„Við megum ekki hægja á okkur“

Íslensk kona búsett á Möltu til margra ára segir að ekki megi hægja á mót­mælum þar í landi en margir krefj­ast þess að for­sæt­is­rá­herr­ann segi af sér nú þegar vegna spill­ingar.

Mótmælendur á Möltu í lok nóvember 2019
Mót­mæl­endur á Möltu í lok nóv­em­ber 2019 Mynd: EPA

For­sæt­is­ráð­herra Möltu, Joseph Muscat, hefur boðað afsögn sína í jan­úar næst­kom­andi en háværar raddir hafa kraf­ist þess að hann segði af sér í kjöl­far morðs á blaða­kon­unni Daphne Caruana Galizia fyrir tveimur árum. Aðilar með sterkt tengsl inn í rík­is­stjórn Muscat eru grun­aðir um aðild að morð­inu.

Mót­mæl­endur sætta sig þó ekki við þetta og boðað hefur verið til mót­mæla á morgun, sunnu­dag, í Valletta, höf­uð­borg Möltu. Ýmiss félaga­sam­tök hvetja for­sæt­is­ráð­herr­ann að stíga taf­ar­laust til hliðar. Í malt­neska miðl­inum Malta Today kemur fram að krafan um það að Muscat stigi til hliðar hafi auk­ist til muna, sér­stak­lega eftir vitn­is­burð Melvin Theuma, milli­manns í morð­inu á Daphne Caruana Galizia.

Þá verði lög­reglan að rann­saka Muscat, Keith Schembri, Kenneth Camilleri, Robert Agius, Adrian Agius, Neville Gafa og Sandro Craus án frek­ari tafar. „Enginn ætti að vera haf­inn yfir lögin,“ kemur fram í máli aðstand­enda mót­mæl­anna.

Þeir vilja einnig að almenn­ingur styðji þessa kröfu og mót­mæli með þeim á morgun en sam­kvæmt Malta Today hefur fólk þar í landi séð mót­mæli til að krefja for­sæt­is­ráð­herr­ann um upp­sögn sem eiga sér engar hlið­stæður þar í landi.

Leið fyrst eins og í landi með einræðisherrastjórn

Dóra Blöndal Mizzi er Íslend­ingur sem búið hefur á Möltu í um 33 ár en hún var nágranni Daphne og kunn­ingja­kona. Hún segir í sam­tali við Kjarnann að hún hafi fyrst komið til Möltu í kringum 1985 þegar hún byrj­aði að búa með malt­verskum manni sínu. „Þá réði gamla sós­í­alista­stjórnin en mað­ur­inn minn ólst einmitt upp við hana,“ segir hún og bætir því við að spill­ingin á þeim tíma hafi verið alveg rosa­leg.

„Það var mikið áfall fyrir mig að flytja hingað, mér leið eins og ég byggi í komm­ún­ista­landi með ein­ræð­is­herra­stjórn. Þegar ég fór til dæmis út í mat­vöru­búð voru hálfar hillur tómar. Svo þurftu allir að eiga eins sjón­varp en það þurfti að fara á biðlista til að eign­ast slíkt tæki,“ segir hún.

Hún rifjar enn fremur upp að lög­reglan hafi verið mjög spillt á þessum tíma. Til að mynda hafi vin­kona hennar tekið það sér­stak­lega fram við hana að ekki væri æski­legt að eiga í sam­skiptum við lög­reglu­þjóna því „þeir væru ekki vinir þeirra.“

Vinstri og hægri til skiptis við stjórnvölinn

Árið 1987 komst Þjóð­ern­is­flokk­ur­inn (Nationalist Party) til valda en Verka­manna­flokk­ur­inn (Labor party) og fyrr­nefndur Þjóð­ern­is­flokkur hafa skipst á að halda völdum í land­inu. Dóra segir að þegar Þjóð­ern­is­flokk­ur­inn hafi unnið á níunda ára­tugnum hafi allt stoppað og fólk dansað á götum úti eftir úrslit kosn­ing­anna. „Þá urðu miklar breyt­ingar og fór land­inu að fara fram. Það varð að týpísku Evr­ópu­ríki.“

Dóra lýsir þessum tíðu stjórn­ar­skiptum, þar sem hægri og vinstri öfl skipt­ast á að fara með völd. Hún segir að þegar Verka­manna­flokk­ur­inn hafi unnið kosn­ingar fyrir sex árum hafi mátt sjá nýtt fólk með nýjar áherslur. „Þeir ein­hvern veg­inn komu ferskir og nýir til sjónar. Ofsalega margir sem höfðu áður kosið Þjóð­ern­is­flokk­inn kusu nú sós­í­alistana. Þeir hugs­uðu fram á veg­inn og voru ferskir. Ég var sjálf voða spennt að sjá hvað þeir myndu gera. Þarna var góður andi. Já, bara mjög góður andi,“ segir hún.

Strangheiðarleg og sagði alltaf satt

Sjálf þekkti Dóra blaða­mann­inn, Daphne Caruana Galizia, sem var myrt árið 2017 með bíla­sprengju. Dóra segir að Daphne hafi verið dramat­ísk í skrifum og stríðin. Hún hafi aftur á móti verið strang­heið­ar­leg og alltaf sagt satt. „Sem auð­vitað kom síðan í ljós,“ segir Dóra. Hún hafi gagn­rýnt Verka­manna­flokk­inn og komið upp um spill­ingu.

Eins og áður segir voru þær Dóra og Daphne nágrannar en eig­in­maður Dóru ólst jafn­framt upp í sömu götu og Daphne. „Það vildi líka þannig til að við fluttum á sama svæðið, eins­konar sveita­svæði. Ég horfi beint yfir á húsið hennar.“ Hún segir að vin­átta hafi mynd­ast milli þeirra og hafi dauðs­fall hennar aug­ljós­lega haft mikið áhrif á Dóru, hún hafi aldrei upp­lifað annan eins hryll­ing. Þá talar hún með mik­illi hlýju til eig­in­manns Daphne og sona þeirra.

„Ég vona bara að hún fái það rétt­læti sem hún á skilið,“ segir Dóra og má greina ákveðna bjart­sýni hjá henni. Málið hafi verið í kyrr­stöðu síð­ustu ár en nú sé bolt­inn far­inn að rúlla í kjöl­far rann­sókna og hefur þátt­taka Evr­ópu­lög­regl­unnar (Europol) haft mikil áhrif, að mati Dóru. „Nú er ákveðin gleði í loft­inu og von að Daphne fái það rétt­læti sem hún á skilið.“ En þrátt fyrir von­ar­neist­ann er Dóra þó með var­ann á. „Aftur á móti veit ég hvernig hlut­irnir geta gengið hér á Möltu. Allt getur stoppað. Ég bara vona að rann­sókn haldi áfram og að hún muni ger­ast hratt. Það má ekki hægja á mót­mælum, við verðum að halda ótrauð áfram.“

Fréttir ferðast hratt – Á Möltu og á Íslandi

Þegar Dóra er spurð út í hvort Malta og Ísland eigi eitt­hvað sam­eig­in­legt þá bendir hún á að í gegnum ald­irnar hafi margs­konar menn­ing­ar­heimar mæst á Möltu. Þannig sé landið mjög ólík Íslandi að því leyti, ekki hafi verið sama ein­angrun þar og hér. Það sem er svipað að mati Dóru er að á Möltu má einnig finna lítið sam­fé­lag. „Það vita allir hver af öðrum og fréttir ferð­ast hratt,“ segir hún.

[box]

Dóra segir að fólk sé mjög reitt núna á Möltu enda hafi svip­legt and­lát Daphne verið mikið áfall. Hún bendir á að sonur Daphne, Matthew Caruana Galizia, hafi verið mjög virkur á sam­fé­lags­miðlum til að koma fram rétt­læti og halda mál­inu gang­andi en hann er einnig blaða­maður eins og móðir hans var. „Hann hefur ekki stoppað síðan þetta gerð­ist,“ segir hún.

Þess má geta að hægt er að fylgj­ast á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter með umræðum um málið í gegnum myllu­merkið #JusticeforDaphne.

Landið mikilvægara en persóna forsætisráðherrans

Þann 29. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sendi fjöl­skylda Daphne frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem þau köll­uðu eftir því að for­sæt­is­ráð­herra segði af sér.

„Við erum, eins og aðrir Malt­verjar, hneyksluð og reið yfir því að Keith Schembri, nánum vini og fyrrum mannauðs­stjóra for­sæt­is­ráð­herra, hafi verið sleppt úr haldi. Að minnsta kosti tvö vitni, auk fjöl­margra beinna sönn­un­ar­gagna, bendla Schembri við morðið á eig­in­konu okkar og móður. Ekki þarf að veita Yorgen Fenech opin­bera náðun til þess að hægt verði að ákæra Schembri. Schembri, sem er afkasta­mik­ill glæpa­maður, bendl­aður við fjöl­mörg mál tengd mútum og pen­inga­þvætti, er nú frjáls maður og ekki er útlit fyrir að hann verði sak­felldur fyrir neinn af glæpum sínum. Okkur er brugðið að Schembri skuli hafa verið sleppt á vakt for­sæt­is­ráð­herra, sem leikur áfram dóm­ara, kvið­dóm­anda og böðul í morð­máli sem varðar þrjá af nán­ustu sam­starfs­mönnum hans,“ segir í til­kynn­ingu þeirra.

Þá telur fjöl­skylda Daphne að þessi afskræm­ing á rétt­læt­inu sé þjóð­ar­skömm sem kljúfi sam­fé­lagið í tvennt og smáni þau. Afskræm­ingin megi ekki eiga sér stað stund­inni lengur.

„Við hvetjum for­sæt­is­ráð­herra til að stíga til hliðar og hleypa að und­ir­mann­eskju sem er laus við hags­muna­á­rekstra í mál­inu. Sé for­sæt­is­ráð­herra annt um rétt­lætið og Möltu þá ætti hann að gera þetta taf­ar­laust. Landið okkar er mik­il­væg­ara en fer­ill hans.“

Vill sjá alla þess menn bak við lás og slá

Dóra segir að hana langi til að allur „kóngu­ló­ar­vef­ur­inn finni fyrir þessu.“ Hún segir að margir hafi grætt á því að Daphne færi. „Ég vil sjá alla þessa menn bak við lás og slá. Það er erfitt að sjá þá enn frjálsa á meðan fjöl­skylda hennar þjá­ist.“

Þess vegna verði að halda áfram að mót­mæla. „Við megum ekki hægja á okkur,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár