ákveðnir þættir, svo sem langvar­andi álag og streita, geta orðið til þess að fram­kalla kulnun. Ein­kennin, sem Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin bendir m.a. á, geta verið bæði lík­am­leg og and­leg. Fólk upp­lifir þreytu, ein­beit­ing­ar­skort og almenna orku­þurrð sem allt getur valdið því að erfitt getur reynst að sinna starfi sem áður þurfti ekki stór­kost­legt átak til.

Allir áhættu­þætt­irnir eru til staðar hjá vís­inda­mönnum sem unnið hafa að kappi í far­aldr­inum. Vinnu­dag­arnir geta verið langir, kröfur um fram­farir og árangur miklar og langvar­andi þörf á skil­yrð­is­lausri ein­beit­ingu tekur sinn toll.

Á síð­ustu tólf mán­uðum hafa vís­bend­ingar um þessi ein­kenni hjá starfs­mönnum vís­inda­stofn­ana í Evrópu og Banda­ríkj­unum vaxið hratt. Í könnun sem gerð var meðal 1.122 vís­inda­manna í Banda­ríkj­unum, sem allir hafa sinnt störfum við­kom­andi far­aldr­inum, sögð­ust um 70 pró­sent hafa verið streittir á síð­asta ári sem er helm­ingi meiri fjöldi en svar­aði því ját­andi árið 2019 (32 pró­sent).

Könnunin var gerð í októ­ber á síð­asta ári af vís­inda­tíma­rit­inu The Chronicle of Higher Education og banda­ríska þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Fidelity Invest­ment. Nið­ur­staða þeirra var sú að meira en tveir þriðju aðspurðra vís­inda­manna voru upp­gefnir en aðeins þriðj­ungur hafði upp­lifað slíkt árið á undan. Þá sagð­ist rúmur þriðj­ungur finna fyrir reiði árið 2020 sam­an­borið við aðeins 12 pró­sent árið 2019.

Meira en helm­ingur vís­inda­mann­anna sem tók þátt í könn­un­inni sagð­ist hafa íhugað það alvar­lega að skipta um starfs­vett­vang eða að setj­ast fyrr en ætlað var í helgan stein. Konur í hópnum voru lík­legri til að finna ein­kenni kuln­unar og um 75 pró­sent þeirra sagð­ist hafa fundið fyrir streitu sam­an­borið við 59 pró­sent karl­anna sem tóku þátt. Átta af hverjum tíu konum sögðu að vinnu­á­lagið hefði auk­ist í far­aldr­inum en sjö af hverjum tíu karl­mönnum sögðu álagið hafa auk­ist. Mun fleiri konur en karlar upp­lifðu ójafn­vægi milli vinnu og einka­lífs á síð­asta ári.

Sam­bæri­leg könnun sem gerð var meðal vís­inda­manna í Evrópu gaf svip­aða nið­ur­stöðu. Samkvæmt henni jókst streita meðal vís­inda­fólks umtals­vert sem og áhyggjur þess af and­legri heilsu sinni og vís­inda­manna almennt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár