Sjúklingar rukkaðir um hátt á annan milljarð króna í sérstök komugjöld

Sjúkra­þjálf­arar og sér­fræði­læknar sem starfa sam­kvæmt gjald­skrá Sjúkra­trygg­inga inn­heimta hátt á annan millj­arð árlega í sér­stök komu­gjöld, sam­kvæmt mati hag­fræð­ings sem ÖBÍ fékk til að leggja mat á umfang þess­ara gjalda.

Sjúkraþjálfarar og sérfræðilæknar hafa undanfarin misseri starfað samkvæmt gjaldskrá SÍ og margir hverjir lagt á sérstök komugjöld sem ríkið tekur engan þátt í að greiða niður.
Sjúkra­þjálf­arar og sér­fræði­læknar hafa und­an­farin miss­eri starfað sam­kvæmt gjald­skrá SÍ og margir hverjir lagt á sér­stök komu­gjöld sem ríkið tekur engan þátt í að greiða niður. Mynd: Pexels

Umfang sér­stakra komu­gjalda sem sér­fræði­læknar og sjálf­stætt starf­andi sjúkra­þjálf­arar leggja ofan á þjón­ustu sína við sjúk­linga nemur hátt á annan millj­arð króna árlega, sam­kvæmt mati Sveins Hjartar Hjart­ar­sonar hag­fræð­ings. Mál­efna­hópur Öryrkja­banda­lags Íslands fól honum að reyna að leggja mat á þessi auka­gjöld í heil­brigð­is­kerf­inu og skýrsla um málið er kynnt í dag.

Helstu nið­ur­stöður Sveins Hjartar eru þær að áætluð heild­ar­fjár­hæð sér­staks komu­gjalds til sér­fræði­lækna nemi 878 millj­ónum á ári að með­al­tali síð­ustu þrjú ár, en í þessum tölum er miðað við mið­gildi sér­staks komu­gjalds og byggja þær upp­lýs­ingar á svörum frá sér­fræði­læknum, sem safnað var við gerð skýrsl­unnar. Miðað við þessa upp­hæð er áætlað að hlutur öryrkja af sér­stöku komu­gjaldi nemi um 90 millj­ónum króna árlega.

Hvað sjúkra­þjálf­ara varðar er áætlað að þeir hafi inn­heimt um 780 millj­ónir króna á ári í sér­stök komu­gjöld, miðað við mið­gildi gjalds­ins sem fékkst upp­gefið frá sjúkra­þjálf­urum, en algeng­ast er að sjúkra­þjálf­arar rukki sjúk­linga 500 krónur í komu­gjöld – þó dæmi séu um að sú upp­hæð fari upp í allt að 1.500 krónur. Kostn­að­ar­hlutur öryrkja er áætl­aður um 150 millj­ónir króna á ári og þessir fjár­munir fást ekki end­ur­greiddir frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands.

Leggst þungt á öryrkja og tekjulága

Í skýrslu Sveins Hjartar segir að ætla megi að kostn­aður öryrkja og ann­arra lægri tekju­hópa vegna þess­ara komu­gjalda sér­fræði­lækna og sjúkra­þjálf­ara nemi 1,1 til 1,86 pró­sentu­stiga álag á tekju­skatt á með­al­tali.

„Þessi kostn­að­ar­auki fer hækk­andi eftir því sem þjón­ustan er notuð oftar. Þetta er til marks um hversu við­kvæmir þessir hópar eru fyrir hvers kyns nýjum álögum,“ segir í skýrsl­unni.

Sér­greina­læknar sögðu sig frá samn­ingi við Sjúkra­trygg­ingar Íslands (SÍ) í lok árs 2018 og sjálf­stætt starf­andi sjúkra­þjálf­arar gerðu hið sama í febr­úar 2020. Síðan þá hefur greiðslu­þátt­taka SÍ verið sam­kvæmt gjald­skrá stofn­un­ar­innar, auk þess sem það hefur lið­ist að sjúk­lingar séu krafðir um auka­gjöld, sér­stak­lega í formi komu­gjalda, til að vega upp á móti metnu tekju­tapi sér­greina­lækna og sjúkra­þjálf­ara.

Í inn­gangi skýrsl­unnar segir að Öryrkja­banda­lag Íslands líti svo á að með þessu sé sátt­mála um hámarks­kostnað sjúk­linga í heil­brigð­is­þjón­ustu rift ein­hliða af þeim aðilum sem koma að samn­ings­borð­inu en ekki þeim sem sitja uppi með kostn­að­inn.

„Auka­gjöld þessi leggj­ast þungt á fatl­aða og lang­veika félaga í ÖBÍ. Því meir sem þeir þurfa á þjón­ust­unni að halda, hækkar kostn­að­ur­inn og þeir án verndar kostn­að­ar­þátt­töku­kerf­is­ins,“ segir sömu­leiðis í inn­gangi skýrsl­unnar.

Kostnaðarþátttökuþakið sprengt

Í skýrsl­unni eru tekin dæmi um það hvernig auka­gjöld sér­fræði­lækna og sjúkra­þjálf­ara geta gjör­sam­lega hvell­sprengt það þak sem ákvarðað hefur verið fyrir árlega kostn­að­ar­þátt­töku öryrkja vegna heil­brigð­is­þjón­ustu, en það eru 18.317 krónur.

Öryrki sem fer einu sinni í viku til sjúkra­þjálf­ara í 40 vikur og greiðir 1.000 króna komu­gjald í hvert sinn og heim­sækir sér­fræði­lækni sinn fimm sinnum yfir árið og greiðir honum 2.200 króna komu­gjald í hvert sinn, greiðir þannig í reynd 69.317 krónur fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu sína, sem nemur 378 pró­sent hækkun á kostn­að­ar­þátt­töku þessa til­tekna ein­stak­lings.

Skera þurfi úr um lögmæti gjaldannna

Í skýrsl­unni segir að við skoðun sér­stakts komu­gjalds vakni sú spurn­ing „hvort það stand­ist lög að rík­is­valdið heim­ili einka­að­ila að inn­heimta óskil­greint sér­stakt komu­gjald af sjúk­lingum sem er í eðli sínu eins og hver annar veltu­skattur“ og að það skipti þá ekki máli hvað slíkt gjaldsé kallað, sér­stakt komu­gjald eða ein­fald­lega veltu­skattur eða gjald.

„Nið­ur­staða um lög­mæti gjalds­ins fæst ekki nema fyrir dóm­stólum. Í ljósi þeirra upp­hæða sem hér er verið að fjalla um hlýtur það að vera mik­il­vægt að úr þessu verið skorið. Hvatinn til þess að hækka þetta gjald að óbreyttu er aug­ljós­lega auð­sær,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár