„Sumir kulna og gefast upp – og hreinlega geta ekki verið í þessum aðstæðum“

Formaður KÍ segir að það sé mjög stað- og ein­stak­lings­bundið hversu vel kenn­arar upp­lifa að þeir geti komið til móts við ein­stak­linga og þarfir þeirra.

Ragnar Þór Pétursson formaður KÍ.
Ragnar Þór Pét­urs­son for­maður KÍ. Mynd: KÍ/Anton Brink

Ragnar Þór Pét­urs­son for­maður Kenn­ara­sam­bands­ins segir að kenn­arar séu upp til hópa óbilandi hug­sjóna­fólk að vinna í aðstæðum sem séu mjög krefj­andi. Hér á landi sé krónískur kenn­ara­skortur – alltaf vanti kenn­ara á öllum skóla­stigum, alls staðar.

Þetta kemur fram í máli Ragnars Þór í ítar­legu við­tali sem birt­ist á Kjarn­anum um helg­ina.

Hann segir að aðstæð­urnar valdi því að kenn­urum fall­ist hendur og upp­lifi von­leysi. „Þeir hafa hins vegar alltaf reynt að leggja sig fram um að spila eftir regl­unum eins og þær eru á hverjum tíma. Og þeir hafa til dæmis alveg fylgt eftir stuðn­ings­full­trúa­kerf­inu og grein­ing­ar­kerf­inu eins og þeir hafa getað. En þeir eins og aðrir sjá alveg að þessi kerfi hafa ekki dugað til.“

Vandamálin afhjúpast þegar börn fara í grunnskóla

Ragnar Þór segir að það sé skelfi­legt fyrir kenn­ara að upp­lifa sig í aðstæðum þar sem hann leggur sig fram og áttar sig á að það dugar ekki til.

„Að mörgu leyti er gott að starfa á leik­skóla­stigi hvað þetta varðar vegna þess að þar er fyrst og fremst verið að styðja við eðli­legan og fjöl­breyttan þroska barna í sam­fé­lagi. Þannig fær leik­skól­inn að vera sá staður þar sem ákveðið umburð­ar­lyndi er gagn­vart fjöl­breyti­leika.

[links]Til dæmis er stutt við frjálsan leik og lær­dóm – og það er ekk­ert sjálf­sagt við það. Við erum með eitt öfl­ug­asta leik­skóla­stig í heimi, óvíða er jafn metn­að­ar­fullt starf eins og hér og að mörgu leyti er það til fyr­ir­myndar. Um leið og barnið fer í grunn­skóla er til­hneig­ingin aftur á móti sú að kröf­urnar fara að verða aðrar, erf­ið­ara verður að standa undir þeim og vanda­málin afhjúp­ast.“

Hann segir að það sé mjög stað- og ein­stak­lings­bundið hversu vel kenn­arar upp­lifa að þeir geti komið til móts við ein­stak­linga og þarfir þeirra.

„Ég þekki mörg dæmi þess að fötluð börn séu í sama skóla og ófötluð börn og það gengur bara frá­bær­lega. Stundum eru þetta lítil sam­fé­lög þar sem ekki einu sinni er spurt um til­vistar­rétt­inn – þau eru þarna eins og þau eru og allir eru eins og þeir eru. Það er hvort sem er eng­inn eins og þetta er frá­bært dæmi um það.“

Sumir kulna og gefast upp

Að hans mati er þetta það sárasta sem kenn­ari upp­lifir; bjarg­ar­leysi gagn­vart börn­unum. „Sumir kulna og gef­ast upp – og hrein­lega geta ekki verið í þessum aðstæðum. Aðrir setja undir sig höf­uðið og ætla að bjarga ástand­inu. Aðrir verða pirraðir á stoð­leys­inu og því að bíða með barn í alvar­legum vanda sem kemst ekki í þjón­ustu fyrr en eftir nokkur ár. Þetta er gríð­ar­lega krefj­andi.“

Hann segir að eftir að Íslend­ingar ákváðu á átt­unda ára­tugnum að mennta­kerfið væri fyrir alla þá hafi stjórn­málin ekki ráðið við að fylgja stefn­unni eftir.

Hér er hægt að lesa við­talið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár